Fylkir - 18.02.1966, Blaðsíða 6
í \
Neðan frá sjó.
Málgago
SjóHstafli*
(lokÍMÍu
Gæftir: Þó að segja megi, að veðr
ið hafi verið skaplegt hérna í bsen-
um núna þessa dagana, þá er sann-
leikurinn samt sá, að í raun réttri
hefur aldrei verið sæmilegt sjóveð-
ur að undanförnu, eða að minnsta
kosti þessa dagana, sem af er vik-
unni. Eilífur austanþembingur, með
brimsúg til hafsins. Rétt hægt að
sækja á grunnmið, en ekkert hægt
að leita fyrir sér á djúpslóðinni
eða austur frá, en þar er helzt fisk
að fá.
Línubátarnir: Almennt var róið
alla seinustu viku og þar til á
þriðjudaginn var. Á miðvikudag-
inn var ekki almennt róið og í gær.
Aflabrögð hafa verið eftir at-
vikum, og hjá sumum alveg ágæt,
og þá einkum, ef bátarnir komust
eitthvað austur á bóginn, í Fjallasjó
inn, að ég tali nú ekki um austar.
Sjómenn segja ekki vafa á, að væru
aðstæður til vegna veðurs, myndi
vera sæmilegasti reitingur á lín-
una.
Aflinn: Þó ótíðin hafi verið mik-
il, þá reitist alltaf eitthvað upp.
Á þessum tíma árs, hefur sjálfsagt
oft á tíðum verið kominn meiri
afli á land hér í Eyjum en nú. Eigi
að síður er rétt að geta afla hæstu
bátanna. Og hér er aflaskýrslan:
Allt eru þetta línubátar (talið í
tonnum á miðvikudag):
Júlía ....................... 85
Skálaberg ................... 85
Björg ....................... 84
Glófaxi ..................... 83
Sæfaxi ...................... 77
Sæbjörg ..................... 75
Netabátarnir: Það hefur verið al-
veg steindautt í netin. Og það svo,
að sumir bátarnir hafa lagt netin
til hliðar, ef svo má að orði kveða
og tekið til við botnvörpuna. Ufs-
inn, sem var aðalbjargvætturinn
hjá netabátunum fyrripart vertíðar
innar í fyrra, sést nú ekki.
Botnvarpan: Það var alllíflegt
hjá bortnvörpubátunum, að m. k.
sumum fyrir síðustu helgi. Fengu
þá nokkrir bátar góða túra. Síðan
hefur aflinn minnkað, enda veðr-
áttan slæm, lélegt næði og önnur
óáran aðsteðjað.
Loðnan: Önnur loðnuganga virð-
ist vera að ganga á miðin. Voru
stórir loðnuflekkir hér innan af
Eyjum, hart uppi í sandi, núna fyrri
part viku. Þar fengu margir bátar
mjög góð „köst“ á þriðjudaginn.
og í gær. Margir Eyjabátar með
fullfermi, um og yfir 2000 tunnur.
Alls hefur komið á land hér
62052 tunnur af loðnu. Hér fer á
eftir afli nokkurra báta. Tekið skal
fram, að einhverjir eftirtalinna
báta munu hafa landað einhverju
magni í öðrum höfnum svo þessi
SKRIFSTOFA
SJÁFSTÆÐISFLOKKSI NS
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Vinnslu-
stöðvarhúsinu hefur nú verið opnuð að nýju.
Verður skrifstofan opin alla virka daga frá
kl. 5-7 e. h.
Sjálfstæðismenn og stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins er
hvatt til þess að mæta á skrifstofunni og láta í té upplýsingar er
að haldi mega koma í sambandi við starf flokksins.
STJÓRN FULLTRÚARÁÐSINS.
t
Oddjeir Kristjdnsson
tónskáld, lótinn
Sú sorgarfregn barzt um bæ-
inn í dag, að hinn góðkunni
borgari Oddgeir Kristjánsson,
tónskáld og kennari hefði orðið
bráðkvadur um 10-leytið í dag.
Hann var aðeins 54 ára að aldri.
Oddgeir Kristjánsson starfaði
allan sinn aldur hér í Eyjum,
fyrst við verzlunarstörf og síðan
við kennslu.
Lengst verður hans þó minnzt
fyrir þau ómetanlegu störf, er
hann vann í þágu menningar-
mála í bænum með sínu þrot-
lausa starfi á sviði tónlistarinn-
ar.
Blaðið sendir hans nánustu
sínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
skýrsla segir ekki alveg nákvæm-
lega til um aflamagnið. (Talið í
tunnum á miðvikudag):
Gjafar .................... 9115
Gullver ................... 5773
ísleifur IV................ 5200
Bergur .................... 4800
Huginn .................... 4796
Viðey ..................... 3375
Kap II .................... 3154
Frá Hornafirði: Eg átti tal við
góðan mann á Hornafirði núna í
vikunni, spurði hann frétta um
aflabrögð. Lét hann vel af sagði,
að veðráttan hefði verið þar slæm
sem hér. Stunda 6 bátar línuveiðar
og hefur aflinn hjá þeim verið
þetta 9—12 tonn í róðri og komist
upp í 16 tonn. Aflan sagði hann
vera að þrem fimmtu hlutum löngu,
en hitt ýsu og þorsk. Nú væri hins
vegar komin bullandi loðna á mið-
in, og mætti þá gera ráð fyrir, að
það færi að styttast í línuvertíðinni
og bátarnir færu að búast á neta-
veiðar.
