Skátablaðið - 01.06.1954, Síða 15
NÝTT SKÁTAFÉLAG.
Hinn 22. febrúar s. 1. var skátafélagið Ægir
í Ólafsvík stofnað. Stofnendur voru 8 drengir
og 8 stúlkur. Tveir skátaforingjar frá Borgar-
nesi, þeir Lúðvík Þóarinsson og Sigurður Sól-
mundarson, eru fluttir til Ólafsvíkur, og stóðu
þeir að stofnun félagsins. Félagsforingi er
Sigurður Sólmundarson. í vor voru félagarnir
orðnir um 30 talsins og var lært af kappi undir
nýliða og annars flokks prófið.
FULLTRÚI FRÁ WORLD BUREAU
HEIMSÆKIR ÍSLAND.
Hinn 11. marz s. 1. kom til Reykjavíkur
Madame Ada P. Cornil, sendifulltrúi frá Al-
þjóðastjórn kvenskáta í London, í heimsókn
til ísl. kvenskáta. Atti Madame Cornil hér að-
eins 3ja daga viðdvöl og gat þess vegna aðeins
kynnt sér starfið í Reykjavík.
Nánar er skýrt frá heimsókn Madame Cornil
á öðrum stað í blaðinu.
SKÁTABLAÐIÐ.
Þetta ár, a. m. k. mun Skátablaðið koma út
með þrílitri kápu. Verð blaðsins er kr. 15.00 á
ári. Allir skátar, er vilja fylgjast með því, sem
er að gerast í skátastarfinu, þurfa að kaupa og
lesa Skátablaðið.
„]AMBOREE“.
„Jamberee", mánaðarrit Alþjóðabandalags
drengjaskáta, birtir ágætar greinar og myndir
frá skátastarfi víðs vegar að úr heiminum. Blað-
ið kostar 30.00 kr á ári. Skrifstofa Bís, pósthólf
831, Reykjavík, tekur á móti áskrifendum að
„Jamboree“.
KVÖLDVAKA í SKÁTAHEIMILINU
í REYKJAVÍK.
Hinn 27. febrúar s. 1. stóð K.S.F.R. fyrir kvöld-
vöku og kaffidrykkju í Skátaheimilinu í Reykja-
vík. Komu þar saman kven- og drengjaskátar
úr bænum, auk þess sem nágrannafélögum
Reykjavíkur og fulltrúum félaga frá fjarlægari
stöðum, sem staddir voru í bænum, var boðin
þátttaka.
Frú Hrefna Tynes, félagsforingi Kvenskáta-
félags Reykjavíkur stjórnaði kvöldvökunni. Hús-
fylli var og skemmtu menn sér hið bezta.
Skátafélag Reykjavíkur stóð fyrir sams konar
kvöldvöku í fyrra.
ÞÁTTTAKA í ERLENDUM MÓTUM 1954.
Skrifstofa Bís hafa borizt umsóknir um þátt-
töku í tveimur erlendum mótum í sumar. Hafa
6 skátar frá Hraunbúum, Hafnarfirði, sótt um
þátttöku í skátamóti í Danmörku við Fakse
Ladeplads á vegum Lyngby division.
Einnig hafa 5 umsóknir borist um þátttöku
í 5th Scottish International Patrol Jamborette,
Blair Atholl , Skotlandi, þar af 3 frá Reykja-
vik.
ÚTVARPSMESSA SKÁTA Á
SUMARDAGINN FYRSTA.
Á Sumardaginn fyrsta, 22. apríl s. 1. gengu
skátar fylktu liði um götur Reykjavíkur undir
fánum og með Lúðrasveit Reykjavíkur í farar-
broddi. Að göngu lokinni, rétt fyrir kl. 11 ár-
degis, var staðnæmst við Dómkirkjuna og gengið
í kirkju. Fánavörður stóð í kór, eins og venju-
lega, og önnuðust skátarnir sjálfir sönginn í
kirkjunni. Prestur var séra Emil Björnsson.
Á Sumardaginn fyrsta endurnýja skátarnir í
kirkjunni skátaheiti sitt.
SKÁTASKEMMTUN í REYKJAVÍK 1954.
Skátafélögin í Reykjavík halda ævinlega eina
sameiginlega skátaskemmtun á ári hverju. Er
vandað til þessara skátaskemmtana eftir föng-
um, og þykja þær jafnan mikill viðburður í
skátastarfinu. Sameiginleg nefnd beggja félag-
SKATAB LAÐIÐ
13