Skátablaðið - 01.12.1952, Síða 9
starfsemi skáta og temur sér þær góðu
dyggðir og háttu, sem þar er lögð áherzla á.
Flest fólk — ungt og gamalt — leitar
einhverrar tómstundaiðju eða athafna
utan hinna daglegu skyldustarfa sinna.
Þetta á ekki síður við um skólanemendur
en annað fólk. Skólinn er aðalstarfsstöð
þeirra Skyldustörfin mega ekki vera svo
tímafrek, að ekki vinnist tími til annarra
hugðarefna. Vel valin tómstundaiðja eyk-
ur þroska og starfsgleði.
Skátastarfsemin er fjölþætt og mannbæt-
andi. Hún hentar vel börnum og ungling-
um. Þess vegna eiga skólastörf og skátastörf
samleið.
Þakkir séu skátafélögunum fyrir vel unn-
in störf undanfarin 40 ár. Þjóðargipta
fylgi störfum þeirra í nútíð og framtíð.
Helgi Elíasson.
BEN. G. VÁGE,
jorseti Í.S.Í.:
Frá bernskuárum mín-
um, hefi ég margar og
ánægjulegar endur-
minningar um veru
mína í skátafélags-
skapnum. Og tel ég
hann einn bezta og
hollasta félagsskap,
fyrir börn og ung-
linga, sem völ er á.
Því þar má segja, að þeim sé kennt allar
góðar dyggðir. Allir skdtar eiga að vera
viðbúnir. Þeir eiga ávallt að vera viðbúnir
vandamálunum, og þá fyrst og fremst vanda-
málum lífsins, þegar þar að kemur. Leita
ekki til annarra, með úrlausnir verkefna,
fyrr en fullreynt er. Skáti er sjálfum sér
trúr. Hann veit að sjálfs er höndin holl-
ust. Skátar læra margt það á uppvaxt-
arárunum, sem kemur þeim að góðum
notum síðar á lífsleiðinni. Þeir læra að
beyta ýmsum áhöldum og tækjum, við dag-
leg störf. Þeir læra að búa sig eftir veður-
fari og ferðast, með áttavita. Þeir læra að
þekkja landabréf, og mæla fjærlægðir. Þeir
læra að tjalda og matbúa og ótalmargt
fleira nytsamlegt. — Skátar iðka íþróttir, og
þá fyrst og fremst hinar nytsömu, eins og
sund, fjallgöngur og útilegur. Þeim er
snemma kennt að bera hvers annars byrgð-
ar. Að vera hjálpsamir við hvern sem í hlut
á. Það sýnir bezt blóðgjafasveit skáta.
Sannur skáti verður fljótt sjálfstæður í
verkum sínum og hugsun. Skátar eru þjóð-
legir. Þeir þjálfa jafnt huga sem hönd, með
góðum félögum. Og komast fljótt að raun
um, að þótt „konungur vilji sigla, hlýtur
byr að ráða“, og eftir því haga þeir sér.
Og er þeir stækka og þroskast, reyna þeir
yfirleitt að vera, sem bezt viðbúnir að leysa
vandamál lífsins. Að framanrituðu tel ég
skátahreyfinguna, vera mannbætandi á
allan hátt, og einn farsælasti gróður vors
unga lýðveldis. — Ég þakka B.Í.S. og skáta-
hreyfingunni fyrir heillaríkt fjörutíu ára
starf, — og óska íslenzkum skátum allra
heilla í framtíðinni.
Ben. G. Wage.
SKÁTABLAÐIÐ
47