Skátablaðið - 01.12.1952, Page 15
LAKELAND CORONATION JAMBOREE.
1. til 15. ágúst 1953.
Þrjú félög skáta í Cumberland West og
Cumberland North and East, ásamt Westmor-
land halda skátamót fyrir ca. Í500 skáta við
Lake Windermere, dagana 1. til 8. ágúst 1953.
Mótstaðurinn er eina mílu frá Ambleside og
fjórar mílur frá Windmere stöðinni, í mjög
fögru umhverfi. Tjaldbúðirnar verða á bökk-
um Brathy árinnar, þar sem hún rennur til
Langdale Valleg. Þátttakendur frá íslandi eru
gestir brezku skátanna, en þátt. greiði ferða-
kostnað að og frá mótstað.
Vikuna frá 8. til 15. ágúst eru skátarnir gestir
ensku skátanna og geta þá búið á heimilum
þeirra eða í tjöldum víðs vegar í nágrenni móts-
ins eftir eigin vali.
RÓVER MÓTIÐ 1953.
Stjórn Bís hefur skipað þá, Sigurð Ágústsson,
Jón Oddgeir Jónsson og Arnbjörn Kristinsson
í undirbúningsnefnd vegna væntanlegrar þátt.
islenzkra R. S. í mótinu í Sviss næsta sumar.
Umsóknir um þátt. eru farnar að berast til
Bís, og ættu félögin sem fyrst að tilkynna, hvort
vænta megi þátttöku frá þeim.
ÍSLENZKUM KVENSKÁTUM BOÐIN ÞÁTT-
TAKA í MÓTI í NOREGI.
Norsku K.F.U.K. skátarnir undirbúa nú stórt
mót, sem haldið verður við Trones, um 80 km
norður af Þrándheimi. Mótið stendur yfir dag-
ana 28. júlí til 5. ágúst 1953. Norsku K.F.U.K.
skátarnir gera ráð fyrir 2—4000 þátt. í mótinu.
ísl. kvenskátum er boðið að senda 5 þátt. á
mót þetta. Sams konar boð hefur verið sent
öllum bandalögum innan alþjóðabandalags
kvenskáta. Erl. skátarnir munu búa meðal
norsku skátasveita, en ekki í sér tjaldbúðum.
Gestirnir eiga að hafa með sér tjald og allan
venjulegan útileguútbúnað.
Mótsgjald er £ 2—5—0—, auk ferðakostnaðar.
Óskað er eftir svari fyrir 15. febrúar 1953, um
hvort við munum senda þátttakendur á mótið.
Fréttabréf úr Hafnarfirði.
Viðburðarríkustu dagar okkar hafnfirzkra
skáta og brennipunkturinn í öllu okkar starfi
hefur um fjölda mörg ár verið Vormótið um
hvítasunnuna.
Að þessu sinni átti að halda mótið á Kjóa-
völlum, en því var breytt á síðustu stundu og
það haldið í Stóra-Bás, sem er í landi Lárusar
Hjaltested, er lánaði það góðfúslega.
Mótssetning fór síðan fram kl. 7 s. d. laugar-
daginn 29. maí með 94 þátttakendum meðal
annars frá Keflavík og Kópavogi. Veður var gott
mótsdagana, þó að norðan kaldi blési og hita-
stigið færi niður fyrir frostmark á næturnar.
Mótið fór fram með svipuðu sniði og undan-
farið: íþróttir iðkaðar, farið í leiki og göngu-
ferðir um nágrennið. Bæði kvöldin voru varð-
eldar og var skemmt með söng, hljóðfæraslætti
og leikþáttum. Á báða varðeldana kom Hörð-
ur Jóhannesson félagsforingi úr Reykjavík og
skemmti hann skátunum með skopsöguflutn-
ingi. Með Herði kom sænskur skáti, Áki Ander-
son frá Kalmar og dvaldi hann á mótinu báða
seinni daga þess. Áki varð sérlega vinsæll meðal
skátanna vegna harmonikuleiks síns sem hlaut
ágætar undirtektir.
Sérstakan svip setti útkoma „KJÓANS“ á
mótið, en Kjóinn var fjölritað blað, sem kom
Vormótið 1952. — Tjaldbúðir. — Mótslit. —
SKATABLAÐIÐ
53