Fylkir - 22.05.1971, Qupperneq 1
14. tbl.
Svo oft getur bœjarstjórinn sngt
oð hflnn tndi með oð trún því sjdlfur
Þetta á við þeg-
ar hann er enn einu sinni i
Brautinni 25. þ. m. að reyna
að bera í bætifláka fyrir þá
hækkun, sem orðið hefur á
útsvörum hér í Eyjum síðan
að vinstri flokkarnir tóku
við. Allar fullyrðingar hans
um að niðurjöfnun útsvar-
anna hafi ekki verið hagstæð
ari fyrir allan almenning í
stjórnartíð Sjálfst.flokksins
heldur en nú, eru auðvitað
hreinar og margendurteknar
blekkingar, enda staðfesta
skýrslur Félagsmálaráðuneyt-
isins um niðurjöfnun útsvara
að svo er.
vegna ógreiddrar afborgunar
og vaxta. Eg hafði þessar upp
iýsingar frá lánastofnun, sem
vanskil þessi eru hjá, svo þar
fer ekkert milli mála, og jafn
vel þó að bæjarstjóri segði
satt frá ,að honum hefði tek
ist að velta einhverjum hluta
af þessum vanskilum yfir á
næsta ár, þá er það heldur
halcllítil afsökun, því eftir-
stöðvar af láninu, milli 4 og
5 milljónir króna eru. ann-
aðhvort fallnar eða komnar
að því að falla í gjalddaga,
og því miður mikil hætta á, að
lánið allt verði komið í van-
skil með vöxtum og vaxta-
vöxtum á þeim tíma, sem
þaö átti að vera greitt upp að
fullu, þrátt fyrir að þegar
sumpart er búið að leggja út-
svar á bæjarbúa eða ákveða
álögur á þá, til greiðslu á
þessu láni, eins og öðrum út-
gjöldum bæjarins, sem fyrir-
fram er vitað um.
ÓSfltt
Ag endingu.
Mm. bregður á glens í lok
greinar sinnar, og segir að
það sé nú aldeilis ekki hug-
mynd Alþýðuflokksins, að
fella sína eigin ríkisstjórn.
Við þetta hlýtur að vakna
sú spurning til hvers formað
ur Alþýðuflokksins, Gylfi Þ. j
Gíslason, hafi þá á s. 1. hausti
boðað til sameiginlegra við-
ræðna um hugsanlega sam-
einingu vinstri flokkanna.
annaðhvort fyrir eða eftir
kosningar.
Heldur Mm. að nokkur trúi
því, að hugmynd Alþýðu-
flokksins hnfi verið, ef slík
sameining hefði tekist, að
færa Jóhanni Hafstein alla
þingmenn þessara flokka á
silfurbakka og til að fá klapp
á kollinn fyrir dugnað við að
afla Viðreisnarstjórninni
traustari stuðning, en Al-
þýðuflokkinn einan.
Auðviteð vita allir, að svo
vur ukki. Heldur var Alþýðu-
j Lokkurinn að þessu vonlausa
fcrölti til þess að reyna að
koma aftur á vinstra sam-
starfi hér á landi, þó að það
feri ekki betur úr hendi en
raun varð á.
Guðl. Gíslason.
rn
Furðulegar yfirlýsingar Korls Guðjónssonar
Síðasta kjörtímabil Sjálf-
s.æðisflokksins var veittur af
s’.áttur frá álögðum útsvör-
um, ef ég man rétt frá 25 til
36% og sýna þessar sömu
skýrslur að þetta er meiri
afsláttur en nokkur annar
kaupstaður á landinu veitti á
þessum árum. Afsláttur af á-
lögðum útsvörum hefur í tíð
virstri stjórnarinnar verið frá
0 til 16% og getur hver og
cinn útsvarsgreiðandi gert
samanburð á þessum stað-
reyndum.
Ailar fu.llyrðingar bæjar-
stjóra um hagstæðari álagn-
ingarreglur hér en annarsstað
ar sem vegi þennan mismun
upp, eru nákvæmlego sömu
biekkingarnar, sem alveg er
tilgangslaust að bera á borð
fyrir þá aðila, sem til þessara
mála þekkja.
Er ósæmilegt að
skýra rétt frá?
Þá virðist skörin vera farin
að færast upp í bekkinn og
ekki allt með felldu þegar
bæjarstjóri telur ósæmilegt
að skýra rétt frá staðreynd-
um í sambandi við fjármál.
Eg benti á í síðasta Fylki, að
c-itt lán bæjarins væri komið í
vanskil, sem næmi 5.3 millj.
Eins og áður hefur verið
bent á hér í blaðinu, birti
K. G. ákveðna yfirlýsingau í
Brautinni 24. f. m. varðandi
framboð sitt.
