Mjölnir - 25.05.1978, Síða 4
Bæjarmálastefnuskrá
Alþýðubandalagsins
í Siglufiröi fyrir kjörtímabilið 1978 — 1982
Síðar hluti
Málefni aldraðra og öryrkja
AB mun beita sér fyrir því að samþykkt
bæjarstjómar frá 20. maí 1978 varðandi bygg-
ingu húsnæðis fyrir aldraða verði að raun-
veruleika, en ekki látið sitja við orðin tóm.
í skipulagsmálum verður að taki fullt tillit til
þarfa aldraða og öryrkja.
Frekari gaum verður að gefa félagslegri þörf
og aðstöðu þessara aðila í bæjarfélaginu en
hingað til, enda telur AB það sjálfsagt verkefni
bæjarfélagsins.
Félagsheimili
Skortur á aðstöðu hefur háð ýmiss konar fé-
lagsstarfsemi í bænum og er þar nærtækast að
nefna 'leikstarfsemi og tónmennt. AB mun
beita sér fyrir því að viðunandi lausn verði
fundin á þessum vanda og telur að stefna beri
að því að koma upp félagsheimili í kaupstaðn-
um.
Sögu- og safnamál.
Þó að Alþýðubandalagið sé flokkur framtíð-
arinnar mun það einnig líta til fortíðarinnar.
Flokkurinn mun því hlynna að hverri þeirri
viðleitni, sem sýnd er til að bjarga fornum
menningararfi, hvort sem er með söfnun og
varðveislu gamalla muna og minja eða skrá-
setningu sögulegs efnis.
(þróttamál
Alþýðubandalagið lítur svo á, að ein af
megin stoðum þess, að bæjarfélagi sé byggilegt
og bjóði upp á framtíðarmöguleika til vaxtar og
viðgangs, sé aðbúnaður á sviði íþrótta- og fé-
lagsmála sem fullnægjr kröfum tímans og sé
sambærilegur því, sem annarsstaðar býðst.
Alþýðubandalagið leggur áherslu á að strax í
upphafi þess kjörtímabils, sem í hönd fer, verði
mörkuð stefna um uppbyggingu íþróttamann-
virkja.
Alþýðubandalagið telur, að öll meiriháttar
íþróttamannvirki eigi að vera í eigu bæjarins og
að gera eigi íþróttaféfögunum kleift að halda
uppi þróttmiklu starfi.
Umhverfismál og útlit bæjarins
Hafið verði strax í sumar að fjarlægja
vanhirt og ónýt hús og bryggjur á kostnað
eigenda, í samræmi við ítrekaðar samþykktir
bæjarstjómar á síðustu árum.
Ýmis konar svæði og illa hirtir túnblettir
verði skipulögð og snyrt. Ráðinn verði garð-
yrkjuráðunautur til starfa fvrir bæjarfélagið og
einstaklinga.
Áfram verði unnið að lagningu varanlegs
slitlags á götur bæjarins eftir því sem fjármagn
og aðstæður leyfa. Lögð verði áhersla á að
hraða jarðvegsskiptingu í götum utan Hyrar-
innar.
Þess verði gætt, að við snjómokstur á götum
verði ekki notaðar þær þungavinnuvélar, sem
valda stórskemmdum á steyptum götum bæj-
arins og gangstígum.
Strax verði gerðar ráðstafanir til þess að
koma sorpeyðingunni í viðunandi horf og ekk-
ert til þess sparað. Með því yrði í eitt skipti fyrir
öll komið í veg fyrir þann sóðasvip, sem sorp-
haugarnir setja á bæjinn og fjörðinn. Hreinsað
verði í kringum gömlu sorphaugana á Saur-
bæjarási og við botn fjarðarins í sumar.
Unnið verði að því að friðlýst verði sem úti-
vistarsvæði ströndin austan Siglufjarðar, norð-
an Staðarhóls, ásamt Kambalágum og Kálfs-
dal.
Bæjarstjórinn marki ákveðna stefnu um
hversu haga skuli umgengni manna við verk-
legar framkvæmdir, bæði í bæjarlandinu og
utan þess.
OPIÐ HÚS
Opið hús verður í Suðurgötu 10 föstudaginn 26. maí n.k.,
kl. 8,3o e. h. — Kaffiveitingar verða og rabbað um
kosningarnar. Sitthvað verður til skemmtunar og fróð-
leiks. Allt stuðningsfólk G-listans velkomið.
