Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1952, Síða 6

Skátablaðið - 01.12.1952, Síða 6
máð í henni. Flokksfundir voru haldnir á kvöldin heima hjá flokksforingjunum, eða þá úti einnig á kvöldin eða fyrri part dags ef um frídaga var að ræða úr skólum. Fund- ir voru mjög reglulega í hverri viku, en aukafundir oft. Stundum komu þó ekki nema fáir á æfingar, en venjulega var það af því að veður hamlaði. Félags eða sveitar- fundir voru haldnir á sunnudögum, venju- lega kl. 10, og var þá stundum farið í hóp- ferðir gangandi eða tvisvar á bát. A flokksæfingum æfðum við eftir Scout- ing for Boys og The Scout, sem allt af birti meir og minna af leiðbeiningum um hvern- ig ætti að haga flokksstarfinu. Flokkarnir voru mjög sjálfstæðir og sveitarforingjarn- ir skiptu sér lítið af stafseminni í flokkun- urn. Við höfðum ensk próf og sérprófsmerki, en aðeins fá voru tekin. Við tókum prófin afar hátíðlega og allt of þung. Læknaskóla- nemendur kenndu hjálp í viðlögum. Ég tók 2. fl. próf 24. ágúst 1913 og einnig þeir Ostlundsbræður. 1. flokkspróf tók mér vit- anlega aldrei neinn. Yfirleitt fórum við allt of bókstaflega eftir þeim leiðbeining- um, sem gefnar voru í Scouting for Boys og The Scout, sem auðvitað stafaði af því að við höfðum ekki það vit á málunum, sem Danskir skátar leggja upp i ferðalag austur sveitir, n/g. 1913. I fararbroddi ríður rektor Hartvig Möller frá Hellerup. 2. fl. (I. sveitar) S.F.R. á Kópavogshálsi 1 /r,. 1913. æskilegt hefði verið. Síðast vorum við Axel Andrésson orðnir sveitarforingjar, en vor- um vitanlega allt of ungir og óreyndir og smásmuglegir. Það, var megingalli á félag- inu frá byrjun að við höfðum engan bak- hjall, eða foreldraráð, heldur var þetta tómur unglinga og barnafélagsskapur. Á öllunt æfingum mætturn við í bún- ing, og var búningsskoðun einn fastur lið- ur. Við gengum í stuttbuxum með ber hné, hvernig sem veður viðraði, þrátt fyrir ráð- leggingar foreldra og iðuleg hneyxlunarorð frá öðru fólki. Var þetta eins og hver önn- ur vitleysa hjá okkur, við héldurn að út af búningnum mætti ekki breyta. Var okkur oft ískalt. En í einhverri grein, að mig minnir í Vísi, var í öðru sambandi talað um „að skjálfa eins og skáti með ber hné“ og mun þetta vera upphaf þess, að breytt var búning, þó ekki yrði það fyrr en löngu síðar. Ég virðist hafa verið í janúar á 8 fund- um, í febrúar á 5, í marz 6, apríl 10, maí 12, júní 11, júlí 11, ágúst 19, sept. 9, októ- ber 9, nóvember 5, desember 15. Gefur þetta nokkra hugmynd um störf okkar. Sunnudaginn 26. jan. 1913 fóru 3 flokkar gangandi til Hafnarfjarðar. 4. febrúar var „meiri snjór en komið hefur á þessari öld. 44 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.