Mjölnir - 17.10.1975, Side 1
Mjölnir
XXXVni. árgangiur. Föstudaginn 17. okt. 1975 6. tölublað.
Borunin í Skútudal ber gððan árangur:
Vatnsmagnið þrelaldast!
Bæjarbúar hafa án efa beðið með öndina í hálsinum eftir árangri
borananna í Skútudal. Margir voru vongóðir, aðrir fullir efasemda.
en atburðir síðustu daga virðast taka af skarið um það, að mun
meira vatnsmagn fáist úr Skútudal en fyrirhuguð virkjunaráætlun
gerði ráð fyrir.
Frá Norrænafélaginu
Starfsemi Norræna félagsins
hér er í fullum gangi, enda
fjölgar nú félögum talsvert ár-
lega.
Vinabæjahreyfingin gengur
ágætlega ,til mikillar ánægju
og gagns fyrir marga. Um
fjölda ára hafa fulltrúar vina-
bæjanna mætt til viðræðna og
kynna og nú síðast 28. ágúst
í Noregi í vinabæ Siglufjarðar,
Ilolmestrand. Margir fulltrúar
mættu þárna til ánægjulegra
samverustunda, frá öllum Norð
urlöndunum, nema Finnlandi.
Fyrir hönd Norrænafélagsins í
Siglufirði mætti Þorgerður
Hlöðvesdóttir. Flutti hún greina
gott og skemmtilegt erindi um
Siglufjörð, og færði N. F. í
Holmestrand vinagjöf. Góður
rómur var gerður að ræðu Þor-
gerðar og þökkuðu Norðmenn
henni komuna.
Norrænafélagið reynir að
stuðla að auknum kynnum með
því að semja um verulegan af-
slátt á fargjaldi til Norðurland-
anna fyrir félagsmenn sína og
hafa fjölmargir notað sér þann
afslátt.
Næsta vinabæjamót verður
í Vánersborg í Svíþjóð næsta
sumar. Ánægjulegt væri, ef
Siglfirðingar gætu notað hluta
af sumarfríi sínu til þess að
heimsækja þessa norrænu vini.
Sunnudagskvöldið 12 okt.
s. 1. hafði verið borað niður
á 660 metra dýpi og var þá
vatnsmagnið 13 sek.l af 65.5
gráðu heitu vatni. Úr holu
nr. 5 renna nú 3 sek.l. af 65
gráðu heitu vatni, en úr holu
6 renna nú sem fyrr 8 sek.l.
af 67 gráðu heitu vatni, en
það var einmitt hola 6, sem
átti að virkja. Það, sem hef-
ur þvi gerzt, er það, að
magnið af sjálfrennandi
heitu vatni hefur þrefaldast,
er nú 24 sek.l. í stað 8 áður.
Kristján Sæmundsson jarð-
fræðingur er einn af sér-
fræðingum þeim, sem unnið
hafa að rannsóknum á hita-
svæðinu í Skútudal. Að hans
dómi má gera ráð fyrir, að
borunin sé að nálgast tölu-
vert jarðhitasvæði. Hitamæl-
ingar í borholunni sýna, að
eftir að 590 metra dýpi er
náð, snögghitnar holan,
þannig að í 658 metrum er
hitinn 70,6 gráður. Sérfræð-
ingarnir gera fastlega ráð
fyrir, að samkvæmt þessu
verði hitinn í 1000 metrum
um 90 gráður. Hversu heitt
vatnið verður, eða magnið
af þessu dýpi, er svo annað
mál, en vissulega ættu þess-
ar upplýsingar og niðurstöð-
ur að gefa ástæðu til hóf-
legrar bjartsýni.
Breyttar forsendur
Árangurinn, sem orðið
hefur af borunum í Skútu-
dal, hlýtur að verða til þess,
að ýmsir þættir varðandi
hitaveituframkvæmdirnar
verða að fara í gagngera
endurskoðim. Þar vegur að
sjálfsögðu þyngst að kanna,
hvort þörfin fyrir kyndistöð
er að engu orðin. Úr þessu
verður að sjálfsögðu ekki
skorið fyrr en dæluprófanir
hafa farið fram. Fastlega
má þó gera ráð fyrir, að
! mikilvægi kyndistöðvarinn-
ar verði minna en áætlað
var, sem þýðir aftur á móti,
að hagkvæmni veitunnar fyr
ir notendur hennar ætti að
iverða meiri en útreikningar
1 gerðu ráð fyrir.
Kvöldskóli í Siglufirði
Kvöldskóli hefur tekið til
starfa í Siglufirði, en slík starf-
semi hefur legið niðri í áratugi
hér í bænum. Þær greinar, sem
nú eru kenndar í skólanum,
eru vélritun, bókfærsla og
enska. Gunnar Rafn Sigur-
bjömsson veitir skólanum for-
stöðu, en Björk Hallgrímsson,
Ómar Hauksson og Bjarni Th.
Rögnvaldsson kenna við hann.
Aðsókn hefur verið með ágæt-
um og hafa ekki allir komist
að í þetta skipti. Áætlað er, að
þessari námsönn ljúki í desem-
ber, en starf í skólanum hefj-
ist aftur í febrúar.
í stuttu spjalli við Mjölni gat
Gunnar Rafn þess, að hann
hefði áhuga á því að fjölga
námsgreinum við skólann eftir
áramótin og jafnframt búa svo
í haginn, að allir, sem hug
hefðu á námi, kæmust að.
