Fylkir - 06.12.1968, Síða 5
FYLKIR
ÞRAINN FERST
Síðastilðinn laugardag var haldinminningarathöfn utn þá, sem fór-
ust með vélbátnum Þráni, frá Landakirkju. Mikið fjölmenni var við
minningarathöfnina,
og stóðu félagar úr
sjómannafélögumim
heiöursvörú frá
kirkju að minnisvarð
anum.
PaU 11. Á*nason, Þor
laui/argerði, sen di
bíaðinu eftirf'arandi
m inningarljóð un i
þetwan
burð.
vulega at-
Þeir lögðu á djúpið með löngun í svip,
lífsglaðir, tápmiklir, íslenzkir drengir.
Að þreyta við hafið sín gjöfulu grip,
svo glúpni ei efnahags fárþandir strengir.
En vetur er kominn með svarra í svip
og sólargang styttir en nóttina lengir.
Það er enginn leikur að tefla það tafl
við taflkónginn Ægi, óvæginn og harðan.
Hans mislyndu dætur með ógnþrungið afl
óska ei hlutinn hans föður síns skarðan.
Hver holskefla rís eins og hrynjandi skafl
með lireinhvítan faldinn sinn stormhryðjum barðan.
Þeir tefldu á Þráni hinn þrautreynda leik
og þöndu sinn eyk eftir holskeflubökum.
Þó særinn sé sterkur, en súðin sé veik
og sorgin svo þung í þeim hamremmistökum
og náttmyrkrið svartkryddað sælöðurs reyk.
Það segir oft lítt frá þeim helþrungnu rökum.
En Drottinn tók stjórnvölinn sterklegri hönd
og stýrði í geiminn til landanna sinna.
í svipan var á höggvið ástvina bönd
og ógnlangt að horfa til nýaðra kynna.
Hrollköld og auð þeirra lieimila strönd,
og hrímsvalur þungi í brjóstum vor hinna.
Hver fjölskylda sjómanns á þjóðlega þökk,
þrautreynd af áhyggjum, sundruð svo löngiun.
En vegna þess stóra, í stríði hugrökk
og stéttin er mögnuð af bænum og söngvum.
Og ef verða slys, verður alþjóð vor klökk
frá innstu háfjöllum að skerjum og dröngum.
P. H. Á.
2T7 tli það hafi ekki marg-
ir búizt við breyting-
um á dagskrá sjónvarpsins er
ráðinn var nýr dagskrár-
stjóri lista- og skemmti-
deildar. Stemdór Hjörleifs-
son, hafði með þetta að gera
en hætti störfum, af hverju,
veit ég ekki. Svo vár'-^lðinn
nýr yfirmaður, Jón Þórar-
insson, tónskáld. Lengi get-
ur vont versnað, segi ég, því
hver ætli hafi búizt við þess
um ósköpum, sem í kjölfarið
fylgdu. Vinsælustu þættirn-
ir voru numdir brott úr
tíagskránni, og var sagt, að
almenningsálitið hefði verið
svo á móti þeim, að ekki
hefði verið stætt á því að
hafa þá áfram. Eg spyr,
hvað segir almenningsálitið í
þessum bæ? Skyldi það vera
mál manna, að föstu þætt-
irnir á föstudags- og sunnu-
dags- og mánudagskvöldum,
hefðu átt að víkja fyrir fram
haldsmyndaflokkum af mis-
jöfnum gæðaflokki? Eða
eiga kerlingabækurnar enda
laust að fá að tröllríða öllu
hjá sjónvarpinu eins og fleir
um. Ljótt væri, ef sjónvarp-
ið, sem fór svo vel af stað,
ætti eftir að sökkva í dý
þeirra fordóma.
/^vg svo að minnzt sé á
framhaldsmyndirnar.
Hvað heldur hinn nýi dag-
skrárstjóri, að hægt sé að
FRAMHALD Á
- FRAMHALD OFAN —
AÐSENT BRÉf UM SJÓNVARP
laginu. En hér set ég punkt,
og vænti þess og vona, að
sjónvarpið fari sömuleiðis
að, setji punkt, þar sem
hann á að vera, en ekki allt-
af kommu.
Dýrlingur.
bjóða fólki upp á margar
framhaldsmyndir? Látum
vera með eina í viku. En
þegar taka á upp slíkar sýn
ingar helming þeirra kvölda
sem sjónvarpið er, er þá
ekki komið fullmikið af svo
góðu? Langhundurinn um
Forsyte-ættina kvað endast
fram á sumar, og bindur því
að sjálfsögðu áhorfendur, er
vilja fylgjast með henni, við
tæki sínu öll mánudags-
kvöld, allt fram á vor. Við
vitum, að ekki er gaman að
missa úr mynd, sem sýnir
heila sögu, en er þetta þá
ekki fulllangt gengið. Þriðju
dagskvöldin eru einnig með
framhaldsmyndaflokk, þó
ekki eins langan í vöfum, en
þó slíkan, að ekki má missa
úr einn þátt, til að allt sé
farið úr samhengi. Og svo
var sunnudagskvöldið kórón
að, með því að fara af stað
með enn einn framhalds-
flokkinn. Eru þá Millistríðs-
árin ótalin með, en þau eru
auðvitað en mynd úr þess-
um flokki, þótt þar sé um
fræðslumynd að ræða.
~it /Teð þessu fyrirkomulagi,
XVA er verjg ag ganga á
hlut fólks. Það er eingöngu
fólk, sem situr heima hvert
kvöld, sem getur haft á-
nægju af þessu. Hinir, sem
ekki geta af ýmsum ástæð-
um bundið sig heima við á
hverju kvöldi, hljóta þess
vegna að hafa heldur bragð-
daufa ánægju af því, að sjá
kannski einn og einn þátt á
stangli og úr öllu samhengi
við það, sem áður hefur
gerzt í myndunum.
T~'g trúi því ekki að ég sé
■*■“' sá eini, sem er óánægð
ur með þetta ástand, og
skora því á fleiri að rísa upp
á afturfæturna og mótmæla.
Sé meirihluti áhorfenda hins
vegar ánægður með þetta, er
ekki annað að gera, en að
bíta í það súra epli að láta
sér þetta lynda áfram. En
ég er vantrúaður á, að' það
séu svo ýkjamargir, sem eru
ánægðir og býst við að fleiri
séu isama sinnis og ég og
vilji fremur hafa í sjónvarp-
inu stutta og sjálfstæða
skemmtiþætti.
Tjrvað ætli sé með hina
■*■ mörgu aðdáendur Dýr
lingsins, Harðjaxlsins, Hauks
og Mavericks? Eru þeir al-
gerlega búnir að fylgja þess-
um gömlu kunningjum sín-
um til grafar? Mætíi ég fyr-
ir minn smekk heldur fá þá
á ný, en að burðast með For-
syte og aðra Afglapa.
T raun og veru ætti ég að
■*• ljúka þessu spjalli mínu
með því að setja undir, fram
hald í næsta blaði eða blöð-
um, og væri þá að fullu far-
ið eftir sjónvarpsfyrirkomu-
Það er hægt að gleðja bréf
ritara með því, að nafni hans
kemur í heimsókn í sjónvarp
ið í kvöld. Verða ábyggilega
margir til að fagna honum.
JÓLALÝSING
Tengjum jólaljós í
kirkjugarðinum, laug
ardaginn 21. des. frá
kl. 1 til 5 eh. og sunnu
daginn 22. des. frá kl.
9 til 12 fh. og 1 til 5
c.h.
Tengigjald kr. 150 og
200.
Upplýsingar í Kjarna
Sími 2234.
kemnr út 20. desember c<