Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1952, Blaðsíða 18

Skátablaðið - 01.12.1952, Blaðsíða 18
í fyrra sumar var Væringjaskálinn að Lækjarbotnum 30 ára. Vegna rúmleysis hef- ur dregist að byrta þessa grein fyrr. Árið 1920 hófust foringjar Skátafélags- ins Væringjar í Reykjavík handa um að koma sér upp skátaskála að Lækjarbotnum, og var því verki lokið í júlí 1921. Staðurinn var þá talsvert meira afsíðis en nú er, enda voru ferðalög með bifreiðum ekki orðin þá jafn algeng og nú. Þá voru skátarnir rúma klukkustund að lrjóla upp að Lög- bergi, og þaðan var um 20 mínútna gangur upp í skála. Þá var unnið í daglaunavinnu frá kl. 6—6, og búðir opnar jafnt laugar- daga sem aðra daga til kl. 7 á kvöldin. Á þeim tíma var þess vegna brottfarar- tími úr bænurn kl. 9 á laugardagskvöldin, en ekki kl. 2 eða 4 e. h. svo sem nú er al- gengast. Samt sem áður var ekki síður en nú farið í útilegur um helgar, og oftast á reið- hjólurn eða gangandi. Þeir Axel V. Túliníus og Ársæll Gunn- arsson, sem þá voru aðalforingjar Væringja, stóðu aðallega fyrir útvegun fjármagnsins til efniskaupa í skálann, en þeir sem mest unnu við bygginguna voru: Guðmundur Helgi Pétursson, Frímann Ólafsson, Axel Gunnarsson, Sigurður Gunnars (Dengsi), Ólafur R. Björnsson, Angantýr Guðmunds- son, Lárus Jónsson, Brynjólfur Vilhjálms- son, ísleifur Gíslason, Þórður Þórðarson (læknir) og fl. Skálinn var upphaflega byggður í forn ísl. stíl, með hlöðnum veggjum úr torfi og grjóti, klæddur timbri að innan, með skar- súð og sperrum, en timbur göflum. Stór stofa er í vestur enda, en svefnskáli í austur, inngangur í andyri og eldhús í miðju. Rúm er í svefnskála fyrir 25—30 manns og er þá miðað við tvo í flestum rúmum, en oft hafa dvalið í skálanum um nætur sakir mik- ið fleiri. Síðar voru hlöðnu veggirnir rifnir, en timbur og járn sett í staðinn. Allt frá því skálinn var byggður hefur hann verið mikið notaður, bæði sumar og vetur. Árið 1938 þegar Væringjar og Ernir voru sameinaðir í eitt félag, Skátafélag Reykja- víkur, gekk Væringjaskálinn í eigu þess félags. Félagar S.F.R. skipta nú hundruðum, og eiga þeir marga útilegu skála, en tryggð sinni hafa þeir ávallt haldið við gamla Væringjaskálann í Lækjarbotnum, þótt liann rúmi nú aðeins lítinn hluta félags- ins. Staðurinn, sem honum var í upphafi valinn, þykir svo góður, að nú er þegar að mestu lokið við að reisa annan Lækjarbotna- skála við hliðina á þeim gamla. Vonandi verður gamli skálinn varðveittur og haldið við í sinni rnynd, sem verðugur þeirra minn- inga, sem við hann eru tengdar, eftir öll þau ár, sem Reykjavíkur skátar hafa notið úti- lífsins í skjóli þeirra þæginda, sem hann veitti þeim. Síðastliðin fimm ár a. m. k. hefur Guð- mundur Magnússon, klæðskeri verið skála- vörður. Þar er Guðmundur á sinni réttu hillu, — húsbóndi á sínu heimili — og gætir skálans og alls, sem honum tilheyrir sem sjáaldurs augna sinna. 56 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.