Fylkir - 03.09.1977, Síða 1
29. árg. Vestmannaeyjum, 3. september 1977 10. tbl.
VINUR KVADDUR
Stefán Ámason, fyrrverandi yfirlögregluþjónn
F. 31. des. 1892 — D. 29. júlí 1977
4. ágúst sl. var ég á leið heim
frá Kanada, eftir vel heppnað
ferðalag, alla leið til Vancouver
við Kyrrahaf. í>að var svo ráð
fyrir gert, að vinafólk mitt í
Keflavík tæki á móti mér á
flugvellinum og ég færi ekki
lengra að sinni.
Pað fyrsta, sem ég leit, er ég
kom þar í stofu, var Morgun-
blaðið, og á síðunni blasti við
mér gömul Pjóðhátlðarmynd af
Stefáni Árnasyni, fyrrverandi
yfirlögregluþjóni hér í Eyjum.
„Já, hann var jarðsettur í dag,
rödd hans heyrist nú ekki oftar
á Pjóðhátíðinni," sagði vinur
minn, er hann tók eftir, á hvað
ég var að horfa.
Allir eru óviðbúnir andláts-
fregnum, jafnvel þó við þeim
megi búast.
Ég kvaddi Stefán vin minn á
heimili hans, áður en ég fór
áleiðis til Kanada.
Hann var þá búinn ao vera
veikur og var fluttur daginn
eftir á Sjúkrahúsið hér í síð-
asta sinn. Hann óskaði mér
innilega góðrar ferðar og að ég
mætti hafa af ferðinni mikla
ánægju.
Við Stefán vorum búnir að
þekkjast lengi, eða í hartnær 60
ár. Hann flutti til Eyja haustið
sem Katla gaus, 1918. Pegar
gosið hófst, var Stefán við
smalamennsku inni á Afréttum
og voru þeir tveir saman. Það
varð Stefáni til lífs þá, að þeir
tóku strax rétta stefnu oggátu
forðað sér.
Stefán vann fyrstu vertíð sína
hér í Eyjum sem beitningamað-
ur á mb. Frans. Ég var þá líka
beitningamgður á öðrum bát,
mb. Haffrú. Beitumenn voru
þá nokkuð fjölmenn stétt. —
Milli þeirra urðu fljótt mikil
samskipti og kynning. Pað var
metnaður í að skara fram úr
í flýti og vandvirkni. Þar var
Stefán enginn eftirbátur. Beitu
menn þurftu oft að bíða lengi
eftir að bátar kæmu að landi.
Var þá oft gengið á milli beitu-
skúranna og reynt að gera sér
eitthvað til gamans. Stefán varð
fljótt þekktur og velkominn í
hópinn. Það kom strax fram,
hve létt honum var um að
segja skemmtilega frá og að
leika ýmsar persónur. Hann var
því velkominn gestur.
Stefán gerðist hér fljótt þátt-
takandi í ýmissi félagsmálastarf
semi. Hann varð meðstofnandi
að íþróttafélagi, sem aðfluttir
Eyjamenn stofnuðu hér og frá
því félagi sótti hann árið 1922
ásamt sex öðrum piltum úr
hinum íþróttafélögunum ( þar
á meðal undirrituðum) íþrótta-
námskeið, sem ÍR gekkst þá
fyrir, að haldið var í Reykja-
vík. Námskeiðið sóttu yfir 30
menn, víðsvegar að af landinu.
Peim var búinn samastaður í
Sjómannaskólahúsinu og skipt
í tvær stofur. Forsvarsmenn ÍR
skipuðu Stefán umsjónarmann
með annarri stofunni og átti
hann að gæta þess, að reglur
þær, sem ÍR setti, væru í heiðri
hafðar. Starf þetta leysti Stefán
af hendi með prýði. Stefán gekk
síðar í íþróttafélagið Þór, og
hann var áhugasamur um allar
íþróttir, hann lærði ungur sund
og iðkaði það til æviloka.