SUMARBÚ9IR
Framhald af 1. síðu.
hvert byggðarlag, (tvö eða fleiri
saman, þar sem það þætti henta),
byggðu og önnuðust að öllu leyti
um sitt hús, sem verið gæti svefn-
skáli unglinga þess og fararstjóra,
og hefði byggðarlagið, að öðru
leyti, fullan umráðarétt yfir því.
Allar líkur eru til, að einhver af
aðilum sumarbúðanna muni koma
sínum húsum upp í sumar. En
hvaða ákvörðun tökum við? Þeir,
sem hafa með höndum stjórn bæj-
arins, hafa þegar sýnt málinu góð-
an skilning í orði og athöfn, svo að
ekki er rétt að ætlast til meira af
þeim í bili. Nú þarf þetta að verða
áhugamál almennings í bænum.
Félög ungs fólks, s. s. skátar, í-
þróttamenn og aðrir slíkir ættu sem
fyrst að taka þetta mál til athugun
ar. Sömuleiðis stjórnir þeirra fé-
laga, sem mikils meta hag æskunn
ar og heiður okkar bæjar. Það er
sómi fyrir íslenzka kirkju, að hafa
tekið upp forustu í uppbyggingu
sumarbúða, og er ég þess fullviss,
að áhugamenn hennar hér, muni
gera allt, sem í þeirra valdi stend-
ur til þess að Vestmannaeyingar
verði, í þessu efni, engir eftirbátar
annarra.
Innan tíðar mun sr. Bragi Frið-
riksson koma hingað með teikning-
ar fyrirhugaðra húsa, kostnaðará-
ætlanir og aðrar upplýsingar um
það, sem gert hefur verið og fyrir-
hugað er.
Steingrímur Benediktsson.
A E G
sjálfvirku þvottavélarnar
komnar aftur.
Har. Eiríksson h. f.
Sími 1966.
Þjóðkirkjan: Messað n. k. sunnu
dag kl. 2 e. h. Séra Þorsteinn L.
Jónsson, prédikar.
Betel: Almenn samkoma n. k.
sunnudag kl. 4,30 e. h. Barnaguðs-
þjónusta kl. 1 e. h.
Afmæli: Sigfús Sveinsson, Heið-
arveg 35, verður 50 ára 22. þ. m.
Eggert Brandsson, Kirkjufelli,
verður 60 ára 19. þ. m. Guðjón Jóns
son, vélsmiður, Hásteinvegi 28,
verður 75 ára 22. febrúar n. k. —
Fylkir óskar afmælisbörnunum
allra heilla.
Hjónaband: Þann 12. þ. m. voru
gefin saman í hjónaband af séra
Jóhanni Hlíðar, ungfrú Helga Sig-
tryggsdóttir frá Reykjavík og Elí-
as Fannar Óskarsson, Kirkjuvegi
20.
Húsakaup: Ágúst Bjarnason, kaup
maður hefur selt verzlunar- og í-
búðarhús sitt við Heiðarveg. Kaup-
andi er Óskar Þ. Johnson, bóksali.
Bridgeáhugamenn: Spilað verður
í kvöld kl. 20,00 í Akógeshúsinu. Ef
næg þátttaka fæst verður komið á
sveitarkeppni. Allir áhugamenn eru
velkomnir. — Upplýsingar veita:
Björn Dagbjartsson, sími 2101.
Guðmundur Karlsson, sími 2259.
Gunnlaugur Axelsson, sími 1767.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur opnað
skrifstofu sína í Vinnslustöðvarhús
inu við Strandveg. Skrifstofan er
opin alla virka daga frá kl. 5—7.
FUS EYVERJAR
halda kvikmyndasýningu í Sam-
komuhúsinu (Iitla salnum) föstu-
daginn 18. febrúar kl. 9 e. h. Sýnd-
ar verða eftirtaldar myndir:
1. Berlín, þolraun frelsisins,
myndin sýnir söguleg at-
vik frá Berlín allt frá seinni
hluta 3ja áratugs 19. aldar
fram til 1961, að Berlínarmúr
inn var reistur.
2. Night of the dragon, ný
mynd frá VIETNAM, og bar-
áttunni við hryðjuverkamenn
Viet-kong.
3. Eðli ofbeldisins, í þessari
mynd er gerð grein fyrir eðli
ofbeldisstefna, svo sem komm
únisma, er byggja framgang
sinn á valdbeitingu, en ekki
vilja fólksins.
Myndirnar eru allar með íslenzku
tali. — Allir velkomnir. — Aðgang-
ur ókeypis.
Stjórn Eyverja.
SKYRTUR
Ambassador,
hvítar með smellu.
Verð 515 kr.
ALFÖT H.F.
Sími 1816.