Mjölnir - 10.05.1966, Blaðsíða 8
AVARP til jjglfinkrar dlþýðu I. moi \Hi
Hinn 1. maí 1966 tekur siglfirzk alþýða
sem jafnan áður undir hinar alþjóðlegu
kröfur verkalýðsstéttarinnar um frið, frelsi
og jafnrétti.
Við tökum einnig undir sérkröfur ís-
lenzkrar verkalýðsstéttar um stærri hluta af
þjóðartekjunum en henni er skammtaður nú.
Við tökum undir mótmælin gegn hersetu á
íslandi. Við mótmælum sífelldum verð-
hækkunum á nauðsynjavörum almennings
og sívaxandi dýrtíð og verðbólgu.
Við tökum undir aðvaranir gegn því, að
erlendur atvinnurekstur fái áhrif á íslenzkt
atvinnulíf. Við vörum eindregið við þeirri
stefnu, að fjármagni og vinnuafli sé í sívax-
andi mæli beint til þéttbýlissvæðisins á Suð-
vesturlandi, en aðrir landshlutar settir hjá
með fjármagn og aðstöðu.
Við teljum, að sökum vaxandi dýrtíðar
sé það óhjákvæmilegt, að verkalýðssamtök-
in knýji fram hækkanir á kaupmætti launa,
og gerum þá kröfu til ríkisvaldsins, að það
geri ráðstafanir til að stöðva verðbólguna,
sem um langt árabil hefur eytt hverri kjara-
bót, sem launþegar hafa fengið, svo að segja
um leið og hún var knúin fram.
Jafnframt vekjum við athygli á því, að
atvinnulíf Siglufjarðar stendur mjög veik-
um fótum. Við teljum því, að ein höfuð-
krafa siglfirzks launa- og verkafólks nú sé
sú, að atvinnulíf bæjarins sé eflt með sam-
ræmdum aðgerðum bæjarfélagsins, ríkis-
valdsins og bæjarbúa sjálfra, og bendum í
því sambandi á eftirtalin atriði:
1. Leitað verði allra tiltækra ráða til að
tryggja fiskvinnslustöðvum í Siglufirði hrá-
efni.
2. Niðurlagningarverksmiðja S. R. verði
fullbyggð sem fyrst og markaða aflað fyrir
það magn, sem hún getur framleitt með full-
um afköstum.
3. Ríkisstjórn og Alþingi stuðli að stofnun
nýrra iðnfyrirtækja þar sem nýrra atvinnu-
tækja er mest þörf. Bæjarstjórn Siglufjarðar
hafi forgöngu um staðsetningu slíkra fyrir-
tækja í bænum. í þessu sambandi lýsum við
yfir eindregnu fylgi við hugmyndina um
byggingu stórrar dráttarbrautar og skipa-
smíðastöðvar í bænum.
Við óttumst, að ef ekki verða gerð nein
stór átök til eflingar atvinnulífi bæjarins,
samfara því, að meira fé og vinnuafli en
nokkru sinni áður er beint í framkvæmdir á
Suðvesturlandi, geti afleiðingin ekki orðið
önnur en samdráttur og vaxandi fólksflótti
úr bænum. — Við krefjumst því þess, að nú
þegar verði hafnar raunhæfar aðgerðir til
eflingar atvinnulífi hæjarins.
Við skorum á siglfirzkt alþýðufólk að
lýsa samhug um þessar kröfur okkar með
því að fjölmenna til hátíðahaldanna 1. maí.
1. maí-nefnd
Verkalýðsfélagsins VÖKU.
Hættir DRANGUR póst- og
farþeg:aflutning:i ?
Að undanförnu hefur sá orð-
rómur verið á kreiki, að til
standi að póstbáturinn Drangur
hætti póst- og farþegaflutningi
milli Eyjafjarðar og Skagafjarð-
ar. Áætlun fyrir bátinn er gefin.
út aðeins fram að miðju þessu
ári.
Fyrir Siglfirðinga er þetta
stórkostlega mikilvægt mál, þar
Heyrit htfir
AÐ varðbcrgsmcnn Framsóknar
ó Siglufirði telji sig örugga
með þrjó menn i bæjarstjórn
og lítið vanti ó að só fjórði
nóist.
AÐ kratar og ihald séu sammóla
um að hafa Sigurjón fyrir
flengingastrók fram yfir
kosningar, — en eftir kosn-
ingar verði hann notaður fyr
ir bæjarstjóra næstu 4 órin.
AÐ til sé þó nokkur hópur
greindra Sjólfstæðismanna,
sem séu algerlega andvígir
þessum róðagerðum Stefóns,
Knúts og co.
sem gömul reynsla og ný sýn-
ir, að vegna snjóalaga svo og
svo langan tíma vetrarins lokast
vegir, og samgöngur á landi því
óábyggilegar og torveldar, og
eru síðustu vetrarmánuðir fersk-
asta dæmið um hvað getur gerzt
á hörðum vetri.
