Fylkir - 01.12.1979, Blaðsíða 3
FYLKIR
Húsráðandi
hefur þú
athugað
hvort reyk-
skynjarinn
virkar?
Brunavarðafélagið
Munið
kosningagetraun
Rauða krossins
Tekið verður á móti get-
raunaseðlunum á kjörstöð-
um n.k. sunnudag og mánu-
dag. Einnig verður um leið
tekið á móti greiðslum.
Til mikils er að vinna, því
potturinn verður stór!
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Nýr sölulisti vikulega
Skrifstofa í \'cstmarmat>}um:
Bárugotu 2, 2. hxi.
VJdttbtími: 15.30-19.09
þriðjudag-fiMtadugi, S 104?
Skrifst. i Reykjavlk: Garðastneti 13.
VMtalstimi: 15.30-19.00,
mánudaga, * 13945
JÓN HJALTASON, hrf
Bílasíminn
er
1344
X - D
-------------------------\
Allt í
jólabaksturinn
Sykur í 25 kg. pokum
☆
Hveiti í 25 kg. pokum
☆
Kókósmjöl í sparipakkningum
☆
Möndluspænir í sparipakkningum
☆
Súkkulaðidropar
☆
Kattartungur o.m.m.fl.
☆
VERIÐ VELKOMIN
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
*
Gunnar Olafsson & Co hf
J
Sókn til sigurs
Um helgina verður gengið til
kosninga. Þá verður vinstri vill-
an látin svara til saka. Kaup-
ránsflokkarnir réttnefndu
A-flokkarnir hafa fengið á sig
eigin slagorð, eftir að hafa svik-
ið allt sem þeir lofuðu. Vest-
manneyingar gera það nú upp
við sig, hvort þeir vilja vinstri
villu eða rökfasta hægri stefnu.
Framsókn á engu fylgi hér að
fagna, þar sem enginn Vest-
manneyingur hjá þeim hefur
möguleika á að koma nærri
þingi. Alþýðubandalagið sem
hér hefur tröllriðið verkalýðs-
félögum og sjómannafélögum
undanfarin ár, hlýtur að bíða
skipbrot. Almenningur er
löngu farinn að sjá í gegnum
blekkingarvefi þeirra. Sá sí-
felldi áróður þeirra að þeir séu
að vinna fyrir verkalýðinn er
hlægilegur farsi. Væri nær að
kalla hann menntalýðflokk.
Hér í Eyjum er ógnvekjandi
hve há prósentutala kommún-
ista er við kennslu hér í skólun-
LA NDAKIRKJA
Sunnud. 2. des.:
Sunnudagaskóli kl 11. Messa
kl. 14.
Þórhildur Óskarsdóttir og
Reynir Guðsteinsson syngja
stóivers.
Samkoma í Landakirkju n.k.
miðvikudag kl. 2.0.30 á vegum
ungs fólks í Landakirkju.
Sóknarprestur.
Fasteignaúrvalið
er hjá okkur
Vidskiptaþjónustan hf
Iangagötu 1
S 2000
um. Hafa foreldrar stórar
áhyggjur af innrætingarstarfi
því sem þar fer fram. Það er
ógnun við lýðræði.
Garðari greyinu er vorkunn,
hann á nú fótum sínum fjör að
Iauna, fyrir hinum nýja Messí-
asi (að eigin mati) Baldri Ósk-
arssyni, sem stöðugt vegur að
honum. Verður þetta líklega í
síðasta sinn sem Garðar fær að
fara á þing. Magnús Magnús-
son er löngu orðinn þjóðkunn-
ur fyrir auglýsingaskrum um
eigið ágæti. Hann viðurkenndi
að hann vildi ekki fara úr ráð-
herrastól, enda ólíkt betri tekj-
ur en hjá Pósti og síma. Hann
átti svo mörg verkefni óleyst á
skrifborðinu! Sumir segja að
Georg H. Tryggvason hafi
bannað honum að hætta. Ragn-
ar Arnalds sagði í sjónvarpinu
að hann þættist eiga félags-
málapakkann einn, enn upp-
lýsti hann að MHM hefði ekki
meira komið nálægt honum, en
að sleikja frímerkin á umslög-
BETEL
Almenn samkoma þriðju-
dags-, fimmtudags-, og laugar-
dagskvöld kl. 20.30. Sunnudag
kl. 13 sunnudagaskóli, sam-
koma kl. 16.30.
