Fylkir - 01.04.1978, Síða 3
FYLKIR
3
KYNNING FRAMBJOÐENDA
Sigurgeir Jónasson sér um kynningu frambjóðenda
í máli og myndum
Bjarni Sighvatsson,
kaupmaður.
Við Vestmannaeyingum blasa
í dag mörg stór vandamál,
mörg stór verkefni. Af vanda.
málum má nefna erfiðleika í
atvinnumálum auk fjárhags-
legra vandamála bæjarfélagsins.
Mörg stór verkefni eru og á
döfirmi, svo sem hraunhitun
(fjarhitun), uppbygging í raf-
magnsmálum, skolp úr höí.i.
inni og m. m. fl.
Eg tel þó aðalatriðið vera
að bæjarbúar sameinist um
að kjósa þann flokk sem lík-
Iegastur er til þess að koma
málum bæjarfélagsins í heila
höfn, liklegastur er til þess að
gera Vestmannaeyjar að því
sem þær, voru orðnar þegar
Sjálfstæðisflokkurinn hélt hér
síðast um stjómvölinn. Því
marki náum við með því að
kjósa sjálfstæðisflokkinn í
komandi bæjarstjómarkosning
um.
Arnar Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri,
Bröttugötu 30.
Fæddur í Vestttjannaeyjum
19. nóv. 1943. Gagnfræðingur
1960, hef unnið við ýmiskonar
verslunar. og skrifstofustörf.
Haustið 1973 framkv.stjóri Við
lagasjóðs í Vestm.eyjum, og frá
ársbyrjun 1977 framkv.stjóri
Klakks h.f. og skrifstofustjóri
Samfrost.
Kjörinn annar af endurskoð-
endum Bæjarsjóðs 1974 — ’76
og vann samkv. beiðni bæjar.
stjórnar að endurskoðun ár-
anna 1970 — 1973.
*
Kvæntur Maríu Vilhjálms-
dóttur og eigum 3 börn.
Fái ég tækifæri til mun ég
beita mér fyrir eftirtöldum mál
um á næsta kjörtímabili:
1. Stjórnun bæjarfélagsins.
Mikil þensla hefur einkennt
allar framkvæmdir bæjarins síð
an 1974, og liggja til þess nokk
uð augljósar ástæður. Nú má
segja að jaí ivægi sé að nást
og liggur þá beint fyrir að
draga úr kostnaði við stjórn.
un og skrifstofuhald og koma
niður í sama hlutfall og gerist
hjá sambærilegum sveitarfélög-
um.
2. Malbikun gatna.
Leggja verður meiri áherslu
en verið hefur á malbikun
gatna, og ástæða er til að
flýta gatnagerðaráætluninni.
Góðar götur skipta miklu máli
fyrir alla bæjarbúa. Samfara
þeim kemur snyrtilegri bær og
lækkun viðhaldskostnaðar bif.
reiða.
3. Skolpið út fyrir Eiði.
Vinda verður bráðan bug að
því að ráðast með fullum krafti
í það að koma skólpinu út fyr-
ir Eiði. Pað má ekki lengur við-
gangast að meirihluti alls frá.
rénnslis skuli ren ra beint í höfn
ina. Allt of lengi hafa bæjar-
yfixvöld dregið að ráðast í
þessar framkvæmdir, þrátt fyr-
ir að fjármagn hafi verið lagt
í verkið að hluta, og teikningar
legið fyrir i nokkur ár.
4. Framkvæmdir við höfnina.
Par ber hæst skipalyfturji
og þyljun norðurhaí.iarinnar.
Skipalyftumálið hefur þokast
lítið áfram á þeim sex árum
sem liðin eru síðan Hafnar-
sjóður yfirtók lyftuna. Virðist
málið nú strandað í nefnd suð-
ur í Reykjavík. Ríkisvaldið
kemst ekki hjá því að stuðla
að framgangi þessa mikla hags.
munamáls, á sama hátt og gert
hefur verið annarsstaðar á land
inu. Verði ekkert frekar aðhafst
í málinu er aukin hætta á því
að þjónustugreinar í sjávarút-
vegi hér í Eyjum missi drjúgan
spón úr aski sínum á næstu
árum. Jafnframt mun skipa.
lyftan veita fjölmörgum at-
vúmu ef vel tekst til.
Piljun norðurhafnarfnnar
tengist skipalyftumálinu og er
ánægjulegt að fyrsti vísir að
því er hafinn.
5. Uppgræðsla Heimaeyjar.
Þrátt fyrir stórkostlegan ár-
angur í uppgræðslu Heimaeyj.
ar eftir gos, varður að viðhalda
þeim árangri og koma í veg
fyrir gróðurskemmdir.
