Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1952, Page 13

Skátablaðið - 01.12.1952, Page 13
„O, — þess þarft þú ekki að spyrja“ sagði Pétur. „Það hefur gengið illa, mjög illa. Ég hef orðið að selja bæði bústofninn og nú seinast húsgögnin, til þess að svelta ekki í hel.“ Palli leit í kringum sig í stofunni. Það var rétt, engin húsgögn voru inni, nema rúmið. „Þú segir satt,“ andvarpaði Palli. „Hér hefur aldeilis verið of mikið að gera fyrir einn mann.“ Það var ekki lengur hátt risið á Pétri, hann var mjög niðurdreginn og yfirbug- aður. „Ég hef reynt að gera það sem ég gat,“ sagði hann, „en ég sá það strax að þetta var mér ofvaxið að reyna að halda í horfinu, svo að síðasta árið hef ég bara verið að bíða eftir því, að þú kæmir heim og tækir við þessu öllu. Því að nú geri ég ráð fyrir að búið tilheyri þér einum. Ég hef staðið mig svo illa, að ég á ekki lengur minn hluta af búinu.“ Nú kom sér vel fyrir Palla að eiga pen- inga. Þær voru margar smugurnar, sem þurfti að fylla. Stofuna þurfti að mála og kaupa húsgögn, og húsdýr varð að kaupa aftur. Það varð að koma ræktun í túnið og garðana, grafa upp úr brunninum, og útsæði varð maður að hafa. „Hér er víst ekkert fyrir mig að gera, eftir það sem á undan er gengið,“ sagði Pétur, þegar hann sá hvernig allt byrjaði að rétta við aftur á bænum. Svo var fyrir að þakka fjármagni Palla og iðjusemi. „Það er víst bezt að ég fari og hugsi um mig sjálfur." „Já, það skalt þú gera,“ sagði Palli, „en þú skalt ekki halda, að við séum skildir að skiptum, af þessu. Nú er það þitt hlutverk að vera í burtu í fimm ár. í þessi fimm ár verður þú að sjá um þig sjálfur, og vinna fyrir þér. Og ef þér gengur vel, og lærir að meta hvers virði vinnan er, þá skalt þú koma hingað aftur, og halda eignarétti þínum yfir helmingi af okkar gamla bónda- býli.“ Þetta fannst Pétri vera bæði réttlátt og mjög sanngjarnt tilboð, en hann var ótta- sleginn, að horfa fram á það að þurfa að bjarga sér upp á eigin spýtur í fimm ár. En það var ekki um annað að gera en reyna, og svo fór hann burtu. Þegar út í heiminn kom, lærði Pétur fljótt, að sá sem ekki vill vinna, fær heldur engan mat. Nú átti hann hvorki dýr eða húsgögn til þess að selja fyrir daglegu brauði. Þegar liin fimm reynsluár — löng og erfið — voru liðin, stóð hann aftur heima á bænum hjá Palla. „Nú get ég unnið hvaða vinnu sem er,“ sagði hann glaðlega. „Láttu mig sjá,“ sagði Palli, því hann trúði honum ekki í fyrstu. Eftir eins dags vinnu á túninu, sá hann breytinguna. Af- köstin voru að vísu ekki mikil, en viljinn til þess að vinna kom í Ijós, og Pétur var ekki lengur hræddur við að taka til starfa. „Nú verður þú hérna hjá mér,“ sagði Palli. „Sem vinnumaður þá?“ spurði Pétur dræmt, því hann vildi vera viss um það, hvort hann hefði staðist prófið. „Nei, sem bróðir,“ sagði Palli, ,og eig- andi að hálfu búinu. En við skiptum ekki búinu í helminga heldur vinnum sameigin- lega við það, þá gengur allt miklu betur.“ Og það varð allt miklu betra. Frá þeim degi urðu bræðurnir einlægir vinir. Og hver sá sem fór fram hjá gat séð, að þarna vantaði ekki vinnuafl. Þar voru starfandi fjórar vinufúsar hendur og fætur, og nú gekk búskapurinn ágætlega, þrátt fyrir, þótt þar einu sinni hafi verið niðurnýtt og rytjulegt kot. (Lauslega þýtt úr „Vi Eínga.) SKÁTABLAÐIÐ 51

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.