Skátablaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 6
LANDSMÓT
1966
Á meðan aðalsildarvertíðin stendur sem
hcest fyrir norður- eða austurlandi næsta
sumar, þá munu ýmsir furðufiskar ,ysynda“
um grundirnar fyrir ofan fossinn Glanna
i Norðurá í Borgarfirði.
A?mars staðar i þessu blaði finnur þú
ýmsar uþþlýsingar um hvað þessir furðu-
fiskar œtla sér að hafast að þessa 7—8 daga
og verður það því ekki frekar rakið hér.
En verður þú einn af þessum furðufisk-
um? Ekki er það ósennilegt, þar sem annar
eða þriðji hver starfandi skáti á landinu
mun dvelja á Landsmótinu í sumar. Og
auk þeirra milli tvö og þrjú hundruð frá
öðrum löndum.
Já, það verður margt um að vera hjá
þessum furðufiskum, hvort sem þeir eiga
bústað í Kyrrahafinu, Indlandshafinu eða
jafnvel í Þanghafinu með mömmu og þabba.
En ert þú farinn að undirbúa þig undir
ferðina um úthöfin? Ert þú tilbúinn að
að fara i kjölfar Leifs heppna, Columbusar
eða ef til vill með Maggellan umhverfis
jörðina? Eða ert þú tilbúinn að ,jigla“ með
Nansen eða Amundsen inn í ísauðnir heims-
skautanna?
Og hvað með eyjuna eða landið, sem félag
þitt hefur valið fyrir ykkur? Ert þú búinn
að leita þér upplýsinga um fólkið, sem býr
þar, siði þess og venjur, staðhœtti, landslag
og annað þess háttar? Er flokkurinn þinn
eða sveitin búin að útbúa leikþátt eða sýn-
ingu, sem sýni lifið á eyjunni ykkar eða í
landinu? Eða voru þið ef til vill að hugsa
um að búa til lika?i til að hafa í tjaldbúðun-
Ingólfur Ármannsson, mótsstjóri.
um ykkar? Og hvernig á nú hliðið ykkar að
vera?
Já, það er rnargt hœgt að gera og ótelj-
andi möguleikar.
Við biðum þá spermt eftir að hitta þig á
mótinu i sumar og sjá allt, sem þið verðið
búin að útbúa og hafið með ykkur.
Mótstjórn.
Undirbúningur fyrir landsmótið er nú í
iullum gangi. í Reykjavík hefur verið sett
upp skrifstofa landsmótsins, þar sem fram-
kvæmdastjóri þess hefur aðsetur.
Ut eru nú komin þrjú dreifibréf og hafa
þau að geyma ýmsar nytsamar upplýsingar
fyrir foringja.
Birtur hefur verið matseðill og eftir hon-
um að dæma á ekki að svelta á mótinu.
Fram er einnig komin verkefnaskrá sú, sent
flokkar þeir, sem taka þátt í flokkakeppni
mótsins, svo og einstaklingar geta tekið
þátt í.
30
SKÁTABLAÐIÐ