Skátablaðið - 01.12.1952, Side 6
máð í henni. Flokksfundir voru haldnir á
kvöldin heima hjá flokksforingjunum, eða
þá úti einnig á kvöldin eða fyrri part dags
ef um frídaga var að ræða úr skólum. Fund-
ir voru mjög reglulega í hverri viku, en
aukafundir oft. Stundum komu þó ekki
nema fáir á æfingar, en venjulega var það
af því að veður hamlaði. Félags eða sveitar-
fundir voru haldnir á sunnudögum, venju-
lega kl. 10, og var þá stundum farið í hóp-
ferðir gangandi eða tvisvar á bát.
A flokksæfingum æfðum við eftir Scout-
ing for Boys og The Scout, sem allt af birti
meir og minna af leiðbeiningum um hvern-
ig ætti að haga flokksstarfinu. Flokkarnir
voru mjög sjálfstæðir og sveitarforingjarn-
ir skiptu sér lítið af stafseminni í flokkun-
urn. Við höfðum ensk próf og sérprófsmerki,
en aðeins fá voru tekin. Við tókum prófin
afar hátíðlega og allt of þung. Læknaskóla-
nemendur kenndu hjálp í viðlögum. Ég
tók 2. fl. próf 24. ágúst 1913 og einnig þeir
Ostlundsbræður. 1. flokkspróf tók mér vit-
anlega aldrei neinn. Yfirleitt fórum við
allt of bókstaflega eftir þeim leiðbeining-
um, sem gefnar voru í Scouting for Boys og
The Scout, sem auðvitað stafaði af því að
við höfðum ekki það vit á málunum, sem
Danskir skátar leggja upp i ferðalag austur sveitir, n/g. 1913.
I fararbroddi ríður rektor Hartvig Möller frá Hellerup.
2. fl. (I. sveitar) S.F.R. á Kópavogshálsi 1 /r,. 1913.
æskilegt hefði verið. Síðast vorum við Axel
Andrésson orðnir sveitarforingjar, en vor-
um vitanlega allt of ungir og óreyndir og
smásmuglegir. Það, var megingalli á félag-
inu frá byrjun að við höfðum engan bak-
hjall, eða foreldraráð, heldur var þetta
tómur unglinga og barnafélagsskapur.
Á öllunt æfingum mætturn við í bún-
ing, og var búningsskoðun einn fastur lið-
ur. Við gengum í stuttbuxum með ber hné,
hvernig sem veður viðraði, þrátt fyrir ráð-
leggingar foreldra og iðuleg hneyxlunarorð
frá öðru fólki. Var þetta eins og hver önn-
ur vitleysa hjá okkur, við héldurn að út af
búningnum mætti ekki breyta. Var okkur
oft ískalt. En í einhverri grein, að mig
minnir í Vísi, var í öðru sambandi talað
um „að skjálfa eins og skáti með ber hné“
og mun þetta vera upphaf þess, að breytt
var búning, þó ekki yrði það fyrr en löngu
síðar.
Ég virðist hafa verið í janúar á 8 fund-
um, í febrúar á 5, í marz 6, apríl 10, maí
12, júní 11, júlí 11, ágúst 19, sept. 9, októ-
ber 9, nóvember 5, desember 15. Gefur
þetta nokkra hugmynd um störf okkar.
Sunnudaginn 26. jan. 1913 fóru 3 flokkar
gangandi til Hafnarfjarðar. 4. febrúar var
„meiri snjór en komið hefur á þessari öld.
44
SKÁTABLAÐIÐ