Fylkir


Fylkir - 19.10.1978, Blaðsíða 2

Fylkir - 19.10.1978, Blaðsíða 2
FYLKIR ----------------------^ Ritstjóri og ábm.: Gísli Geir Guðlaugsson Afgr. og auglúsingar: Páll Scheving Símar 1344 og 1129 Upplag: 2000 eint. Útgefandi: Sjálfstæðifélögin í Vestmannaeyjum Filmusetning og Offsetprentun: Eyrún h.f., Vm. Enn vinstri stjórn Þriðja vinstri stjómin frá lýðveldisstofnun hér á landi situr nú á valdastólum. Fyrsta vinstri stjómin sat í rúm tvö ár, en gafst þá upp á glímunni við efnahagsvandann. Allt var komið í kalda kol og þjóðin rambaði á brún hengiflugsins, átti það eitt eftir að steypast fram af. Önnur vinstri stjórnin var við völd um þrjú ár, en hröklaðist þá frá undan vanda efnahags- og kjaramála, enda sólundaði og splundraði góðbúi Viðreisnar- stjórnarinnar, sem hún tók við, á hinum stutta valdatíma sínum. Þjóðarskútuna rak flata og stjórn- lausa undan hrikalegustu holskeflum óðaverðbólgu og stjórnleysis, sem yfir hana höfðu gengið fyrr og síðar. Samstaða fékkst engin um úrræði og þá hlaupist frá vandanum. Þau voru fögur fyrirheitin, sem vinstri menn svo- kallaðir gáfu kjósendum í vor. Samningarnir skyldu í gildi, vandi efnahagslífsins var auðleystur og verð- bólgudrauginn átti að kveða niður án fórna fyrir almenning. Allir skyldu halda sínu refjalaust. Eftir hálfsannars mánaðar stjórnarsetu hafa vinstri menn afhjúpað blekkingarvefinn og orðið uppvísir að stórfelldustu svikum kosningaloforða, sem enn hafa þekkst hér á landi. Samningarnir taka ekki gildi, endurskoða skal vísitölukerfið og skerða og launajöfnunarstefna síðustu ríkisstjórnar skal brotin niður og bilið milli hálauna- og láglaunafóls enn breikka og yfir það leggja jafnað- armenn blessun sína. Ríkisgeirinn er belgdur út og þaninn meira en nokkru sinni áður. Byggt er á bráðabyrgðaráð- stöfunum, sem í hæsta lagi standa fram að áramótum. Fjárlög verða ekki lögð fram á Alþingi fyrr en í fyrsta lagi í nóvember, þar sem engin samstaða hefur fengist enn hjá stjómarflokkunum um gerð þeirra og stefnuna í efnahagsmálum. Hinir nýju valdhafar hafa, þrátt fyrir fögur fyrirheit, tekið upp háttu lénsherra miðalda. Þegar fjár er vant seilast þeir á siðlausan hátt dýpra í vasa skattgreiðenda, leggja nýja tekju- og eignaskatta á gamla skattstofna og skapa með því ótta og óvissu hjá borgurunum um afkomu sína. Engin veit, hvað næst kemur frá stjórnarherbúðunum. Nú skal vegið að sjálfstæði einstaklingsins og atvinnurekstrar, fjármagnstilfærslur svo auknar, að enginn veit að lokum, hver raun- verulegur kostnaður er eða hvað hann hefur að lokum handa á milli. Fólk horfir í kvíða og óvissu fram til næstu mánaða. Ferill fyrri vinstri stjóma hér á landi var ömurlegur og áföll almennings mikil af setu þeirra. Af stuttum valdaferli núverandi ríkisstjórnar verður ekki ráðið, að árangur hennar verði annar eða betri en hinna fyrri. Ráðherrarnir vafstra um í ráð- og fyrirhyggjuleysi, en almenningur borgar brúsann. G.K. Síldarvinna Okkur vantar nokkra karlmenn í síldarvinnu nú þegar. Mikil vinna. