Skátablaðið - 01.05.1952, Blaðsíða 3
þegar við komumst að sannleiksgildi skota-
sagnanna. Vil ég nú til gamans segja ykk-
ur eina sérstæða Skotasögu. Við vorum tveir
saman, sem höfðum tekið okkur far með
sporvagni alllanga leið. Þegar við kom-
um á ákvörðunarstaðinn og ætluðum að
greiða fargjaldið, höfðum við ekki annað
en stóra seðla, þar sem við höfðum ekki
haft tækifæri til að skipta peningum okkar.
Afgreiðslumaðurinn kvartaði yfir pening-
unum, en við stóðum þarna alveg ráða-
lausir. Þá vék að okkur nærstaddur Skoti
og lét okkur hafa nokkur penny, er nægðu
fyrir fargjaldinu. Við gátum nú greitt far-
gjaldið, án þess að þurfa að láta afgreiðslu-
manninn glíma við seðlana. Við þökkuð-
um Skotanum fyrir gjafmildi hans og héld-
um leiðar okkar.
Það er sagt, að engin höfuðborg í Evrópu
taki Edinborg fram að fegurð. Borgin stend-
Framhald af 9. síðu.
Ég veit ekki hver hefur ort þessa vísu, en
hún er lærdómsrík:
Mótlæti ef mætum við
mesta villan, hún er sú,
að gefast upp og ganga á snið
við gátur lífsins, fyrr og nú.
Þótt móti blási byr um stund
bætir reynzlan styrkan mann,
sem á kjark og karlmannslund
kraft og þrek, unz sigur vann.
Megi allir skátar, sem endurnýja skáta-
heiti sitt í tilefni St. Georgs dagsins, öðlast
styrk frá þeirri vitneskju að með þeim í
starfi eru meira en fimm milljónir, og þar
að auki meira en tuttugu og fimm milljónir,
sem örfa þá til þess að gera sitt bezta, —
standa uppréttir og einarðir.
Ykkar einlægur
J. S. Wilson.
ur í klettóttri, skógivaxinni hlið. í fjarska
sér rnaður Forth-brúna, er liggur yfir Forth-
fjörðinn. Þessi brú er eina og hálfa mílu á
lengd og kostaði yfir (£3.000.000) þrjár
milljónir punda. Fimm þúsund manns
unnu að byggingu hennar dag og nótt í sjö
ár. Þessi brú þarf geysimikið viðhald. Til
garnans má geta þess, að flokkur manna
hefur stöðuga vinnu við að mála brúna.
Þeir byrja verk sitt á öðrum enda brúar-
innar og halda fram eftir henni. Þegar þeir
hafa lokið við eina umferð byrja þeir aftur
á ný á sarna stað og fara aðra ferð. Og sé
rigning, þá bregða þeir sér inn í pípurn-
ar, sem halda brúnni uppi, og mála þar.
Þessir menn hafa því trygga framtíðarvinnu
og þurfa engu að kvíða.
Hátt yfir borginni gnæfir hinn forni
Edinborgarkastali, líkt og tignarleg kóróna
á geysimiklu klettabjargi. Hluti af þessum
kastala er meir en 700 ára gamall, og hefur
kastali þessi átt mestan þátt í því að gera
Edinborg að frægri ferðamannaborg. í þess-
um kastala bjó María Stúart, er hún ól son
sinn, James VI., er síðar varð konungur
Skota. Þarna er geymd kóróna og gimstein-
ar konunganna er réðu ríkjurn í Skotlandi,
þar til það var sameinað Englandi árið
1707. Rétt fyrir neðan kastalann sjáum við
fagran skemmtigarð, er liggur með fram
Princes Street. Þar sjáum við blómaklukk-
una fögru, sem gerð er af fjölda mislitra
blóma.
Án þess að við vitum af, er tími okkar
liðinn og við verðurn að yfirgefa þessa forn-
frægu borg. Við horfum með söknuði til
borgarinnar er skipið líður út fjörðinn. Við
gleðjum okkur samt yfir því, að við skulum
fá tækifæri til þess að sjá þessa borg aftur á
ný á heimliðinni. Lengi vel sjáum við kast-
alann, þar sem hann gnæfir yfir borgina
líkt og tröllkarl, þar til að lokum að hann
hverfur sjónum okkar í blámóðu fjarskans.
1 1
SKATABLAÐIÐ