Eg hef nú mi'nnst á nokkra
málaflokka sem mér eru efst
í huga, á þessari stundu. Ávallt
hlýtur að vera álitamál hve
mikil áhersla er lögð á einstaka
mál, og í hvaða röð verk eru
unnin.
Á undanförnum árum hefur
mikið átak verið unnið í félags-
legri þjónustu hér í Eyjum
með byggingu barnaheimila,
íþróttamiöstöðvar, Hraunbúcía
og lokið við byggingu sjúkra.
hússins.
Ekki má gleyma fjarhitun
með hnaunvarma sem komin
er vel af stað.
Gæta verður þess þó vand-
lega að gjöld borgaranna til
bæjarfélagsins verði ekki hærri
en gerist hjá öðrum kaupstöð-
um á landinu. Pví í sambandi
við búsetu fólks skipta þessir
hlutir miklu máli.
Geir Jón Þórisson,
lögregluþjónn.
25 ára fæddur í Reykjavík,
en fluttist til Eyja í janúar ”74.
Kona mín er Guðrún Ingveldur
Traustadóttir frá Skaftafelli
hér í bæ. f Reykjavík lærði ég
vélvirkjun, en eftir að ég flutt-
ist til Eyja vann ég aðallega
við verslunarstörf og síðan við
löggæslustörf. Eftir að hafa
kynnst Vestmannaeyingum
fittnst mér ég aldrei hafa
kynnst betra fólki. Eg hef fund
ið að hér á ég heima.
Með því að taka þátt í próf.
kjöri, til undirbúnings bæjar-
stjórnarkosningunum í vor, vil
ég með því að leggja mitt lóð
á vogarskálina.
Það hafa verið gerð stórátök
í ýmsum málum hér í Eyjum,
en betur má ef duga skal. Mitt
kjörorð er, ekki að gera hitt
og þetta í eigin krafti, heldur
það sem fólkið vill að verði
gert.
Vestma rnaeyjakaupstaður var
fallegasti kaupstaður landsins,
fyrir gos, en hefur nú dregist
afturúr. Pað þarf að gera stór
átök í þeim málum fyrir utan
allt hitt: Æskulýðs- og íþrótta-
mál, gatnagerð og hafnarmál.
Kjörorð mitt er fallegt og
gott bæjarfélag og ábyrga
stjórn í bæjarmálum.
Georg Þór Kristjánsson
verkstjóri,
Hásteinsvegi 52.
Hann er fæddur 25. mars 1950
hér í Vestmannaeyjum. Georg
er sonur hjónantta Helgu
Björnsdóttur og Kristjáns
Georgssonar. Hann er kvæntur
Kristrúnu Hörpu Rútsdóttur
frá Hafnarfirði. Þau eiga sam-
an tvö börn, Kr.istján og Ragn.
heiði Rut.
Georg Þór er gagnfræðingur
að mennt frá Gagnfræðaskólan
um í Vestmannaeyjum. Á skóla
árum sínum var Georg alltaf
í fararbroddi í íþrótta- og fél-
agslífi skólans. T.d. formaður
skólafélagsins 1965 og formað-
ur árshátíðai'ttefndar 1966. Bæði
þessi ár var hann í íþróttaráði
skólans.
Fyrst eftir að Georg lauk
gagnfræðaprófi stundaði hann
ýmiss verkamannastörf hjá
ýmsum fyrirtækjum bæði hér
í Eyjum og einnig upp á landi.
En tuttugu og eins árs byrjaði
Georg sjóme.insku fyrir „al.
vöru”, og stundaði hana allt
fram á mitt sumarið 1977. Pá
ákvað hann að hvíla sig frá
sjónum og fara í land, því
hann langaði til þess að taka
virkari þátt í félagslífinu og
þá sérstaklega hjá íþróttafélag-
inu Pór. Nú cr hann starfattdi
hjá Eimskipafélagi íslands sem
verkstjóri.
Helstu áhugamál Georgs hafa
alltaf verið æskulýðs- og íþrótta
mál, og ávallt valist þar til
forustu. Hann var t.d. virkur
þátttakandi í starfi skátafélags-
ins Faxa og þá oftast í broddi
fylkingar. Eitt kjörtímabil var
hann í Æskulýðsráði Vest-
mannaeyja fyrir hö'.id Sjálf-
stæðisflokksins. En þrátt fyrir
þetta er hans aðaláhugamál
íþróttir. Hann hefur s.l. tvö
ár verið formaður knattspyrnu.
deilda íþróttafélagsins Þórs,
og þetta ár einnig í knattspymu
ráði Vestmannaeyja.
Bæjarmál:
Hann segir að ótrúlega mörg
mál bíði úrlausnar hjá Vest-
mannaeyjabæ. En eins og gefi
að skilja verði sum mál að