G-listinn
SIGLFIRÐINGAR
Eftirtaldar trjá- og runnaplöntur frá 23. Ambra 600.00
Skógræktarstöðinni á Vöglum verða á 24. Fjallarifs 800.00
boðstólum: 25. Rifs 800,00
26. Humall 1000,00
VERÐ: Pottar 27. Rauðyllir, beð 600,00
28. Sib. baunatré 600,00
1. birki oo—125 cm 1050,00 29. Glansmispill 700,00
2. Birki 75—100 — 800,00 30. Bogsírena 800.00
3. Birki 50— 75 — 550,00 31. Bergfura 40 cm 1000,00
4. Limgerði, beð .. 300.00 32. Broddfura 40 cm 1100,00
5. Reyniviður. hnaus 33. Lindifura, beð 40 cm 1000,00
150—2oo cm 2.000,00 34. Blágreni 40 cm 1000,00
6. Reyniviður, hnaus 35. Sjtkagreni 40 cm 1000,00
125—150 — 1.500,00 36. Fjallaþinur 40 cm 1000,00
7. Reyniviður 75—100 — 750,00 37. Runnamura 650,00
8. Elri 40— 50 cm 800,00 38. Loðvíðir 250,00
9. Alaskaösp. beð 125—150 cm 850,00 39. Hengimispill 1200,00
10. Alaskaösp . 100—125 900,00
11. Alaskaösp . 75—100 800,00 Nokkrar af pottaplöntutegundum fást einnig
12. Alaskavíðir, beð 200.00 sem beðplöntur og eru þá ódýrari. Tilgreint
13. Brekkuvíðir, beð 200.00 verð er yfirleitt lágmarksverð; stærri plöntur
14. Glitviðir, beð 250.00 eru dýrari. Hnausplöntur fást af sitkabastarði,
15. Viðja.beð 180,00 rauðgreni, hvítgreni og lerki.
16. Birkikvistur .... 650,00 Ásdís, Svana og Svava taka á móti pöntun-
17. Bjarkeyjarkvistur 700,00 um, sem burfa að berast fyrir 31. maí. Þær veita
18. Garðakvistur .. . 700,00 einnig nánari upplýsingar.
19. Dögglingskvistur 700,00 Félagar í Garðyrkiufélaginu, sem ætla að
20. Blátoppur 800,00 panta haustlauka, eru beðnir að skila pöntun-
21. Rauðtoppur ... 700,00 arlistum fyrir sama tíma.
22. Glæsitoppur ... 800,00
IVQölnír
Ctgef.: Alþýðubandalagið í Norðnrlandskjördæm i vestra
ÁÞyrgSarmaSur: Hannes Baldvlnsson. — AfgreiSsla: SuSurgðtu 10, SlgluflrSI.
Slml 7 12 94. Girónúmer 71294. - SiglufjarðarprentsmlSJa h.f.
íþróttavöllurinn enn
látinn bíða
Slæmt ástand íþróttavallar-
ins hefur löngum verið Sigl-
firskum knattspymumönnum
til trafala og ár eftir ár hefur
verið lofað úrbótum. Á síðasta
ári var því lofað og sett á verk-
efnaskrá, að völlurinn skyldi
endurbyggður og tilbúinn til
notkunar í byrjun keppnis-
tímabils í sumar. Ekkert hefur
bólað á byrjunarframkvæmd-
um enn og blaðið hefur fregnað
að ákveðið hafi verið að fresta
þeim þar til í byrjun ágúst
a.m.k. en þá eru afstaðnir þeir
kappleikir, sem hér eru á-
kveðnir. Það er slæmt að svona
skuli að málum staðið, ýmsan
undirbúning að þessu hefði
mátt vinna s.l. haust, svo sem
jarðvegsskipti, því þá væri nú
hægt að yfirkeyra völlinn með
því sérstaka efni, sem sagt var
að pantað væri, en á daginn er
komið að það er enn ekki til-
tækt og óákveðin afgreiðsla á
því.
Það má því segja að skárra sé
að fresta þessum framkv. en
hefja þær og eyðileggja með því
sumartímabil knattspymu-
manna, því varla er völlurinn
miklu verri í ár en öll hin árin.
