Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1952, Qupperneq 14

Skátablaðið - 01.12.1952, Qupperneq 14
BARNATÍMI í ÚTVARPINU. Kvenskátafélag Reykjavíkur minntist 30 ára afmælis síns með hófi í Skátaheimilinu í Reykja- vík þ. 9. nóv. s. 1. og bauð fjölda gesta. Eins og kunnugt er átti félagið 30 ára afmæli þ. 7. júlí s. 1. sumar. Ennfremur stóð K.S.F.R. fyrir barnatíma í útvarpinu þ. 16. nóv. s. 1. Frú Flrefna Tynes, félfor. stjórnaði barnatímanum. NÝR FÉLA GSTORINGI í HAFNARFIRÐI. Eiríkur Jóhannesson hefur verið kjörinn félagsforingi Flraunbúa í Hafnarfirði. Jón Guðjónsson fyrrverandi félagsforingi baðst undan endurkosningu, en hann hefur svo sem kunnugt er verið foringi þeirra undanfarin ár. Frá brezka skátasambandinu hafa borist boð um þátttöku i eftirfarandi mótum ncesta sumar: SKÁTAMÓT AÐ TORQUAY, 22. MAÍ - 12. JÚNÍ 1953. Skátafélagið í Torquay, á suðurströnd Dev- onshire, bjóða skátaflokki (6—8) héðan, þátt. töku í skátaútilegu, ásamt dvöl á heimilum skátanna frá 22. maí til 12. júní 1953. íslenzku skátarnir eru gestir brezku skátanna þennan tíma. Frá 22. maí til 5. júní búa erl. skátarnir á heimilum skátanna í Torquay. Frá 5. til 12. júní verður mótið, á tjaldstað félagsins. Brezku skátarnir útvega tjöld og eldunaráhöld, en gestirnir þurfa aðeins að hafa með sér ein- staklings útbúnað. Reynt verður að haga því þannig, að erl. skátarnir geti komist til I.ondon, þegar krýn- ingin fer fram, eða að minnsta kosti séð um að að þeir fylgist með krýningunni í sjónvarpi. Skátafélagið í Torquay hefur boðið um lOOerl. skátum frá ýmsum þjóðum þátttöku í móti þessu. THE EAST ANGLIAN CORNATION JAMBORETTE 23. MAÍ TIL 4. JÚNÍ 1953. Brezkir skátar frá Norfolk, Suffolk og Cam- bridgeshire bjóða 7 ísl. skátum í heimsókn dag- ana 23. maí til 4. júní 1953. Islenzkn skátarnir verða gestir Bretanna þennan tíma. Yfir hvítasunnuhelgina 23.-25. maí verða brezku skátarnir og gestir þeirra í tjaldbúðum í Sandringham Park. Eftir útileguna er skátunum boðið að bt'ta á heimilum enskra skáta i 10 daga. A þeim tíma ætla ensku skátarnir að reyna að sjá til þess að erl. gestirnir fái tækifæri til þess að fara til London þegar krýningarathöfnin fer fram, eða a. m. k. að þeir fái að fylgjast með athöfninni í sjónvarpi. MANCHESTER AND SOUTH-EAST LANC- ASHIRE INTERNATIONAL JAMBOREE, 25 júli til 16. ágúst 1953. Manchester og Suð-Austur Lancashire skátar bjóða einum skátaflokki eða meira frá Islandi, þátttöku í móti og dvöl á heimilum brezkra skáta næsta sumar. Frá 1. til 9. ágúst verður dvalið í tjaldbúð- um í Dunham Park, Altrincham. Viku fyrir og eftir mótið, búa erlendu skátarnir á heimilum brezkra skáta. ísl. skátarnir eru gestir brezku skátanna, og hafa engin útgjöld (önnur en vasa- peninga) frá þeim tíma er þeir koma til Manc- hester, þar til þeir fara þaðan, eða samtals í þrjár vikur. Skátarnir þurfa að hafa með sér léttan við- leguútbúnað, þar sem ráðgerð er tveggja daga gönguferð, á þeim tíma sem mótið stendur yfir. 52 SKATABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.