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 1101. .VfíSFÉLAG v I m Vestmannaeyja hf. MINNING Alfreð Þorgrímsson Fæddur 23. nóvember 1914 — Dáinn 25. ágúst 1978 Vinur minn og félagi, Alfreð Þorgrímsson, andaðist á Sjúkrahúsinu hér 25. ágúst s.l. eftir erfið veikindi. Útför hans var gerð frá Landakirkju 2. september þar sem vinir hans og félagar fjölmenntu til að tjá honum virðingu sína og þakkir. Við Alfreð vorum búnir að bekkjast lengi. Ég minnist hans fyrst sem drengs, innan við fermingar- aldur. Alfreð átti þá heima í nágrenni við mig og fór daglega framhjá heimili mínu. Ég veitti sérstaklega athygli þessum glaðlega dreng, hversu léttur hann var á fæti og lipur í hreyfingum, en hann kom á- vallt á harðahlaupi heimanað þegar leið hans lá í sendiferðum niður í bæ. En kynni okkar, samstarf og vinátta hófst þegar við völdumst til starfa í stjórn Vélstjórafélags Vestm.eyja, en við vorum báðir í hópi stofn- enda þess félags, 29./11-1939. Alfreð var fyrst kosinn gjaldkeri félagsins 3. janúar 1947 og þann starfa hafði hann á hendi óslitið til dánardægurs eða samtals á fjórða áratug, ávallt árlega endurkosinn. Sýnir það best verðskuldað traust félaganna. Hann starfaði líka á mörgum öðrum sviðum fyrir félagið, meðal annars í Sjómannadags- ráði í fjöldamörg ár. Einnig sá hann afar lengi um þátttöku félagsins í kappróðri á Sjó- mannadaginn. Ég tel á engan hallað þó sagt sé, að Alfreð hafi lagt af mörkum meira starf í þágu Vélstjórafélags Vestm.- eyja, en nokkur annar félags- maður þess. Hann byrjaði ung- ur sjómennsku og öðlaðist vélstjóraréttindi, að loknu námi á mótornámskeiði Fiski- félagsins, strax og aldur leyfði. Hann stundaði svo vélstjórn, bæði á fiskibátum og í landi. Alfreð var ágætur vélstjóri, skyldurækinn og ábyggilegur. Konu sína, Sigríði Jósafats- dóttur, sótti Alfreð til Þórs- hafnar á Langanesi, þaðan sem hún var ættuð. Þau byrjuðu búskap hér í Eyjum 1939. Þau Alfreð og Sigríður eignuðust tvö börn, Guðna Ágúst, dós- ent, búsettur í Reykjavík og Öldu, húsmóður, búsett í Eyjum. Sigríður lést hér á Sjúkrahúsinu, eftir langvarandi veikindi, 6. jan. 1977. Alfreð gekk ekki heill til skógar, síðustu ár ævi sinnar. Hann varð að þola spítalalegur og erfiðar brjóstholsaðgerðir. Að síðustu dvaldi hann á Sjúkrahúsi Vestm.eyja. Þar hitti ég hann að máli, einmitt á Þjóðhátíðardaginn síðasta. Við töluðum lengi saman og bar margt á góma frá löngu liðnum dögum, m.a. Þjóðhátíðarhaldið áður fyrr og nú. Þá var Þjóð- hátíðardagurinn aðeins einn. En eftir að gróska hljóp í í- þróttalífið hér, á þriðja tug aldarinnar og Þjóðhátíðin varð jafnframt aðal íþróttamótið, þá var ekki hægt að ljúka keppni í öllum greinum íþróttanna á einum degi. Þá var horfið að því ráði, að hafa Þjóðhátíðar- dagana tvo og dugði vart til. Nú stendur Þjóðhátíðin í þrjá daga. En það eru ekki lengur íþrótt- imar, sem bera uppi hátíðina. Þar er annað komið í staðinn og annars eðlis og sumt er gjarnan mætti án vera, um það vorum við sammála. Mér flaug ekki í hug þá, að þetta yrði í síðasta sinn, sem við dveldum saman dagstund. Mér fannst Alfreð hressari og líta betur út en þá, er ég talaði við hann áður, en þetta varð samt okkar síðasta samtal og síðasta kveðjuhandtak, er ég kvaddi hann þá. Ég vil með þessum