Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Side 15

Fylkir - 23.12.1965, Side 15
JÓLABLAÐ FYLKIS 1965 P. V. G. KOLKA FÆDINGARSTOíNUNIN í VESTMANIAIYIUN Vestmannaeyingar höfðu lengi vel allmikla sérstöðu, að því er snerti sögu læknisfræðinnar á ís- landi og heilbrigðismál yfirleitt. Lifnaðarhættir manna hafa að vísu verið líkir og í öðrum verstöðvum áður fyrr, að því viðbættu, að fugla tekjan var stærri þáttur í atvinnu- lífi fólksins en annarsstaðar, en Vestmannaeyjar voru einkum ill- ræmdar sökum hins ógurlega ung- barnadauða. Hann var að vísu alls staðar mjög hár, en hér bættist við ginklofinn eða stífkrampinn á ung- börnum (tetanus noenatorum), sem drap meirihluta allra ungbarna á 5. til 12. degi eftir fæðinguna, svo að stofninn hélzt ekki við nema með sífelldum innflutningi fólks. Þannig er talið, að á síðasta ára- tugi 18. aldarinnar hafi sjö af hverj- um tíu ungbörnum dáið af gin- klofa, og líkt var ástandið fram um miðja 19. öld. Þetta varð þó til þess, að Vestmannaeyjar voru gerð- ar að sérstöku læknishéraði 1827 og var þá langminnsta og fámennasta asta læknishérað landsins. Fyrstu fimm læknarnir voru danskir menn og gegndu embættinu aðeins í fá ár hver og lítið varð þeim ágengt með lækningu á ginklofanum, sem vonlegt var. Einn þeirra, Halland, sem var læknir hér 1840—1845, kom með tillögu um að koma á fót fæðingarstofnun í Eyjum, og beitti sér mjög fyrir því máli, en ekki náði það fram að ganga að sinni. Síðastur þessara dönsku lækna var Davidsen, sem mun hafa verið Gyðingur, eða svo sagði mér Gísli heitinn Lárusson, og þótti hann nokkuð ágjarn. Hann var læknir í Eyjum í átta ár og dó þar 1860. Samtímis honum var danskur sýslu maður, hinn frægi kapteinn Kohl, og kom þeim ekki sem bezt sam- an, því að Kohl var ákaflega af- skiptasamur og gekk ríkt eftir því, að öllum fyrirmælum sínum væri fylgt. Vildi hann siða Vestmanna- eyinga, sem ekki var vanþörf á, og hótaði hörðum viðurlögum, ef brugðið var út af boðum hans. Hann skipaði svo fyrir, að læknar skyldu gefa dánarvottorð í öllum tilfellum, og hótaði réttarrannsókn og refsingu, ef það væri vani’ækt að sækja lækni eða veita nauðsyn- lega hjúkrun, enda lægi dauðarefs- ing við að lögum, ef mannsbani hlytist af hirðuleysi, en dánarvott- orð skyldi læknir láta ókeypis. Davidsen þótti hart að búa undir hvi, enda var líkskoðun borguð þá með tveimur ríkisbankadölum i Danmörku. Urðu af þessu mjög miklar bréfaskriftir milli sýslu- manns og héraðslæknis, sem leit- aði ásjár hjá landlækni, en hann á- kvað hálfa greiðslu fyrir læknis'- verk við það sem tíðkaðist í Dan- mörku. Sennilega hafa þó orðið Hálfdánarheimtur á þessu hjá lækn inum, enda var þá fátækt mikil í Eyjum og gjaldþol því lítið. Hér Páll V. G. Kolka. skal til gamans birt upphaf af bréfi Davidsens til landlæknis í ís- lenzkri þýðingu og gefur það hug- mynd um þann stíl, sem hafður var á bréfum til háttsettra embættis- manna á þeim tímum: „Velborni herra jústitsráð, land læknir dr. Thorstensen. Með hinu innilegasta og hjart- anlegasta þakklæti fyrir heiðr- að bréf Yðar velborinheita, mér svo ástúðlegt og hliðhollt frá 30. desember, meðtekið hinn 9. febr- úar, ásamt yðar velvilja og fús- leika í því að veita mér upplýs- ingar og leiðbeiningar í því, sem viðkemur embætti mínu, og enn- fremur þær velmeintu óskir, sem þér berið í brjósti mér til láns og lukku í embætti mínu nú og framvegis, tek ég pennann mér í hönd til þess að votta Yð- ar velborinheitum mitt virðing- arfyllsta þakklæti og leyfi mér nú að notfæra mér þennan yð- ar velvilja og gæzku o. s. frv.