Fylkir - 18.02.1966, Síða 3
FYLKIR
3.
UM VINNSLU...
Framhald af 2. síðu.
sinnar á þennan hátt.
Ef til vill má draga af þessari
grein nokkrar ályktanir í sambandi
við vatnsveitumál Vestmanna-
eyja. Stöð New York-borgar, sem að
framan er nefnd, mundi sennilega
fullnægja vatnsþörfinni hér fyrst í
stað, en alls ekki rafmagnsþörfinni.
Kostnaðurinn við bygginguna, sem
í New York var áætlaður 170 millj-
ónir króna, mundi hér örugglega
verða allmiklu hærri. Reksturs
kostnaður yrði einnig mun hærri
vegna innflutnings á orkugjafa
(uraníum 235) og sérmenntun
starfsfólks, þannig að selja yrði
vatnið mun hærra verði en þar var
áætlað (28—30 kr. pr. tonn). Það
virðist því augljóst, að ekki stærri
kaupstaður en Vestmannaeyjar
muni fráleitlega geta lagt út í slík-
ar framkvæmdir á næstunni a. m.
k. Nýlega hefur bæði í blöðum og
útvarpi verið sagt frá bandarískri
uppfinningu til að ná salti úr sjó
með eins konar síun. Eg hefi
hvergi séð nákvæma lýsingu á þess
ari aðferð, en hún mun í höfuðat-
riðum vera á þá leið, að sjó er
dælt með háum þrýstingi gegnum
pípur, sem að utan eru úr sterku,
en frauðkenndu efni, en að innan
klæddar með örþunnri himnu úr
gerfiefni, er hefur þann eiginleika,
að hún hleypir aðeins hinum
smærri sameindum (vatnsins) í
gegnum sig, en ekki hinum stóru
saltsameindum. Þetta er því eins
konar sía eða sigti, þar sem götin
eru minni en 1/1.000.000 úr m.met-
er. Þessháttar síur eru algengar í
ríki náttúrunnar, þar sem eru
frumuveggir lifandi vera. Frægt
dæmi eru fiskarnir, sem í ýmsum
vefjum og líffærum t. d. í kviðar-
holi hafa ósalt vatn, þrátt fyrir
það, að þeir hafa ekki aðgang að
neinu öðru en söltu. — Gerfiefna-
framleiðsla, )gem er jú stórum
dráttum aðeins eftirlíking þess, er
finnst í ríki náttúrunnar, hefur
fleygt ótrúlega fram á síðustu ár-
um. Það er því engan veginn óhugs
andi að slík himna, sem þarna er
um að ræða, hafi þegar verið fram-
leidd.
En einhverja meinbugi hljóta
Bandaríkjamenn, sem tvímæla-
laust eru meðal þeirra, sem lengst
eru komnir í þessum rannsóknum,
samt að sjá við þessa aðferð, þar
sem þeir leggja út í slíkar risafram
kvæmdir eins og kjarnorkurafstöðv
ar með drykkjarvatnsframleiðslu
sem annað höfuðmarkmið.
Af þessu virðist svo aftur mega
álykta, að þó nokkur bið muni ó-
hjákvæmilega verða á vinnslu
vatns úr sjó hér.
Björn Dagbjartsson.
línan
kemur frá
Svíþjóð
Enginn kúiupenni annar en BALLO-
GRAF er byggður jafn vísindalega
fyrir höndina. Hann hefur hina réffu
fiínu, sem gerir mönnum fært að
skrifa tímunum saman án þess að
þreytast.
BLEKKÚLAN er gerð úr sterkasta
efni, sem þekkist.
Oddurinn er úr ryðfríu stóli.
BLEKHYLKIÐ, sem er stórt og vand-
að, endist til að skrifa línu, sem er
10.000 metrar á lengd.
Skriftin er hrein - mjúk og jöfn.
epoca
Penninn, sem skrifar lengur - og betur
HEILDSALA:
ÞÓRÐUR SYEINSSON & CO. H. F.
ÚTSALA
Á mánudag, 21. janúar.
Komið og gerið góð kaup.
VERZLUNIN FRAMTÍÐIN.
LANDROWER
DIESEL.
til sölu. — Árgerð ’63. — Upp
lýsingar gefur,
GÍSLI BRYNGEIRSSON,
Sími 1568.