FYRIR JÓLIN
Kerti
og
Konfekt
í miklu úrvali
unum.
Magnús er á þessu eina ári
búinn að afhjúpa sig rækilega.
Hlaupandi í fjölmiðla og full-
yrða hitt og þetta, sem hann
hefur svo orðið að draga úr eða
til baka. Brúin fræga er enn í
fullu gildi í loforðapakkanum
og ætti að endast 1-2 kjör-
tímabil enn.
Guðmundur Karlsson er
þekktur af öðru en auglýsinga-
skrumi. Hann er þekktur fyrir
rökfestu og dugnað. Hann læt-
ur verkin tala, en er ekki þannig
maður að hlaupa alltaf í fjöl-
miðla, þegar hann vinnur að
málum byggðarlagsins. Hann
lofar ekki upp í ermina á sér og
stendur við það sem hann segir.
Það eru slíkir menn sem
Alþingi er sómi af, en draga
það ekki niður í svaðið eins og
lýðskrumarar kratanna.
Árni Johnsen er ungu fólki
vel þekktur. Óteljandi eru þau
skipti sem íþróttafélög, önnur
félög og einstaklingar hafa leit-
að til Áma og alltaf heíúr hann greitt
götu manna af stakri ljúf-
mennsku. Því ætti unga fóíkið
sem nú er að kjósa í fyrsta sinn,
að veitast auðvelt að kjósa nú
og setja X fyrir framan D. Þeir
sem kusu vinstri flokkana síð-
ast, vegna þess að þeir trúðu
slagorðunum, hljóta að setja X
við D og sýna vinstri flokkun-
um að það er ekki hægt að hafa
fólk að fíflum oftar en einu
sinni. Vinstri flokkarnir hljóta
að fá rassskell svo um munar.
Fólk lætur ekki teyma sig á
asnaeyrunum.
Ó þau fögru fyrirheit
fyrir síðustu kosningar.
Almenningur sem á agnið beit
uppskar aðeins blekkingar.
Aftur kosið enn á ný
áður en þjóðaskútan er sokkin.
Kaupráns kumpánum gefuj frí
og kjósum Sjálfstæðisflokkinn.
Sókn til sigurs
X - D.
S.A.
Um hvað verður....
Framhald af 1. síðu
í huga að þessi óheillaþróun
heldur áfram ef ekkert er að
gert.
Ég hef ekki trú að því að þær
aðgerðir sem reyndar hafa ver-
ið á undanförnum árum í bar-
áttunni við verðbólguna, reyn-
ist betur í framtíðinni. Þess
vegna er ég sannfærð um að
stefna Sjálfstæðisflokksins, að
vinna bug á verðbólgunni með
leiftursókn, er spor í rétta átt.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
kynnt stefnu sína rækilega fyrir
öllum landsmönnum og kjós-
endur ’ættu ekki að vera í
neinum vafa hvaða flokk þeir
eiga að kjósa, því Sjálfstæðis-
flokknum einum er trúandi til
að leiða þjóðina út úr efnahags-
öngþveiti sem hún er nú í. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur markað
nýja stefnu, stefnu sem miðar
fyrst og fremst að því að kveða
niður verðbólguna. Um þetta
verður kosið á sunnudaginn
kemur, gamlar og úreltar að-
ferðir í baráttunni við verð-
bólguna, eða stefnu Sjálf-
stæðisflokksins.
Sigríður Björnsdóttir.
Undirstaöa uppbyggingar byggöarlagsins er þróttmikiö atvinnulíf.
Ljósni. Guðmunilur Sigfússori
*-------------I----------\
V estnianney ingar!
Munið kosningakaffið
í Samkomuhúsinu á
sunnudag
X D - Til sigurs
J