Skátablaðið - 01.05.1952, Blaðsíða 4
Við erum aftur komin á siglingu, og nú
er Danmörk fyrir stafni. Sólbjartan morg-
un siglir skipið inn Eyrarsund. Við siglum
hjá Kronsborg, án þess að greiða nokkurn
toll. Nú þegja gömlu fallbyssurnar, sem áð-
ur fyrr voru svo árvakrar. Nú stendur þessi
mikli kastali sem jrögult minnismerki um
liðinn tíma gömlu harðstjóranna.
Brátt sjáum við Kaupmannahöfn, og inn-
an stundar höfum við yfirgefið skipið okk-.
ar og komið okkur fyrir í borginni. Seinni
hluta dagsins erum við staddir á Ráðhús-
torginu. Þar er allt iðandi af lífi og fjöri.
Ómar frá fleiri þúsund reiðhjólabjöllum
berast til eyrna okkar. Hvar sem litið er má
sjá hjólreiðamenn, sem eru að flýta sér heirn
frá vinnu. Enginn virðist hugsa um annað
eit að komast áfram. Brátt er farið að
skyggja og þá má sjá ljósaauglýsingar alls
staðar í kring um torgið. Á vinstri hönd er
risabygging Politikkens en þar er hægt að
lesa allar þær markverðustu fréttir, er koma
frá umheiminum. Orðin renna eftir þak-
brúninni, alltaf kemur eitthvað nýtt og
nýtt. Á hægri hönd sjáum við Tivoli og
alla þá ljósadýrð, sem þar er. Við röltum
þangað og innan stundar erum við komnir
á fleygiferð í alls konar skemmtitækjum.
Tíminn flýgur áfram og áður en varir höf-
urn við eytt of miklu af sparifé okkar, sem
á að endast í heilan rnánuð. Við höldum
þreyttir heim og ekki líður á löngu þar til
við erum komnir yfir í draumalandið góða,
þar sem hægt er að skemmta sér án þess að
hugsa urn kostnaðinn. Við dvöldum sex
ógleymanlega daga í Kaupmannahöfn. Ég
ætla ekki að reyna að lýsa þessurn dásam-
legu dögum, sem við dvöldum í borginni,
núna. Vonandi gefst betri tími til þess
seinna. Frá Kaupmannahöfn héldum við
með járnbrautarlest áleiðis suður á bóg-
inn
Nú var erfitt ferðalag framundan. Það
var ekki stanzað fyrr en við komum til
Flensborgar, en þar var vegabréfaskoðun.
Það var gaman að virða fyrir sér þýzku
tollverðina, þar sem þeir sátu fyrir innan
borð í grænu einkenningsbúningunum sín-
um. Það vantaði ekkert annað en haka-
krossinn á handlegg þeirra og þá hefði mað-
ur séð hina marg umtöluðu þýzku hermenn
í allri sinni „magt“.
Frá Flensborg héldum við til Hamborg-
ar en þar var lítil viðstaða, heldur haldið
beint suður. Ég veit, að við gleymum aldrei
þeim degi, sem við lifðum, er við ókum í
gegnum Þýzkaland. Það var um 40 stiga
hiti og sólin skein beint á okkur, þar sem
við sátum við klefagluggann. Ekki mátt-
urn við opna gluggann, því þá fylltist allt
af reyk frá eimvagninum, sem var rétt fyrir
framan vagninn okkar. Svo þröngt var í
lestinni, að við urðum að hafa farangur
okkar á göngunum, eða inni í klefum hjá
okkur. í þessari lest vorum við í 28 tíma
samfleytt, án þess að fá nokkurn svefn.
Þarna sátum við í stuttbuxunum okkar
naktir ofan að mitti. Svitinn rann niður
eftir okkur í lækjum. Eftir þetta ferðalag
reyndum við að forðast járnbrautalestir,
senr mest við máttum. Við komum seint um
nótt til Salzburg, en þaðan héldum við
með annarri lest til Bad Ischl.
Framhald ncest.
r--------------------------------n,
Kaupíð
úrín
hjá
FRANCH
Laugarvegi 39 - Reykjavík - Sími 3462.
★ Sendi gegn póstkröfu ★
v________________________________r
12
SKATABLAÐIÐ