Mjölnir - 13.12.1950, Side 4
í smágreinardellu í síðasta
Siglfirðingi, sem ber öll ein-
kenni ritmennsku Stefáns Frið-
bjarnaraonar, stendur þetta:
„Kommúnisminn hefur óneitan-
lega farið í föt nazísmans —
Það hafa flestir talið, að
ðmögulegt sé fyrir tvo að vera
klæddir sömu flíkinni. Hingað
til hefur verið talið lítið vafa-
mál, að S.F. gengi í fötum naz-
ismans, þótt hakakrossinn sjá-
ist ekki utan á.
Nú má vel vera, að ritstjór-
inn hafi haft fataskipti, a.m.k.
þykist hann vita hver hafi
klæðzt þeim eftir að hann lagði
þau frá sér. Hinsvegar er engin
ástæða til að sálartetur S.F.
hafi haft fataskipti, og er
ekkert líklegra, ef hún væri
skoðuð vel, en hakakrossinn
kæini í ljós á handleggnurn, þar
sem hann var í gamla daga. Á
brjóstinu sæist máske járn-
kross, sem þessum arftaka
Hitlers í baráttunni gegn
kommúnismanum, hefur verið
veittur í heiðursskyni fyrir
vakklega framgöngu.
Það er óvarlegt af Stefáni
Friðbjamarsyni að leika sér
stöðugt að því að núa nazista-
stimpli á aðra menn, vitandi
það, að hakakrossinn getur hve
haft fataskipti?
nær sem er sézt í gegn um
hans eigin ermi. Það er l'íka
heimskulegt af honum að velja
til þess þann flokk manna, sem
ávallt hefur sýnt, að hann hef-
ur enga samstöðu haft með
nazistum, heldur þvert á móti
'barizt hatramlegast á móti
nazismanum og verið mest of-
sóttur af villidýrum Hitlers. —
'Eða hvort heldur Stefán litli
að Hitler hafi af vinskap og
skyldleika ráðist gegn Sovét-
ríkjunum, eða heldur hann, að
Hitler hafi drepið fleiri íhalds-
menn í fangabúðum sínum
fyrir stríð en kommúnista. —
Stefán hefur áreiðamlega kynnt
sér Mein Kampf það vel áður,
að hann ætti að vita hvert var
æðsta boðorð nazistanna.
Stefán litli ætti eftirleiðis að
hafa vit fyrir sjálfum sér, þó
ekki væri nema i sambandi við
þessi mál, og hætta að skrifa
um þau, því öll skrif hans um
þau rifja aðeins upp fyrir les-
endum fortíð hans sjálfs. En
vilji hann halda sl'ikum skrifum
áfram er honum það auðvitað
velkomið okkar vegna, sem
hann segir að klæðzt höfum
fötum þeim, sem hann hefur
nýlega lagt frá sér.
Æ.F.S.-félagi
O R Ð S E N D I N G
tíl meðlima Æskulýðsfylkingarinnar
Á morgun, fimmtudag, verð-
ur haldinn fundur í Æskulýðs-
fylkingunni, fél. irngra sósíal-
ista. Er hann auglýstur á öðr-
um stað í blaðinu í dag.
Eins og ykkur er kunnugt,
hefur starfsemi Æ.F.S. verið
heldur lítil nú undanfarið, en
nú er meiningin að efla starfið
að nýju og verður aðallega um
það rætt á þessum fundi
. hvernig því skuli haga. Vill
stjórn Æ.F.S. því eindregið
skora á ykkur öll, sem. í bæn-
um eruð, að koma á fundinn og
,taka þáft í eflingu starfsins.
Þá skorar hún á ykkur að
koma á fundinn með nýja fé-
laga, og eins og ykkur er kunn-
ugt mega allir, sem orðnir eru
M ára ganga í félagið.
Félagar! Þið vitið, að sókn
afturhaldsins gegn sósíalistum
hefur harðhað tölúvért upp á
síðkastið. Það beitir nú skefja-
lausari áróðri gegn okkur en
áður, og hefur þegar byrjað
atvinnuofsóknir gegn róttækum
verkamönnum, þar sem það
hefur aðstöðu til að beita þeim.
Gegn þessu höfum við aðeins
eitt ráð og það ér að hérða
okkar baráttu og brynja okkur
sjálf gegn áróðrinum, þannig
að við eflumst að manndómi
til að mæta ofsóknum aftur-
haldsins hvenær, sem því þókn-
ást að hefja þær gegn okkur
með meiru en orðunum tómum.
Þótt nú horfi svo í dag hér á
Islandi, að aftúrhaldið ráði yfir
heildarsamtökum alþýðunnar,
þá sjást engin merki þess,
að sósíalisminn hafi glatað
fylgi meðal verkalýðsins, held-
ur hefur raunin orðið sú að at-
kvæðatala hans hefur heldur
vaxið, t.d. í síðustu Alþýðu-
sambandskosningu. Þess vegna
er nú þörf á auknu starfi sósíal
ista til að efla áhrifin inn í
verkalýðssamtökin og vinna að
enn meiri fylgisaukningu þar.