fáu línum færa Alfreð þakkir mínar fyrir samstarfið og langa vináttu og fyrir hans mikla og óeigin- gjama starf í þágu Vélstjóra- félags Vestm.eyja og bið honum blessunar Guðs í nýjum heimkynnum. Ástvinum hans sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Páll Scheving. Kveðjuord Einn kunnasti borgari Vest- mannaeyja er nú burt kvaddur, Alfreð Þorgrímsson, Vestur- vegi 20, hér í bæ. Það hús átti hann og bjó í því um mörg ár. Alfreð var fæddur Rangæ- ingur og af ættum, er stóðu langt fram í Rangárþingi. Ungur fluttist hann með for- eldrum sínum til Eyja og hér var starfsvettvangur hans alla tíð. Ungur byrjaði hann sjó- mennsku og með föður mínum, Gísla frá Amarhóli, var hann árin 1933 og 1934. Litlu munaði að þau lok, sem era nú, yrðu þá, er Alfreð féll útbyrðis af Víkingi í s.austan stormi, sjó og blindbyl vestan við Eini- drang. Skeði það í janúar. Eftir því sem Alfred sagði mér sjálfur, fékk báturinn á sig tvö áföll og það síðara svo mikið, að vél bátsins stöðvaðist. Gísli hafði hugboð um, þegar sjórinn kom, að bakka sem mögulegt var. Þegar báturinn kom úr sjólöðrinu frá brotinu, þá kom Álfreð samtímis upp og rétt aftan við bátinn. Júlíus á Hlíðarenda, Júlíus í Hjálmholti og Bergur Lofstsson, skips- félagar Alfreðs, náðu honum innbyrðis og allt hafði þetta góðan endi. Alfreð varð ekkert meint af því volkinu. Síðar var Alfreð vélstjóri hér um árabil til sjós og svo í Rafstöðinni, bæði nýju og gömlu. Alfreð var öryggið sjálft, aðgætinn og passasamur og góður vélstjóri. Síðustu ár var Alfreð við verslunarstörf á vegum Ríkisins. Alfreð var einn af fram- herjum Vélstjórafélags Vest- mannaeyja og um áratugi var hann þar gjaldkeri. Alfreð átti sín hugðarefni og áhugamál. Skepnuvinur var hann einstakur og var sauð- kindin í miklu uppáhaldi hjá honum. Átti hann sjálfur kindur um árabil og hafði þær jafnan í Elliðaey. Bæði í sókn og töku og útferðum, var Alfreð alltaf á steðjanum, því ekki var að spyrja um handtök hans, traust, föst og öragg, bæði fyrir menn og skepnur. Alfreð var ekki allra, óá- reitinn og afar traustur við þá er hann tók. Tryggðin sjálf og öruggur vinur. Nú þegar Alfreð er allur, og það langt um aldur fram, þá vil ég þakka honum samstarfið um mörg ár, er aldrei féll skuggi á. Fyrir hönd félaga í Sauðfjár- eigendafélagi Vestmannaeyja, þakka ég Alfreð góð störf og margar skemmtilegar fundar- setur. Síðast hitti ég Alfreð mánu- dag eftir sjómannadag s.l. á þáverandi heimili hans, við Faxastíg hér í bæ. Mér verður sú heimsókn minnistæð. Ég vildi ekki trúa að nú væri ég að kveðja Alfreð hinsta sinni á þessari jörð. En sú varð raunin. Alfreð flíkaði aldrei tilfinn- ingum sínum eða trú. Þó vissi ég um bjargfast traust hans á Drottni. Kvöddumst við í ein- lægri bæn, sem ég veit að Drottinn heyrði og svaraði eftir sínum vilja. Ég blessa góða minningu um Alfreð Þorgrímsson og bið bömum hans, bamabömum og tengdabörnum huggunar og blessunar Drottins. Einar J. Gíslason BETEL Samkoma verður laugar- dagskvöld kl. 20.30 og sunnu- dag kl. 16.30. Sunnudagaskólinn er kl. 1 Allir velkomnir. Betel

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.