Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1952, Page 5

Skátablaðið - 01.12.1952, Page 5
um að ræða. Um vorið virtist félagið í al- gerri upplausn og tókst Ingvari, er hann kom hingað um sumarið, ekki að blása lífi í það, svo talist gæti. Nokkrir okkar höfðum þó haldið saman og hittst öðru hvoru (Arni Ólafsson, Óli Haukur, Guido Bernhöft, Östlundsbræður og ég, og var ég flokks- foringinn). Við lágum yfir að revna að skilja eitthvað í Scouting for Boys, nóg til þess að halda áhuga okkar við og að sjá, að skátar ættu að starfa öðru vísi en við höfð- um gert. 7. júlí varð ég áskrifandi að ,,The Sout“, sem var stórt vikublað, gefið út af aðalstöðvunum í London. — Ég átti tal við Ingvar Ólafsson um félagsstarfsemina og deildi á hana og mælti fyrir munn margra, er ég sagði honum að við vildum hafa ís- lenzkt félag. En hann taldi öll vandkvæði á því að við gætum stofnað það. Varð al- drei mikill kunningsskapur með okkur eftir þetta. En um haustið, eftir að hann var far- inn heim, var reynt að ná saman þeim, sem vildu stofna sjálfstætt, íslenzkt skátafélag. Voru tveir eða þrír undirbúningsfundir haldnir og var þá skipulagið aðalágrein- ingsatriðið. Vildu nokkrir að félagið yrði hluti að K. F. U. M. og fengju síra Friðrik fyrir aðalforingja, en aðrir vildu ekki hafa félagið í tengslum við neinn annan félags- skap. Varð það sjónarmið ofan á. Vorum við þó allir hlynntir síra Friðrik persónu- lega og höfðum meir og minna starfað í K. F. U. M. Skátafélag Reykjavíkur var formlega stofnað 2. nóv. 1912 á fundi í „Fjósinu“ á Menntaskólalóðinni. Var Sigurjón Pét- ursson kjörinn fyrsti félagsforingi, en Helgi Jónsson frá Brennu og Ben G. Waage sveit- arforingjar. Litu ungir strákar þá margir upp til Sigurjóns, sakir íþróttaafreka hans og glæsimennsku. En sumir þeirra, sem vildu halda tengslunum við K. F. U. M. vildu' ekki vera í félaginu og urðu síðar til þess, að Væringjarnir voru stofnaðir af K. F. U. M. Var stundum rígur nokkur milli Væringja og Skáta fyrstu árin. Ég starfaði með S. F. R. fram undir upp- lestrarfrí í Menntaskólanunr vorið 1914. Eyddi ég allmiklum tíma í skátafélagsskap- inn, of miklum myndi ég nú segja, með því að stundum sat skólanámið frekar á hakanum fyrir skátastarfinu, eða öfugt við það sem vera skal. í sjálfu vorprófinu 1913 fórum við t. d. tvisvar í útilegu, og segir um það í dagbók rninni frá 1913: laugar- daginn 21. júní: „Gekk upp í íslenzku kl. 2. Lögðum af stað í útilegu kl. 4 inn að Ell- iðaám. Idar Öslund meiddist. Ég svaf 2yz klst. alla nóttina, strákarnir létu svo illa. Vaknaði kl. 6. Voru að gera hitt oð þetta fram yfir hádegi. Komum heim kl. 4.“ En stærðfræðipróf var næsta dag. Þó ég væri svo heppinn að ná sæmilegu prófi, þá er þetta dæmi um það hvernig skátarnir eiga einmitt ekki að starfa. Húsnæði fyrir félagsfundi höfðum við í hinu svonefnda „Fjósi“ Menntaskólans, sem Pálmi yfirkennari lánaði okkur vin- samlegast. í dagbók, frá 1913, hef ég nýlega fundið ýmislegt um starfsemi okkar, þó margt sé Skátar úr S.F.R. við Elliðaár 24/4. 1913. SKÁTABLAÐIÐ 43

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.