Æskulýðsfylkingin hefur því
mikilvægu hlutverki að gegna,
og.ber því verkalýðsæskunni að
gerast meðlimir hennar og taka
þar upp störfin í þágu sjálfrar
sín og verkalýðsins yfirleitt.
Þess vegna félagar! Fjöl-
mennið á fundinn annað kvöld
og takið- marga nýja félaga
með. — Hef jum öflugt starf í
Fylkingunni og herðum bar-
áttuna.
Lifi verkalýðshreyfingin!
Lifi sósíalisminn!
Stjórn Æskulýðsfylkingarinnar,
fél. ungra sósíalista, Siglufirði.
Æ. F. S.
Æ. F. S.
sem ný kojurúm (tvö rúm),
og skiði með stálköntum.
Afgr. vísar á.
FUNDUR
verður haldinn í Æskulýðs
fylkingunni, fél. ungra sósíal-
ista, fimmtudaginn 14. des.
kl. 9 e. h. í Sugurgötu 10.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Félagsmál.
3. Vetrárstarfið.
4. Upplestur
5. Skiptivist (hafið með spil.
Félagar eru áminntir um
að mæta stundvíslega.
STJÓRNIN.
Viðskiptasamningur
Islandsog Irlands
New York Times birti hinn 3.
þ.m. fregn um að fyrsti við-
skiptasamningurinn, sem Island
og írland hefðu gert, hefði ver-
ið undirritaður !ií aðalstöðvum
Marshallstofnunarinnar þar dag
inn áður. Selja Irar Islending-
um hatta, kaðla, vefnaðarvöru,
mjólk og kartöflur, en fá i stað
inn fisk, loðskinnog húðir.
Manndauði, fæð-
ingar o.fl. árið 1949
1 nýútkomnum hagtíðindum
er að finna ýmsar upplýsingar
um hjónavigslur, manndauða og
fæðingar árið 1949. Skulu hér
birt nokkur atriði úr þeim upp-
lýsingmn.
Árið 1949 voru hjónavígslur
alls 1.075, eða 7,7 á hvert þús-
imd landsmanna. Er það held-
ur minna heldur en verið hefur
(1948 8,5 1947 8,3). Hjónaskiln
aðir voru 83 eða 0,6 af þús-
undi. Er það minna en udan-
farin 2 ár (1948 0,7, 1947 0,8).
Miðað við lengra tímabil, frá
1926, sem skýrslurnar ná yfir,
hefur hjónaskilnuðum fjölgað
mjög, svo aðheita má að þeir
hafi tvöfaldást miðað við mann
fjölda.
(Framliald á 2. síðu)
Ix^
Miðvikudagur 13. des. 1950
35. tölublað. 13. árgangur.
Rokossovski og Eisenhower
Bandaríski hershöfðinginn Ike Eisenhower hef-
ur nýlega verið útnefndur æðsti yfirmaður
„hinna sameinuðu varnarher ja Atlanzhafsbanda
Iagsríkjanna“. Að ráðningu hans standa æðstu
yfirmenn hermála og ríkisstjórnirnar í þessum
tólf löndum, þ.á.m. íslands!
★
Fyrir tæpu ári kaus r'ikis-
stjórn og þing Póllands Konst-
antin Rokossovski marskálk
æðsta yfirmann Pólska hersins.
Þegar þetta fréttist, ætluðu
,,Iýðræðisblöðin“ í V-Evrópu
bókstaflega að rifna í tætlur af
hneykslun og vandlætingu, og
töldu það fullsannað, sem þau
hefði reyndar grunað áður, að
Rússar hefðu bæði tögl o.g
hagldir í hermálum Póllands
og annara alþýðulýðvelda í A-
Evrópu. „Pólski herinn settur
undir rússneska yfirstjórn,“
sagði Morgunblaðið.
Rokossovski marskálkur
hlaut hernaðarmenntun s'ína í
Ráðstjórnarríkjunum og ávann
sér heimsfrægð fyrir herstjórn
arsnilli í heimsstyrjöldinrii síð-
ari. En hann er Pólverji í húð
og hár, fæddur í Varsjá af
pólskum foreldrum, alinn upp
í Póllandi að miklu leyti, talar
pólsku og hefur ætíð litið á
sig sem Pólverja. Þegar hann
tók við hinu nýja embætti smu
í fyrravetur, afsalaði hann sér
borgararétti sínum í Ráðstjórn
arríkjunum og gerðist pólskur
borgari.