Hann segir þar orðrétt:
„Eg hefi um hríð starfað
sem utanflokkamaður á Al-
þingi og utan flokka ætla ég
að vera.“
Mörgum Alþýðuflokksmann
inum mun hafa brugðið all-
vcruloga í brún, er þeir lásu
þessa yfirlýsingu K.G., að
hann muni að sjálfsögðu
þiggja stuðning Alþýðuflokks
ins til þingsetu, en að hann
vilji að öðru leyti ekkert iáta
bendla sig við þann flokk.
En þetta er ekki allt.
í kjördæmisblaði Alþýðu-
f’okksins, Sunnlendingi, 1. þ.
m., er rammagrein, þar sem
með feitu letri cr birt svar
K.G. við fyrirspurn, sem rit-
stjóri blaðsins beinir til hans.
Rammagroin þessi er þann
ig orðrétt:
„Ég geí mifí fyílsta
leyfi fi! endurpresif-
unar elírs fyrri
greina ccj ummæloc
Þegar biaðið benti Karli
Guðjónssyni á, að í blöðum
AJþýðubandalagsins væru
endurprentuð gömul ummæli
hans urn ýmis mál frá fyrri
kosningum og það gefið í
skyn, að nú hefði hann snú-
izt gegn ívitnunum, svaraði
hann:
„Eg gef mitt íyllsta leyfi til
endurprentunar allra fyrri
greina minna og ívitnana í
þæi’ — Eg munc’i meira að
segja skrifa fyrir þá nýjar
greinar í sama anda, ef þeir
óskuðu eftir þeim til birting-
ar. Það er sem sagt misskiln-
ingur, að ég hafi breytt um
afstöðu til okkar þjóðmála.
Það hefi ég ekki gert.
Aftur á móti finnst mér for
ystumenn hafi í baráttu fyrir
mörgum þeirra staðið sig
mjög illa og árangurinn sé
eftir því.“
í þessu svari K.G. koma
fr~m tvær ótvíræðar yfirlýs-
ingar.
í fyrsta lagi, að hann sé
cnn reiðubúinn að skrifa um
Alþýðuflokkinn og í sama
anda og meðan að hann var
e.m frambjóðandi kommún-
ista, þó að vitað sé að skrif
hans um Alþýðuflokkinn voru
á sínum tíma cinhver þau sví
virðilegustu, sem um þann
flokk og kjósendur hans voru
skrifuð.
í-uíta segist hann vera til-
búinn að endurtaka nú, þrátt
íyrir að hann er í þessum
kosnir.gum frambjóðandi Al-
þýðuflokksins.
Þá segir K.G., að það sé
m.'sski’.ningur að hann hafi
breytt um afstöðu til þjóð-
mála.
Verður þetta ekki skilið á
a.nnr.n vcg, en að hann hafi
( \ cg æt’.i sér, að hafa sömu
afstöð;: til þjóðmála og með-
an hann var fulltrúi kommún
ista á Alþingi, og fara þá all-
ar skýringar hans hversvegna
fcann yfirgaf fyrri flokk sinn,
scm hann er borinn og barn-
fædclur í, að verða haldut’ar.
-.Vel má vera ,að frá sjónar-
! óli K.G. sé þetta rJlt í lagi.
En ótrúlegt er annað, en að
kjósendum Alþýðuflokksins
íinnist það næsta furðu’eg
latína, að afstaða hans til
þjóðmála skuli enn í dag vera
sú sama og þegar hann var
einn af hörðustu línukommún
istum landsins og að hann sé
reiðubúinn .samkvæmt yfir-
lýsingum sínum, að skrifa
skammargreinar um Alþýðu-
flokkinn og kjósendur hans,
þrátt fyrir veru sína, sem
efsti maður á framboðslista
þeirra.
Og í kynningu flokkanna í
sjónvarpinu s. 1. miðvikudag,
klikkti K.G. út með yfirlýs-
irgu um, að ef hann yrði kos
inn og lenti í þingflokki Al-
þýcuí.'okksins, ætlaði hann
sér ckkert að fara verða sam
mála öðrum þingmönnum
flokksins, heldur halda þar
V-rti ágrciningi.
Þa j cr einmitt nákvæmlega
þetta sama, sem hann gerði
meðan að hann var í þing-
flokki Alþýðubandalagsins,
að hann varð algerlega ein-
angraður og áhrifalaus, bæði
þar, og á þingi.
Þao cr því ekki nema eðli-
legt, að fyrrverandi kjósend-
ur A’þýði flokksins spyrji
sjálfa sig að því, hverskonar
furðu fyrirbæri framboð K.
G. eigi"-lega sé og hvort ráða
ne-.in. flokksins í Reykjavík
ætlist \ irkilega til þess að
þc-ir vriti brautargengi manni
sem ekkert vill við flokkinn
kannast, lýsir yfir því, að
hann sé reiðubúinn að skrifa
skammargreinar um hann ef
þess sé óskað, muni fylgja
sömu stefnu í þjóðmálum og
meðan að hann var enn þing-
maður kommúnista og loks
að hann ætli sér að skapa á-
greining og vandræði innan
þingflokksins, ef hann kemst
þangað.