Skátablaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 14
LJÓSÁLFAR, það er komið sumar, og
ótal verkefni bíða ykkar.
Ég er hér með kveðju frá blómum, skelj-
um, kuðungum og steinum, og alla þessa
vini ykkar langar til að gleðja ykkur og
fá ykkur með í leik. Og til þess að eyða
ekki fleiri orðum í formála, þá skulum
við í sameiningu athuga, hvað jsessir vinir
okkar vilja.
Þetta eru S-in 3, það er: Safna—Starfa—
Sýna. Þetta verkefni getur dugað ykkur í
allt sumar og fram að jólum, auðvitað með
öðru, sem þið eigið að vinna að.
1. Blóma- og jurtasöfnun.
Þið safnið blómum, stráum, lyngi og
öðrum gróðri, sem ekki hefur of svera
leggi eða þykkar blómkrónur .Þurrkið gróð-
urinn í gömlum dagblöðum því ný blöð
gefa frá sér svertu og skemma fyrir ykkur
blómin. Þið látið blómin ligja á milli blað-
anna í 2 daga, þá skifitð þið um pappír,
sléttið úr blöðum og leggjum, svo að jurtia
liggi sem sléttust. Pressið lítils háttar. Það
er margt hægt að skreyta með þurrkuðum
blómum, en nú skuluð þið endilega reyna
að nota hugmyndaflugið og „finna upp
margt nýstárlegt.“
a) Þið getið búið til veggmynd, límt blóm-
in á svartan, hvítan eða mislitan kar-
ton eða annað það undirlag, sem ^r
fyrir hendi.
b) Þið getið skreytt kort, sem nota má fyrir
38
jóla-, afmælis- eða fermingarkveðju, eða
til að skrifa vinum ykkar á.
c) Þið getið búið til borðkort eða smá-
spjöld með gjafapökkum.
d) Þið getið búið til 6—12 kort og látið ;
fallegan pakka og notað hann í jóla- eða
afmælisgjöf handa einhverjum.
e) Þið getið skreytt stóran eldspýtustokk á
sófaborðið hennar mömmu eða ömmu.
Það er margt hægt að gera, en gætið þess
að fara varlega með jurtina, svo að hún
molni ekki í höndunum á ykkur, bera ekki
mikið lím á hana, þá verður hún klístrug
og sóðaleg. Þegar þið eruð búin að líma,
þá skuluð þið ekki strjúka yfir með hend
inni, heldur leggja hreina örk ofan á mynd
ina eða kortið og þrýsta hendinni ofan á
örkina, en ekki fast. Mikið væri nú gaman
að geta séð ykkur, þegar þið eruð að dunda
við þetta, ég er viss um, að þið eruð þá
margar með tunguna út í öðru munnvik-
inu.
¥E!ZIU...?
Veiztu, að skátar í heiminum eru
orðnir tæpar 18 milljónir. Og veiztu
líka, að með árinu INN í HRING-
INN leggjum við okkar skerf að því,
að þeim fjölgi enn meir.
SKÁTABLAÐIÐ