Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1952, Page 7

Skátablaðið - 01.12.1952, Page 7
Fór á skíðum í skóla og á skátafuncl, en aðeins einn annar konr.“ 1. marz var logn og frost og snjór — útiæfing, fundum væng- brotinn snjótitling og veittum honum fyrstu hjálp.“ B. apríl tókurn við Axel Andrésson hvor sína skátasveit. 1. og 12. maí fóru um 40 skátar á 2 bátum út í Örfirisey. 30. maí æfing og útilega á íþróttavellinum. 21. júní útilega við Elliðaár, 28. júní útilega við Hólmsá. „Tryggvi og 2 aðrir komu með tjaldið kl. 11 á hestvagni. Vöknuðum kl. 6. — Ausandi rigning, á fætur kl. 8 — tveir sendir heim að Elliðavatni að kaupa mjólk, kveiktum eld upp úti og elduðum þar á . . . komum heim kl. 614. 3. júlí: Útilega við Korpúlfsstaðaá. Höfum 4-hjóla vagn með tveim hestum fyrir undir farangurinn. Fórum næsta rnorgun á íþróttamót í Gufu- nesi, en þar eð ekki var byrjað kl. 2, héld- um við í bæinn og komum heim. kl. 7]/2- — Yfir sumarið var þeim, sem í bænum voru, skipað í flokka, svo að þeir gætu haldið áfram að starfa, þó aðrir hefðu farið í sveit. — Stærsti viðburður sumarsins var heimsókn danskra skáta undir forystu Hartvig Möller frá Hellerup. Sá Thomsen kaupmaður um að útvega þeim farkost og annað til ferðalags austur um sveitir, en við tókum á móti þeim hér og létum þá gista á heimilum skáta í bænum, þær tvær nætur, sem þeir dvöldu í Reykjavík. „9. ágúst vaknaði maður kl. 614 að morgni og niður á bryggju í hasti því allir áttu að vera mættir þar kl. 7, en Botnía kom ekki fyrr en 8,10 og þeir dönsku í land kl. 9. Var gengið upp á íþróttavöll og mönnum skipt þar niður.“ Var þeim seinna sýnt um bæ- inn og gefið tækifæri til þess að æfa sig á hestbaki, áður en lagt skyldi í ferðalagið mánudag þ. 11. ágúst. Fylgdarmenn skát- anna voru þeir Baldur Sveinsson ritstjóri og Gunnar Sigurðsson frá Selalæk. Var för- inni heitið austur á Rangárvelli, en við ætluðum svo að mæta þeim á Þingvöllum og hafa móttöku í Reykjavík er þeir kærnu aftur . .. Fórurn við Páll Andrésson ríð- andi til Þingvalla þ. 14. með útilegu út- búnað og biðum við þar eftir þeim í 5 daga, en þeirn hafði seinkað um tvo daga frá þvi, sem ráðgert hafði verið. Vorum við síðast lagðir af stað ríðandi á móti þeim, en mætt- um þeim á Laugardalsvöllum. Þeystum við þá til baka til Þingvalla og komum þangað tveim klukkutímum fyrr en þeir. Voru þeir heilir á húfi en rass-sárir mjög, svo ferðin sóttist seint. Kl. 414 að rnorgni þess 19. ágúst kom ég á fætur, til þess að fá járnað- an hest minn, kl. 7 lögðum við allir af stað, við Páll og Thomsensbræður fórum á und- an og komum til Reykjavíkur kl. iy2 en hinir kl. 4i/2. Mættumst svo allir kl. 7 á Austurvelli og kl. 8i/2 fóru dönsku skátarn- ir um borð, en frekara var ekki tími til að gera fyrir þá hér í bænum. 16. nóv. 1913 var skipt í sveitir og flokka fyrir veturinn. Voru 40 mættir á fundinum af 60 félagsmönnum. 13. og 14. des hélt skátafélagið hlutaveltu í „Bárunni". Seld- ist ekki allt upp, frekar hjá okkur en öðrum í þá daga. Brúttó komu inn 682 kr. en nettó ágóðinn varð 520 kr. Var á fundi 17. des. ákveðið að kaupa tromrnu og 7 lúðra fyrir 270 kr. alls, frá Englandi. — Nokkru seinna byrjuðum við að gefa út blað, sem hét „Skátinn“, en af því komu víst ekki nema 3 eða 4 eintök. Það má þannig sjá, að ýmislegt hefur gerzt hjá okkur, þar sem þetta er aðeins sýnishorn af sumu af því, sem ég hef skrif- að hjá mér. Aðrir kynnu sjálfsagt frá ekki minnu að segja og væri vel, ef þeir sem eitthvað hafa í fórum sínum frá fyrstu ár- um skátafélagsskaparins, athuguðu það nán- ar og segðu frá því, á meðan það ekki er alveg gleymt. Helgi Tómasson. SKATABLAÐIÐ 45

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.