“ Árið 1847 sendi danska stjórnin lækni til að rannsaka ginklofann í Vestmannaeyjum og heilbrigðis- mál landsins yfirleitt. Það var dr. P. A. Schleisner, sem ferðaðist hér víða um landið og ritaði síðan merkilega bók um heilbrigðisástand ið hér. Samkvæmt tillögum hans var sett á stofn fæðingarstofnun í Vestmannaeyjum og var hún til húsa í Garðinum: þangað var ráð- in ljósrhóðir, sem lært hafði í Kaupmannahöfn, Sólveig Pálsdótt- ir, en dóttursonur hennar var Matthías Einarsson, læknir. Fyrsta barnið, sem fæddist þar og hélt lífi, var Soffía Andersdóttir, síðar húsfreyja á Hóli, móðir síra Jes A. Gíslasonar og þeirra systkina. Dr. Schleisner áleit, að ginklofinn staf- aði af einhverskonar smitefni, sem væri í lundaholunum og bærist í föt ungbarna, en þau voru breidd til þerris á grjótgarða og þök torf- bæjar, eins og lundaræksnin, sem voru þurrkuð þar til eldsneytis. Þetta var mjög skarpleg ályktun, því að ginklofasóttkveikjan lifir í feitri mold, en bakteríur voru þá engar þekktar. Auk þess tók dr. Schleisner upp naflaolíu, sem um- búðirnar við naflasárið voru bleytt ar i, en hún er sótthreinsandi. Hall- dór læknir Gunlaugsson notaði í þessu skyni bórsýruduft og tók ég það eftir honum, en ginklofasótt- kveikjan þolir ekki sýru. Víst er um það, að þegar dró úr ungbarna- dauðanum, þótt einstök ginklofatil- felli kæmu fyrir, og sá ég tvö eða þrjú þau ár, sem ég var í Eyjum. Sólveig Ijósmóðir og maður henn- ar, Matthías Markússon, seldu sængurkonum á fæðingarstofnun- inni fæði og umhirðingu og voru þrír mismunandi taxtar. Fullt fæði var tevatn með sykri, hafrasúpa með sykri, vatnsgrautur, fiskur, mjólk og smúrt brauð með keti eða osti, og kostaði þetta ásamt þvotti og umönnun einn ríkis- bankadal. Flestum hefur verið .um of að greiða þann kostnað og því var hægt að fá vist þar fyrir fjög- ur ríkismörk, ef ekki þurfti að hirða líka um barnið, en ennfrem- ur gátu konur legið þarna fyrir að- eins tvö ríkismörk á dag, ef þær lögðu sér sjálfar til fæði annað en hafrasúpu og heitt vatn. Eldiviður, sápa, ljósmeti og umönnun fylgdi með í kaupunum. Einn ríkisdalur var sex ríkismörk, en hvert marlc 16 skildingar eða 32 aurar, en auð- vitað var verðgildi peninga annað þá en nú, sjálfsagt allt að því tvö- hundaðfalt. Fyrst eftir að Fæðingarstofnun- in tók til starfa, var vist þar ókeyp- is, en eftir að hún fluttist í húsið Landlyst, sem stjórnin mun hafa lagt henni til, átti sveitarsjóður Vestmannaeyja að standa straum af henni, og var árlegur kostnaður áætlaður 500 ríkisdalir. Þetta hefur verið þungur baggi, enda var fólks- fjöldinn um miðja síðustu öld ekki nema um 400 manns, en við það bættust um 250 vertíðarmenn á vetrum og hefur þá víða verið þröngt í húsum. Niðurstaðan varð sú, að Fæðingarstofnunin var lítið notuð eftir að hreppurinn lók við henni, og segir Davidsen héraðs- læknir í bréfi frá 6/4 1853, að kostn aðurinn hræði fólk frá að nota hana, og vilji því sýslumaðurinn taka hana til íbúðar handa sjálfum sér, enda íór svo. 1858 kærði David- sen undan þessu til heilbrigðisráðs- ins í Kaupmannahöfn, ennfremur, að fermingar og hjónavígslur færu fram án bólusetningarvottorða og að kaupmaður verzli ólöglega með lyf. Niðurstaðan varð eftir vitnis- burði ýmissa, að þessar kærur væru ástæðulausar og var þeim ekki sinnt. Ekki hef ég séð, hvenær Fæðing- arstofnunin var lögð alveg niður, en sennilega hefur hún ekki starf- að lengur en í mesta lagi fimm ár. Til er úttekt eða skýrsla um áhöld Frh. á 21. síðu.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.