Fylkir - 16.06.1967, Síða 1
19. árgangur.
Vestmannaeyjum, 16. júní 1967
21. tölublað.
AAJmtsm ánm M ii
Kjósendur votta stjórninni traust.
Þá eru kosningar afstáðnar, og
spennan, sem jafnan einkennir þær
og vikurnar fram að þeim, um garð
gengin. Atkvæði hafa verið talin
og úrslit kunngerð, og vilji þjóð-
arinnar í ljós leiddur um það,
hversu skuli haldið málum henn-
ar og hverjir þeim stjórna.
í Ijós hefur komið, að meirihluti
þjóðarinnar kýs að hafa áfram
sömu stjórn og verið hefur tvö
síðustu kjörtímabil. Er það óræk
sönnun þess, að vel hefur verið
haldið á stjórnartaumunum, enda
munu þess ekki dæmi, að þrívegis
hafi verið kjörin sama stjórn til
landsmála á íslandi. Þessar kosn-
ingar eru því fyrst og fremst sigur
fyrir ríkisstjórnina, sem hefur stað
ið af sér moldviðri, sem andstöðu-
flokkarnir hafa þyrlað upp fyrir
kosningarnar. En staðreyndin er
sú, svo að ekki verður um villzt, að
næstu fjögur ár fáum við að öllum
líkindum að búa við sömu stjórn
og verið hefur, og er það vel. Að
vísu gat forsætisráðherra þess, þeg-
ar kosningar voru um garð gengn-
ar, að ekki hefði verið rætt um
það innan stjórnarflokkanna, hvort
áframhaldandi samstarf yrði, en öll
líkindi virðast fyrir því, enda hef-
ur það verið með ágætum allan
þann tíma, sem núverandi stjórn
hefur verið við völd. Væri vel fyr-
ir land og þjóð, ef sú samsíaða, er
einkennt hefur stjórnina, yrði á-
framhaldandi á kjörtímabilinú.
Það er ekkert launungamál, að
Sjálfstæðisflokkurinn ‘ kemur ekki
eins sterkur frá þessum kosning-
um og oft áður. í sumum kjördæm-
um hefur hann misst fylgi, en aft-
ur á móti hefur hann aukið fylgi
sitt í öðrum, svo sem í Suður-
landskjördæmi.
Þetta er ekkert óalgengt, þegar
í hlut á flokkur, sem hefur sterkari
aðstöðu í stjórn og verður þvi
gagnrýndur meira en hinn aðilinn,
þ.e.a.s. Alþýðuflokkurinn. Sterk-
ari aðilanum verða kennd þau mis-
tök, sem átt hafa sér stað, og Al-
þýðuflokksmenn voru einnig afar
duglegir við að eigna sér þau verk
sem vel hafa verið leyst af hendi
á síðasta kjörtmabili, og voru að
miklu leyti verk Sjálfstæðisflokks-
ins, þótt aðrir eignuðu sér þau.
En það er að jafnaði erfiðara að
vera í stjórn en í stjórnarandstöðu,
Fyrir nokkru var þess getið í
blaðinu, að fyrir dyrum stæði lands
keppni milli barna og unglinga.
Var einn þátttakandinn héðan úr
Eyjum, Kolbrún H. Kolbeinsdótt-
ir. Keppnin fór fram á Laugarvatni
um síðustu helgi, og urðu úrslit
þau, að Kolbrún varð sigurvegari
í sínum aldursflokki og þar að auki
langsamlega stigahæst yfir allt mót
ið, með 2904 stig, en sú næsta í
röðinni hafði 2889 stig.
Stigin eru gefin með hliðsjón af
aldri t.d. getur sá sem er 12 ára
náð sömu stigatölu og sá, sem er
13 ára, þótt árangurinn sé ekki
eiris góður.
í aldursflokki stúlkna, fæddar
1954, varð Kolbrún, eins og áður
er sagt, stigahæst með 2904 stig.
Sú, sem varð önnur í röðinni í
þeim aldursflokki fékk 2694 stig,
svo að sjá má, að hér hefur verið
um nokkra yfirburði að ræða.
Keppt var í 3 greinum, 60 m.
hlaupi, hástökki og knattkasti. Ár-
angur Kolbrúnar varð sem hér
segir:
60 m. hlaup ..............,..8,7 sek.
hástökk ...................1,22 m.
knattkast ................. 40,15m.
og yfirleitt víst talið, að stjórnar-
flokkur tapi fylgi. Mega Sjálfstæðis
menn í raun og veru vel við una,
að fylgistap þeirra skuli ekki vera
meira en það hefur sýnt sig að
vera. Það er að vísu ekki hægt að
segja, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
unnið sigur í þessum kosningum,
en það er á engan hátt hægt að
segja, að hann hafi farið halloka
heldur staðið fyrir sínu.
Aftur á móti er í fullri alvöru
hægt að tala um ósigur Framsókn
arflokksins í kosningunum, enda
Framhald á 3. síðu
Kolbrún H. Kolbeinsdóttir
Þess má geta, að Kolbrún hefur
náð betri árangri í þessum grein-
um hér heima, að því er þjálfari
hennar, Kjartan Másson tjáði blað-
inu.
Verðlaunin fyrir þessa ágætu
frammistöðu í mótinu eru flugfar
til Grænlands, sem Flugfélag ís-
lands veitir.
Um leið og við óskum Kolbrúnu
til hamingju með sigurinn, vonum
við að þetta afrek verði til að
vekja frjálsíþróttirnar úr þeim
dvala, sem þær hafa - legið í og
verði .til að skipa. þeim veglegri
sess en verið hefur.
■
Til siuðningsmanna
SjáifstæSisflokksins.
Að kosningum loknum viljum við tjá þakklæti okkar
öllum þeim mörgu, sem með beinni vinnu eða stuðningi
við Sjálfstæðisflokkinn stuðluðu að sigri hans hér í kjör-
dæminu. Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum sýndu í þess-
um kosningum, eins og áður, að á örlagastundu íslenzku
þjóðarinnar þekkja þeir sinn vitjunartíma og að þeir trúa
því og treysta að frjálst framtak einstaklingsins og frelsi
til athafna muni leiða þjóðina til meiri liagsældar en höft
og aukin afskipti ríkisvaldsins af gjörðum einstaklinga
þjóðfélagsins.
Munum við að sjálfsögðu í hvívetna virða þessa skoð-
un kjósenda okkar og endurtökum þakklæti okkar til allra
sem á einn eða annan hátt stuðluðu að sigri Sjálfstæðis-
flokksins hér í Suðurlandskjördæmi.
INGÓLFUR JÓNSSON, GUÐLAUGUR GÍSLASON
STEINÞÓR GESTSSON.
sigraði í keppninni