Skátablaðið - 01.04.1966, Page 10
Að þessu sinni tekur I lokkskistan til með-
ferðar suðuelda og ýmsar aðrar gerðir
þeirra.
Sem kunnugt er þá er mikilvægt að öll-
um líði sem bezt á landsmótinu og matur-
inn er þar ekkert smáræði.
Flokkskistan upplýsir að á döfinni muni
vera útgáfa matreiðlubæklings, sem síðar
eigi að verða undirstaða útilegumatreiðslu-
bókar skáta.
Flokkskistan bendir flokkunum á að hú i
kemur út á landsmótinu.
Snúum okkur þá að eldunum. Eldinum
er haldið við með því að bæta eldsneyti
þannig á að miðja bálkastarins sé sífellt
logandi, svo sem sést á því hvernig brenn-
inu er raðað upp (efst t. h.).
No. 1 er eldskíð, klofin þurr, mjúkur
viður, sem skal láta innst í kjarna bálkast-
arins.
2. er hlaði af grönnum greinum, sem sett-
ar eru utan um eldskíðin og þá er tími ti!
að nota eldspýturnar. Ef þið viljið spara
eldiviðinn þá skuluð þið nota stjörnueld-
inn, sem er gert á þann hátt, að viðarbútar
eru lagðir á jörðina, þannig að þeir mynda
stjörnu og snúa öðrum endanum að sam-
eiginlegri miðju, þar sem eldur er kveiktur
á sama hátt og á mynd 1, 2 og 3. Honum er
haldið við með því að ýta bútunum lengra
inn að miðju.
4—6 sýna okkur svo að við eigum fyrst að
setja granna eldiviðinn á eldinn, og síðan
sverari og sverari.
7 eru hlóðir með pýramídaeldi.
Hlóðir eru mjög heppilegar hér á landi,
enda hafa þær löngum verið notaðar hér.
Pýramídabálið er undirstaða allra gerða a£
eldum. Hann er notaður til þess að kveikja
34
SKATABLAÐIÐ