H.inu má ekki horfa fram hjá,
að með tilkomu nýrra vega, svo
sem um Ólafsfjarðarmúla og um
Strákafjall, batna samgöngur á
landi stórkostlega fyrir Ólafs-
fjörð og Siglufjörð, og um leið
eru miklar líkur til að flutninga-
verkefni Drangs minnki verulega.
Það er því ekki að ástæðulausu
þó eigendur Drangs hugsi til
breytinga eða að hætta alveg út-
gerð hans, telji þeir rekstrar-
grundvelli raskað verulega. Út-
gerð Drangs, reglubundnar ferð-
ir hans á leiðinni Akureyri-Sauð-
árkrókur um langt skeið, hefur
verið og er enn mjög ríkur þátt-
ur í samgöngumálum þessa lands
hluta og reyndar í samgöngumál
um almennt. Komi til breytinga
á þessum ferðum, er vissulega
þörf á því að ráðamenn þeirra
byggðarlaga, sem þarna eiga
mestra hagsmuna að gæta, svo
og yfirstjórn samgöngumála
landsins, taki þetta til alvarlegr-
ar athugunar hið fyrsta.
Siglfirðingar munu áreiðan-
lega einhuga um að vilja stuðla
að áframhaldandi útgerð Drangs
svo vel hefur hann dugað og þeir
ágætu menn, sem um stjórnvöl
hans liafa haldið. Smávegis frá-
vik og seinkun frá svo til mín-
útubundinni áætlun hverfa í
skuggann hjá því, hve Drangur
hefur verið góður og þýðingar-
mikill í samgöngumálum bæjar-
Mjölnir
ÚTG. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA
AbyrgSarmaSur: Hannei Boldvinuon. AfgreiStla: SuSurgötu 10, SiglufirSi,
sími 71294. Argjald 75 kr. — Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. Akureyri
ALÞÝÐUBANDALAGSINS, - G-LISTANS,
í Siglufirði er í Suðurgötu 10. Sími skrifstofunnar er 7-12-94.
Skrifstofan verður opin frá kl. 4—7 og 8—10 síðdegis. Allar
upplýsingar um kosningarnar, kjörskrá og fleira eru veittar
þar, og allar upplýsingar, sem að gagni mega verða eru vel
þegnar. Ættu því félagar og stuðningsmenn að gera sér tíð-
förult á skrifstofuna og reyna að létta starfið.
Kosningasjóðurinn er afar léttur ennþá og bíður
hann eftir framlögum örlátra félaga og fylgjenda. —
Framlögum er veitt móttaka á skrifstofunni, og einnig
veita ýmsir fulltrúar G-listans viðtöku framlögum í
kosningasjóðinn.
Þeir, sem starfa vilja fyrir G-listann fram að kjör-
degi og á sjálfan kjördaginn, eru sérstaklega beðnir
að láta skrá sig. Bílaeigendur, sem aka vilja eða lána
bíla sína á kjördag, gefi sig fram.
***********************************************
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
t
★
Árshátid
ALÞÝÐUBANDALAGSINS í SIGLUFIRÐI
verður lialdin að Hótel Höfn föstudaginn 20. maí nk.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Nánar auglýst síðar.
Skemmtinefndin.
¥
¥
■¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k
Ófremdarástand með neyzlu-
vatn Siglfirðinga
Það er alltaf að verða alvar-
legra
og alvarlegra ástandið
neyzluvatnsmálum
Vatnsveitukerfið <
íns.
Siglfirðinga.
;r að verða
meira og minna úr sér gengið
og vatnsgeymarnir, eða öllu
heldur hreinsiútbúnaður við þá,
er í algerlega óviðunandi á-
LISTI ALÞÝÐU-
BANDALAGSINS í
SIGLUFIRÐI ER
G-LISTINN
standi. Hvað eftir annað skeður
það, jafnvel þegar næstum er
vatnslaust og í frostum, að
neyzluvatnið morar af alls kon-
ar, rusli, mosa og grastægjum,
og ef eitthvað hlánar, þá er
vatnið mórautt af aur og leðju,
ónothæft hvort heldur er til
neyzlu eða þvotta. Þetta vita all-
ir bæjarbúar af eigin reynslu, og
margoft hefur athygli bæjar-
stjóra og bakhjarla hans verið
vakin á þessu, en án árangurs.
Frá heilbrigðislegu sjónarmiði
lilýtur þetta að vera mjög al-
varlegt mál, og mikið spursmál
hve lengi ráðamenn bæjarins
geta þverskallast við kröfum um
úrbætur í vatnsveitumálum bæj-
arins.