Að endingu gat Gunnar þess,
að það hefði komið sér
skemmtilega á óvart, hve að-
sóknin hefði verið mikil, og
ætti það að sanna, að full þörf
hefði verið á þessari starfsemi
í kaupstaðnum.
Kennslan fer fram í Gagn-
fræðaskólahúsinu.
Siglfirðingar
Gleðjið vini og vandamenn
á merkum tímamótum með
heillaskeyti frá Kvenfélagi
Sjúkrahúss Siglufjarðar.
Skeytin fást í Bókaverzlun
Hannesar Jónassonar og hjá
þessum konum:
Önnu Snorradóttur, sími 71446
Jónu Einarsdóttur, sími 71532
Kristíne Þorsteinss, sími 71240
Sigríði Lúðvíksdóttur, s. 71557
Steinunni Rögnvaldsd., s. 71295
Kvenfélag
Sjúkrahúss. Siglufjarðar
Meirihlitinn sprunginn
— ráðning bókavarðar gerði út af við samstarfið
Fáir atburðir hafa vakið annað eins
fjaðrafok á pólitísku leiksviði bæjarmála
í Siglufirði eins og ráðning Óla Blöndals í
stöðu bókavarðar á bæjarstjórnarfundi þ.
29. sept. s.l. Bæjarbúar og reyndar lands-
menn allir hafa fylgst með gangi þessa
máls í fjölmiðlum, þannig að ekki er á-
stæða til þess að fjölyrða um aðdraganda
eða úrslitin á þessum vettvangi. Mjölnir
telur þó rétt að birta bókanir Alþýðufl.
og Alþýðubandalagsins um málið:
Bókun Alþýðuflokksins
„Eftir það, sem undan er gengið í sam-
starfi meirihlutaflokkanna á undanförnum
vikum í sambandi við kosningu á manni
} starf bókavarðar, lýsir Alþýðuflokkurinn
megnustu andúð á framferði samstarfs-
flokkanna, sem hann telur óafsakanlega
pólitískt séð og vítaverða gagnvart manni,
sem í 30 ár hefur helgað málefnum bæjar-
ins og verkalýðshreyfingarinnar nær allar
sínar frístundir.
Alþýðuflokkurinn áskilur sér rétt til að
hafa frjálsar hendur í samstarfi við meiri-
hlutaflokkana tvo — Sjálfstæðisflokkinn
og Framsóknarfiokkinn — um málefni
Siglufjarðarkaupstaðar.
Alþýðuflokkurinn styður á hvern þann
veg, sem hann álítur heppilegan, þau fram-
fara- og hagsmunamál, sem bærinn hefur
með höndum og framkvæma þarf á kjör-
tímabilinu.“
Þessi samþykkt var gerð á fundi Alþýðu
flokksfélags Siglufjarðar.
Bókun Alþýðubandalagsins
„Fulltrúar AB telja að við ráðningu bóka
varðar að Bókasafni Siglufjarðar, hafi
verið staðið af pólitísku ofstæki og lág-
kúru. Bæjarfulltrúar AB telja að rétt hefði
verið að framlengja mnsóknarfrest um
stöðuna. Þegar sú tillaga var felld ákvað
trúnaðarmannaráð Alþýðubandalagsins á
Siglufirði og bæjarfulltrúar að stuðla að
kosningu Jóhanns G. Möller. Þó að Jóhann
hafi aðrar skoðanir en undirritaðir, teljum
við hann hæfastan af þeim umsækjendum
sem til greina koma um stöðuna. Þar að
auki teljum við fulltrúar Alþýðubandalags-
ins að fullt tillit beri að taka til þess að
Jóhann G. Möller hefur starfað að málefn-
um bæjarins og íbúa hans í tugi ára, oft
í ábyrgðarmiklum stöðum.“
Hlutur framsóknar
Afstaða bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins er hvorttveggja í senn skiljanleg og
mannleg í þessu máli, enda munu fæstir
liggja þeim á hálsi stuðninginn við Óla
Blöndal, en sama verður ekki sagt um
framsóknarfulltrúana. í þessu máli sem
reyndar mörgum öðrum sýnir Bogi Sigur-
björnsson enn einu sinni pólitískt ofstæki
sitt og íhaldsþjónkun. Þar við bætist per-
sónuleg óvild hans í garð Jóhanns Möller,
en hún virtist vera leiðarljós Boga í meiri-
hlutasamstarfinu sáluga. Margir óbreyttir
framsóknarmenn eru löngu orðnir þreyttir
á yfirgangi og frekju Boga og mun nú
hafa flóð útúr hjá mörgum þeirra. Sagt er,
að enginn af vara-bæjarfulltrúum fram-
sóknar hafi viljað standa að ráðningu Óla
með Boga og íhaldinu, og hafi neitað að
mæta á bæjarstjórnarfundinum. Því varð
Skúli Jónasson að endasendast norður í
land úr Reykjavík til þess að bjarga Boga
úr klípunni. Finnst mörgum að Skúli hafi
furðu lítið geð að láta hafa sig til slíkra
óþrifa-verka. Lengi skal manninn reyna,
og ekki eru þeir félagar búnir að bíta úr
nálinni vegna þessa. Óánægjan kraumar og
sýður innan flokksins vegna herleiðingar
framsóknar í bæjarstjórn ekki síður en
ríkisstjórn. Forustu menn framsóknar hafa
nú opinberað sitt rétta íhaldsandlit svo
ekki verður um villst.