Stefán byrjaði að vinna í lög-
reglunni sem næturvörður að
vetrinum til, en vann aðra tíma
ársinss hjá bæjar- og hafnar-
sjóði sem bílstjóri, en brátt
varð lögreglustarfið hans aðal-
starf.
Pegar faðir minn lét af störf-
um í lögreglunni, fyrir aldurs-
sakir, 1932, tók Stefán við starfi
hans sem yfirlögregluþjónn og
gegndi hann því starfi þar til
hann líka varð að víkja vegna
aldursákvæðanna, eftir rúmlega
40 ára starf, þar af rúm 30 sem
yfirlögregluþjónn.
Leiðir okkar lágu víða saman
í ýmsu félagsmálastarfi og með
okkur tókst sú vinátta, sem
hélst til leiðarenda.
Pað var ekki ætlun mín að
hafa þessi orð öllu fleiri. Ég
hef aðeins rifjað upp nokkrar
kærar minningar og vil með orð
um þessum mega þakka Stefáni
fyrir allar ánægjustundirnar, er
við áttum saman og kveðja
hann með sömu orðunum og
hann kvaddi mig síðast:
„Guð leiði þig og styrki, vin-
ur minn, hvert sem leiðir
liggja.“ Páll Scheving.
Vegleg minningargjöf
til Eykyndils
15 ágúst sl. var Slysavarna-
deildinni Eykyndli færð vegleg
minningargjöf að upphæð kr.
150.000,00 frá Gíslínu Jónsdótt-
ur, önnu Halldórsdóttur og
börnum Magnúsar Þórðarsonar
(Skansinum), sem þau gefa til
minningar um:
Magnús Pórðarson, f. 24. 12.
1876, d. 1. 4. 1955,
og syni hans:
Þórarin, f. 27. 11. 1906, d. í
janúar 1940,
Ólaf, f. 19. 9. 1916, d. í janúar
1943,
Óskar, f. 15. 8 1927, d. í jan-
úar 1950.
Gjöfin var gefin á 50 ára af-
mælisdegi Óskars Magnússonar.
Hugheilar þakkir fyrir þá vel-
vild, sem Slysavarnadeildinni
Eykyndli er sýnd með gjöf
þessari.
Gefendum sendum við bestu
kveðjur og óskum þeim gæfu
og guðs blessunar.
F. h. Slysavarnad. Eykyndils,
Sigríður Björnsdóttir.
FARÞEGAFLUTNINGAR
STÚRAUKAST í
INNANLANDSFLUGI.
Heildarflutningar með flug-
vélum Flugleiða voru svipaðir
fyrstu sex mánuði yfirstandandi
árs og á sama tímabili í fyrra.
Farþegum í millilandaflugi hef-
ur fækkað lítilsháttar en vöru-
flutningar aukist verulega, svo
og póstflutningar. í innanlands-
flugi hafa farþegaflutningar
stóraukist en vöruflutningar
dregist lítillega saman. Þá hafa
póstflutningar innanlands auk-
ist.
MILLILANDAFLUG:
; Fyrstu sex mánuði yfirstand-
asdi árs flugu 152.580 farþegar
með millilandavélum Flugfélags
íslands og Loftleiða og er það
2% færri farþegar en á sama
tímabili árið áður. Vöruflutn-
ingar milli landa hafa hinsveg-
ar aukist verulega. Þeir námu
á fyrra helmingi þessa árs 16,5
millj. tonn-km. og jukust um
48,5%. Póstflutningar milli
landa jukust um 12,4% miðað
við sama tímabil í fyrra.
INNANLANDSFLUG:
Sem fyrr segir hafa farþega-
flutningar innanlands aukist
verulega á fyrstu sex mánuð-
um þessa árs miðað við sama
tímabil 1976. Frá 1. janúar til
30. júní voru fluttir á innan-
landsleiðum 110.000 farþegar
sem er 19,2% aukninga miðað
við sama tímabil árið áður.
Vöruflutningar innanlands
námu á þessu tímabili 573 þús.
tonn-km. og minnkuðu um
4,2%. Póstflutningar jukust á
hinn bóginn um 14,2%.
Frá Kynningardeild
Flugleiða