Eisenhower er ekki fæddur
í London, París, Kaupmanna-
höfn, Reykjavík, né neinni aim
arri evrópskri borg, heldur
100% ameríkani og gamall skó
sveinn dollaraimperíalismans.—
Hann hefur heldur ekki og mun
ekki afsala sér neinum réttind-
um bandarískra borgara. Hins-
vegar hefur hann tekið nokkurn
þátt í stjórnmálum, m.a. verið
nefndur sem hugsanlegt for-
setaefni repúblikana. Þrátt fyr-
ir þetta heyrðist engiim kurr
meðal lýðræðishetja V-Evrópu
þegar hann var kjörinn yfir-
stjórnandi herja V-Evrópu, —
heldur beygðu þær kné sín í
þögn og auðmýkt. Eisenhower
er Ameríkani, og þar að auki
gamalt handbendi Wall Street
auðjöfraima. Dollaraherrunum
ber að hlýða skilyrðislaust.
Það eru notaðir tvennskon-
BEZTU BOKAKAUPIN
Eftirtaldar bækur lief ég fengið til afgreiðslu lianda áskrif-
endum Máls og menningar með 10% afslætti frá verði í bóka-
búðum:
Jóhann Kristófer, eftir Romain Rolland, Ditta Mannsbam,
eftir Martin Andersen Nexö, Bamæska mín, eftir Maxim Gorki,
Hjá vandalausum eftir Maxim Gorki, Dauðsmannsey eftir Jó-
liannes úr Kötlum, Siglingin milcla, eftir Jóliannes úr Kötlum,
Ljóðasafn Jóliannesar úr Kötlum, Fyrsta barnið, eftir Giuen
Barton, Fjalla Eyvindur, eftir Jóhann Sigurjónsson, Kvæði Snorra
Hjartarsonar, Ur landsuðri, kvæði, Jón Helgason.
Þið, sem enn liafið ekki gerzt áskrifendur að bókmn Máls og
menningar, ættuð að gera það sem fyrst, svo þið getið orðið að-
njótandi þess að fá bækur eftir vinsælustu rithöfunda með lægra
verði en þið eigið kost á að fá annars staðar.
KRISTMAR ÓLAFSSON
ar mælikvarðar í marsjall-lönd-
unum. Það telst í alla staði
sjálfsagt og lofsvert að tólf
Evrópuríki afsali sér fullveldi
sinu og sjálfsákvörðunarrétti,
og búi sig undir styrjöld gegn
fjandmönnum, sem valdhafarn-
ir í annari heijnsálfu ákveða
hverjir skuli vera, framselji
dollaraimperialismanumlöndsín
og l'If fólksins til að ráðskast
með e-ftir vild og setji allan
herafla sinn undir bandaríska
yfirstjórn. Hinsvegar á hneyksl
un „lýðræðisríkjanna" sér eng-
in takmörk þegar pólska þingið
gerir pólskan hershöfðingja að
æðsta yfirmanni pólska hersins.
Tímaritið „Réttur“
3. hefti þessa árgangs er ný-
komið út. Er hefti þetta að
mestu helgað minningu Jóns
biskups Arasonar og sona
hans. Efni heftisins er þetta:
I minningu Jóns Arasonar og
sona hans: Ritkaflar og kvæði
eftir Jón Sigurðsson forseta,
Jón Arason, Þorstein Erlings-
son, Jóhannes úr Kötlum o.fl.
Dánarminning Jóns Arasonar,
eftir Bjöm Sigfússon. Auðæfi
jarðar og mennirnir, eftir M.
Iljin. Stórveldastrið og stétta-
barátta siðskiptatímans eftir
Bjöm Þorsteinsson. Innlend víð
sjá eftir Brynjólf Bjamason.
Þá er kvæði, bókafréttir o.fl.
Eins og margoft áður hefur
verið bent á hér 1 þessu blaði,
er Réttur eitt af merkustu
tímaritmn landsins. Þetta er
34. árgangur hans. Öll þessi ár
hefur hann verið málssvari og
málflytjandi hinna réttinda-
snauðu í þjóðfélaginu, barizt
fyrir auknum réttindum þeim
til handa og leitast við að
fræða þá um orsakir réttleysis
þeirra. Því er alltaf að finna í
Rétti fræðandi greinar um þjóð
félagsmál, bæði af innlendum
og erlendum vettvangi, og í
þeim má finna skýringar á
mörgum þeim málum, sem auð-
valdsblöðin hafa rangskýrt og
flutt viHandi fregnir af. Árgang
ur Réttar er fjögur hefti, sam-
tals um þrjú hundmð blaðsíð-
ur og kostar þó ekki nema ein-
ar 25 krónur. Það er ekki stór
né merkileg bók, sem fæst nú
fyrir 25 kr. Þeir, sem áhuga
hafa fyrir að eignast ódýrar
og góðar bækur ættu að gerast
áskrifendiu’ að Rétti. Þar fá
þeir eina góða bók á ári hverju
Útsölumaður Réttar er Einar
M. Aibertsson, og geta nýir
kaupendur snúið sér tH hans í
Skóvinnustofuna Aðalgötu 22,
eða hringt í síma 130 og tH-
kynnt þar áskrift sína.