Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1952, Síða 12

Skátablaðið - 01.12.1952, Síða 12
sagði Páll. „A£ hverju mundir þú lifa, ef ég hugsaði ekki um allt hér?“ „O, — ég gæti vel komist af án þín,“ svar- aði Pétur kæruleysislega. Þá varð Palli fjúkandi reiður. „Það þætti mér gaman að sjá.“ sagði hann. „Ef þú raunverulega gétur sýnt það í verki, þá skal ég með glöðu geði einnig gefa þér minn hluta af búinu.“ í fyrsta sinni á ævinni virtist nú vakna áhugi hjá Pétri. „Ég geng að þessu,“ segir hann. „Þú ferð héðan, og ert í burtu fimm ár, og ef ég get stundað búskapinn hér eins vel og þú hefur gert, og haft allt í svipuðu ástandi, þegar þú kemur aftur, þá á ég búið einsamall. Ertu samþykkur þessu?“ Pálli gekk að þessu, vegna þess að hann var orðinn þreyttur á leti bróður síns, og vinnu gat hann vafalaust fengið einhvers staðar, svo að það mundi ekki verða hon- um erfitt að hafa ofanaf fyrir sér þessi ár. Ef þetta gæti orðið til þess að kenna Pétri að meta vinnuna að verðleikum. Þá gafst honum tækfæri til þess að reyna það. Palli hugsaði ekki ávallt um sjálfan sig. Og svo fór Palli út í heiminn. Hann fékk vinnu á ýmsum stöðum, og vegna þess að hann var duglegur verkmaður, bar hann talsvert úr býtum. Sparsamur var hann, svo að frá hverjum stað, gat hann alltaf lagt dálítið fyrir af launum sínum. — Það gæti kornið sér vel síðar Þegar þessi fimm ár voru liðin, tók hann saman dót sitt og hélt heim, til þess að sjá hvernig Pétri hafði gengið heinia á búinu. Það leyndi sér ekki. Strax og bærinn kom í augsýn, að þar var ekki allt með felldu. Það var aum sjón, sem blasti við honum. — Mikið verri en hann hafði óttast. Húsið hafði ekki verið málað síðan hann fór, og leit nú mjög hrörlega út. Dyrnar á hænsnahúsinu stóðu opnar og hurðin skellt- ist, þar voru engin hænsni. Og sama var að segja um svínastíuna, hún sttóð opin og tóm. Palli fór inn í eldhús, og sá Pétur þar. Hann var að borða eitthvert snarl, gamalt, hart, þurrt brauð, sem var það eina er fannst ætilegt í húsinu. „Mikil ósköp er að sjá útganginn á öllu hér,“ sagði Palli. „Hvernig hefur það geng- ið hjá þér, Pétur?“ FIMMTUGIR - ÁRNAÐ HEILLA Hendrik Thorarensen, bankaféhirðir, £. v. varaskátahöfðingi. Fimmtugur 13/io- ’52. Carl Hemming Sveins, verzlunarmaður, f. v. stjórnarmeðl. Bís. Fimmtugur 5/io- ’52. HÖRDUR JÓHANNESSON, málameistari, félagsforingi S.F.R. Fimmtugur 20/i2- ’52. Sr. Helgi Konrádsson, prófastur, félagsforingi Andvara, Sauðárkróki. Fimmtugur 24/n. ’52. 50 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.