En í ágúst ættu íþróttamenn
að minna á sig og linna ekki
látum fyrr en byrjað verður á
jarðvinnslu við völlinn.
Siglufjarðarkaupstaður 60 ára
Kaupstaðarafmælis Siglu-
fjarðar var minnst með hátíða-
höldum þann 20. maí s.l., en þá
voru liðin 60 ár frá því að
Siglufjörður fékk kaupstaðar-
réttindi. Nefnd á vegum þjón-
ustuklúbbanna í bænum ásamt
fulltrúa frá kaupstaðnum önn-
uðust undirbúning. Hátíða-
höldin hófust á íþróttavellinum
með lúðraþyt og knattspyrnu-
keppni. Sýning á verkum Her-
berts Sigfússonar var í Gagn-
fræðaskólanum og var hún
mjög vel sótt og svo til allar
myndirnar á sýningunni seld-
ust. Um Ityöldið var hátíða-
dagskrá í Nýja Bíó, sem þótti
takast með ágætum. Aðalræð-
ana flutti Jóhann Jóhannsson
;yrv. skólastjóri og mæltist
honum vel og skörulega. Tón-
listarflutning önnuðust Litla
lúðrasveitin, Gautar, kennarar
Tónlistarskólans að ógleymd-
um kór Kiwanisfélaga.
Þessi hátíðasamkoma var vel
sótt og þótti takast vel.
Bæjarstjórn kom og saman til
sérstaks fundar, þar sem sam-
þykkt var tillaga um að ráðast í
byggingu íbúða fyrir aldraða. Á
þessum fundi voru þeir og
kvaddir innvirðulega Knútur
Jónsson, Sigurjón Sæmundsson
og Sigurður Fanndal, en' þeir
láta nú af störfum í bæjarstjórn.
Sigurjón og Knútur hætta
í bæjarstjórn
Tveir bæjarfulltrúar, sem
lengi hafa setið í bæjarstjórn og
verið í forustu sinna flokka, láta
nú af störfum á þeim vettvangi,
þeir Sigurjón Sæmundsson og
Knútur Jónsson.
Sigurjón hefur setið í bæjar-
stjórn í 2o ár og var bæjarstjóri í
rúm 8 ár. Sigurjón hefur jafnan
verið atkvæðamikill á sviði
bæjarmálanna og um hann
hefur gjarnan staðið styrr.
Knútur Jónsson hefur setið í
bæjarstjórn frá 1966 og á s.l.
kjörtímabili hefur hann verið
forseti bæjarstjórnar, og naut
hann trausts og virðingar í því
embætti.
Báðir þessir bæjarfulltrúar
voru kvaddir á bæjarstjórnar-
fundi 20. maí s.l. og voru þökk-
uð störf í þágu kaupstaðarins.
enn fremur var Sigurði Fann-
dal þökkuð seta í bæjarstjórn.
en hann hefur ekki gefið kost á
sér til starfa á þeim vettvangi
um sinn a.m.k.
Bærinn greiðir ekki fullar
vísitölubætur á laun
Bæjarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins fluttu um það til-
lögu við afgreiðslu fjárhags-
áætlana bæjarins, að starfs-
mönnum kaupstaðarins yrði
greidd óskert vísitala á laun.
Bæjarfulltrúarnir bentu á, að í
öllum fjárhagsáætlunum bæj-
arsjóðs og stofnana kaupstað-
arins fyrir árið 1978 væri gert
ráð fyrir að samningarnir sem
gerðir voru í júní og nóvember
s.l. væru í fuílu gildi. Þessi til-
laga var að sjálfsögðu felld með
atkvæðum íhalds og framsókn-
ar og Sigurjóns Sæmundssonar,
en Jóhann Möller greiddi at-
kvæði með tillögunni.
Bæjarráð samþykkti að
hýrudraga þá bæjarstarfsmenn,
sem þátt tóku í aðgerðunum 1.
og 2. mars. Bæjarfulltrúum Al-
þýðubandalagsins ásamt Jó-
hanni Möller tókst að koma í
veg fyrir að frádrátturinn næmi
meiru en dagvinnu, en bæjar-
ráð hafði gert ráð fyrir 16% frá-
drætti.
MJÖLNIR — 4