Skátablaðið - 01.12.1952, Page 8
SkátastarfiS og þjóSféla^ið
í tilefni af 40 ára skátastarfi hér á landi, hef-
ur Skátablaðið snúið sér til nokkurra þjóð-
kunnra borgara, og beðið þá að skrifa nokkrar
línur um skoðun sína á gildi skátafélagsskapar-
ins, fyrir æskuna og þjóðfélagið.
Birtir Skátablaðið hér ávörp þeirra, sem urðu
við þessari beiðni:
Skátahreyfingin vill ala upp dugmikið
fólk, úrræðagott, sem þekkir land sitt, því
er hún þjóðnýt hreyfing og bætir úr brýnni
þörf, eins og nú er háttað þjóðlífinu.
Eysteinn Jónsson.
EYSTEINN JÓNSSON,
fjármálaráðherra:
BJARNI BENEDIKTSSON,
utanríkisráðherra:
Á íslandi eru miklir
framtíðarmöguleikar,
en það þarf tápmikið
fólk, til þess að not-
færa sér þá. Þjóðin
má ekki slitna úr sam-
bandi við land sitt.
Engin hætta var á því,
að svo færi, þegar svo
að segja hver íslend-
ingur átti dagleg samskipti við land eða
sjó. Hættara er nú við, að þessi tengsli
rofni hjá þeim fjölda, sem nú vinnur verk
sitt, án beinna samskipta við landið eða
hafið umhverfis.
Áður fyrr þurfti svo að segja hver maður
á íslandi að vera við því búinn að mæta
hverju, sem að höndum bar í erfiði og
starfi, lítt eða ekki studdur af öðrum en
sínum nánustu. Þá lærðu menn það af
nauðsyn að vera viðbúnir. Nú er þetta
breytt í mörgu tilliti. Samhjálp meiri og
atvinnuhættir margra þannig, að færra get-
ur á óvart komið. Þetta hefur þó þá skugga-
hlið, að það dregur úr fjölhæfninni og
árvekninni.
Ekki er þjóðinni þó minni nauðsyn en
áður, að menn séu viðbúnir, dugmiklir, úr-
ræðagóðir og þekki land sitt.
í starfi skátanna met
ég það mest, að þeim
er kennt það tvennt
í senn: Að bjarga
sjálfum sér og vinna
með öðrum. Án vilja
og getu borgaranna til
sjálfshjálpar og sam-
vinnu má þjóðfélagið
ekki vera, og verður
þess vegna sízt orðum aukið, hvílíkt þjóð-
nytjastarf félagsskapur skáta hefur unnið
og vinnur hér á landi.
Bjarni Bcnediktsson.
HELGI ELÍASSON,
frœðslumálastjóri:
Sannur skáti er dreng-
ur góður.
„Hvað ungur nem-
ur gamall fremur“,
segir gamalt máltæki.
Reynslan hefur sann-
að þetta. Þess vegna
tel ég það geta verið
mikinn ávinning fyrir
verðandi þjóðfélags-
borgara, ef hann á unga aldri tekur þátt í
46
SKÁTABLAÐIÐ