Fylkir - 22.05.1971, Blaðsíða 2
FYLKIR
oooooooooooooooooooooooooooooo
Ritnefnd:
Steingrímur Arnai (áb.)
Ármann Eyjólfsson
Helgi Bernódus
Jóhann Friðfinnsson
Ingibjörg Johnsen
Hörður Bjarnason
Guðmundur Karlsson
Málgagn
S j álf stæðisf lokksins
Útgefandi:
Sjálfstæðisfélag
V es tmannaey j a
Prentsmiðjan Eyrún h.f.
Auglýsingar:
Steingrímur Arnar
Sími 1620
XOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
TIL ÞESS AB TRYGGJA ÍSLENDINGUM
LANDGRUNNIO ALLT NÆGIR EKKI
ÚTFÆRSLA UM 50 MILUR
Löng barátta hafin
Vestmannaeyjar liggja við
beztu fiskimið heims. Þar
bregst afli sjaldan, þótt alltaf
hafi komið einstök ár, sem
afli er minni en venjulega.
Vertíð sú, sem nú er ný-
lokið er mun lakari en ver-
tíðin 1970 var, í Vestmanna-
eyjum og í fleiri verstöðvum.
Þrátt fyrir þetta eru menn
ekki svartsýnir um aflabrögð
á árinu. Margir telja, að út-
koma ársins geti orðið sæmi
leg ,ef afli verður með venju
legum hsatti í sumar og haust.
Verðlag á fiski og fiskafurð-
um er nú mjög gott og ekki
er útlit fyrir, að það lækki,
eins og nú horfir.
Fiskimiðin kringum landið
er sá akur, sem verður að
yrkja og vernda. Þar má
ekki vera sú rányrkja, sem
leitt gæti til auðnar, held-
ur verður að nýta fiskimiðin
á vísindalegan hátt með það
í buga, að ofveiði eigi scr
ekki stað. Erlendum skipum
t er að banna veiðar á land-
grunninu, og friða þarf ein-
stök svæði á fræðilegan hátt,
á vissum tímum ársins.
Ekki er vitað með vissu um
stærð landgrunnsins. Fyrir
hendi eru ekki nægiiega ná-
kvæm kort, sem hægt er að
byggja á í þessu efni. Það
má því reikna með, að út-
færsla landhelginnar í 50 sjó
mílur sé of iítið, ef íslending-
ar ætla að helga sér land-
grunnið allt. Nákvæmra upp-
lýsinga verður að afla nú þeg
ar um stærð landgrunnsins.
Talið er að landgrunnið muni
ná 60-70 niílur frá landi á
vissum svæðum.
Sjálfstæðismenn hafa gert
sér grein fyrir þessu og munu
gera ráðstafanir til að land-
grunnið verði kortlagt ná-
kvæmlega á ný. Sjálfstæðis-
menn munu einnig á raunhæf
an hátt vinna að útfærslu
landhelginnar og tryggja
landsmönnum landgrunnið allt
þótt það reynist mun stærra,
en áður hefur verið talið.
Eftir kosningar mun verða
mögulegt að ræða við stjórn
aranclstöðuflokkana á skyn-
samlegan hátt um landhelgis
málið. Ágreiningur þeirra í
málinu nú er eingöngu sýnd-
ormennska og gerð vegna
kosninganna, sem í hönd fara.
Öll þjóðin er á einu máli
um það, sem máli skiptir um
útfærslu landhelginnar.
Eftir hið mikla atkvæðatap
framsóknarmanna í bæjar-
sljórnarkosningunum hér I
fyrra, sat Sigurgeir Krist-
jánsson lengi í fýlu mikilli, og
varð að beita margflóknum
diplomatiskum aðferðum til
að fá hann á ný til samskonar
meirihlutamyndunar í bæj-
arstjórninni og verið hafði,
þrátt fyrir að framámenn
framsóknar virtust flestir
telja það sjálfsagðan hlut.
Ástæðuna fyrir atkvæðatap
inu og hinu barnalega þrefi
sem á eftir fór, taldi S.K.
sjálfur vera, að Magnús Magn
ússon bæjarstjóri hefði á ó-
drengilegan hátt komið aftan
að sér í kosningabaráttunni
og auk þess staðið sig illa
á kjörtímabilinu við að standa
við kosningaloforð Framsókn
arflokksins. Með þeim manni
væri því ekki lengur starf-
andi, a. m. k. ekki sem bæj-
arstjóra. Var þá ekki laust
við að ýmsir brostu í kamp-
inn og teldu SK. vera svo-
lítið skrýtinn kall. Jafnvel
einhverjir tryggir kjóssndur
Framsóknar munu hafa láiið
orð falla í þá átt.
Nú þogar stilla átti upp
lista Framsóknarflokksins í
Suóurlandskjördæmi i sein-
psia skiptið uppi á Selfossi
og Eyjamen lögðu ríka á-
herzlu á að fá S.K. í sæmilegt
sæti, þá munu megínlands-
menn hafa tilkynnt, að á með
an Eyjamenn hefðu ekki upp
á annað að bjóða en þennan
skrýtna kall, þá vævi tómt
mál fyrir þá að tala um þess
háttar. Og við þetta sat.
En S.K. er iaungreindur
maður og hagsýnn, og ekki á
því að gefast upp. Hann ætlar
sér á þing þó seinna verði, og
nú hefur hann hafið þá bar-
áttu upp á líf og dauða. Og
hinn þrautþjálfaði stjórnmála
maður sá auðvitað strax
hvernig átti að byrja þetta
stríö.
í síðasta Framsóknarblaði
skammar hann mig fyrir að
telja ekki Mm. góðan mann,
því allir bæjarbúar viti að
svo sé. Haldi S.K. svona á-
fram, þá er það eitt víst, að
Selfyssingar verða næst að
finna aðra ástæðu en sein-
ast fyrir frávísun á alvöru-
framboði Sigurgeirs.
Eg fyrir mitt leyti yrði
ckki hissa, þótt S.K. verði vel
ágengt í hinni löngu og
stiöngu baráttu sem framund
an er. Eg held líka að hann
mundi gera Eyjunum mun
meira gagn á Alþingi með
sínu hæglæti, en sumir þeirra,
sem þangað munu nú komast
og hærra láta.
Steingr.Arnar
Kvenfélag Landakirkju
þakkar öllum bæjarbúum,
sem í smáu og stóru lögðu
lið til hlutaveltu félagsins 29.
apríl s. I.
Stjórnin.
ión ðskarsson
HDL
jögfræðistofa Vestm.braut 31
’iðtalstími milli kl. 5 og 7
siðdegis. _ Sími 1878.
— Heimasími 2383 —
Ford CORTINA 71
fríi sölu. 1600 cc vél,
loffrbremsur.
ingar •
SfiíílG 1511.
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Framhaldsaðalfundur lífeyrissjóðs Vesf-
mannaeyinga verður haldinn í Bæjarleik-
húsinu við Heiðarveg, fimmtudaginn 10.
júní 1971, kl. 20.30.
FUNDAREFNI:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tryggingafræðingur sjóðsins, Þórir Bergs-
son, cand. acf., svarar fyrirspurnum fund-
armanna.
STJÓRNIN.
Pósthólf 265
Lífeyrissjóður
V estmannaeyinga