Framsókn - 22.06.1960, Side 3
FRAMSÓKN, BÆJARMÁLABLAÐ
3
að við innlieimtu, er víxlarnir
lentu í vanskilum.
Ekki er tekið fram, hve
hárri uppliæð þetta nemur og
ekki er unnt að reikna það út.
6. Jón. N. Sigurðsson.
Gunnar Hali telur Jón N.
Sigurðsson hafa lánað Ragnari
Blöndal h. f. fé með svipuðum
kjörum og hann heldur fram
að Guðjón Hólm og Sigurgeir
Sigurjónsson hafi lánað.
Jón N. Sigurðsson segist hafa
selt víxil fyrir Gunnar Hall,
samþ. af Ragnari Blöndal h. f.
að upphæð kr. 100.000,00 til
Péturs Péturssonar, sem hafi tek
ið í forvexti kr. 2.000,00, sem
samsvari 8% ársvöxtum, auk
þess kveðst hann hafa fengið
sölulaun kr. 2.000,00 og stimp-
ilgjald hafi verið greitt kr.
240,00. Auk þess kveðst Jón
hafa selt Páli Einarssyni 3
víxla að upphæð samtals kr.
50.000,00 og tók Páll í afföll
kr. 2.600,00. Telur Jón það
sem næst 2% á mánuði og auk
þess hafi hann fengið í sölu-
laun kr. 1.000,00 og fyrir stimp-
ilgjald kr. 120,00. Skýrslu Jóns
um vaxtakjörin og kostnað sam
þykkti Gunnar Hall.
Jón viðurkennir að hafa tek-
ið á móti vöxtum, sölulaunum
og stimpilgjaldi samtals að
upphæð kr. 7.960,00.
7. Hörður Ólafsson.
Gunnar Hall telur Hörð
Ólafsson hafa lánað Ragnari
Blöndal h. f. fé og tekið í vexti
3% á mánuði eða þar um bil.
Hörður kveður fyrstu við-
skipti þeirra, að hann hafi selt
Gunnari víxil 10—20 þúsund
til þriggja mánaða og hafi af-
föllin verið 10% og auk þess
2% þóknun til hans. Upp úr
þessu kveður hann hafa orðið
töluverð viðskipti milli þeirra
á sama grundvelli og með sömu
kjörum, en aldrei hafi þó velt-
an orðið meiri en við skulda-
skilin, en þó gerði Hörður
kröfu um kr. 234.528,00.
Þessar upplýsingar nægja
ekki til að reikna út heildar-
upphæð vaxta, sem Hörður við-
urkennir að hafa tekið á móti.
8. Þorsteinn Sigurðsson.
Gunnar Hall telur Þorstein
hafa keypt af Ragnari Blöndal
h. f. víxil að upphæð kr.
200.000,00 til 6 mánaða og tek-
ið í forvexti 2% á mánuði.
Þorsteinn kveður rétt, að
hann Iiafi keypt greindan víx-
il, en kveðst aðeins hafa tekið
forvexti miðað við 7% árs-
vexti, svo og stimpilgjald af
víxlinum.
Þorsteinn viðurkennir þann-
ig að liafa tekið á móti vöxt-
um og stimpilgjaldi kr. 7.480,00.
9. Hjálmtýr Pétursson.
Gunnar Hall taldi, að Hjálm
týr Iiefði keypt 1 eða 2 víxla,
samtals að upphæð 233.000 kr.
til eins mánaðar. Greiddi hann
fyrir víxilinn kr. 227.000,00.
Mismunurinn var vextir og
stimpilgjald. Víxlar þessir voru
svo sameinaðir í einn víxil til
eins mánaðar, án vaxtagreiðslu.
Hjálmtýr viðurkennir því
að hafa tekið á móti kr. 6.000,
00.
10. Jónas Thoroddsen.
Gunnar Hall telur Jónas
hafa keypt 6 mánaða víxil að
upphæð kr. 125.000,00 og greitt
fyrir hann kr. 97.500,00 eða
98.500,00. Mismunurinn hafi
verið forvextir.
Jónas kveðst hafa selt víxil
kr. 125.000,00 til 6 mánaða
eins og Gunnar segir. Víxilinn
kveðst hann hafa selt Lárusi
Ottesen kr. 105.000,00 og er
það staðfest af Lárusi, en auk
þess kveðst hann hafa tekið
lántökugjald fyrir starf sitt, kr.
6.250,00, og fékk því Gunnar
Hall, en af honum segist hann
liafa keypt víxilinn, kr. 98.750,
00.
Jónas viðurkennir því að
liafa tekið á móti kr. 26.250,00
í vexti og kostnað.
Ekkert af þessum vaxta- og
kostnaðargreiðslum, sem tald-
ar eru hér á undan, eru færðar
í bókhaldi Ragnars Blöndal h.
f. og ekki hef ég heldur fundið
ófærð gögn um þær.. Eg tel
ekki unnt, samkvæmt upplýsing
um þeim, sem fyrir hendi eru,
að reikna út nákvæmlega heild
arupphæð þessara greiðslna, þar
sem í mörgum tilfellum vant-
ar fullnægjandi skýrslu um
upphæð viðskiptamanna og
ýmsir kaupendur víxlanna við-
urkenna ekki staðhæfingar
Gunnars Hall, nema hluta,
eins og rakið hefur verið hér
að framan.
3. spurning:
Endurskoðunarskrifstofa Man
chers fe Co. endurskoðaði reikn
inga firmans frá upphafi og
gerði reikninga þess upp um
hver áramót og frá 1. október
1952 færði skrifstofan bókhald-
ið. Ekkert bendir til annars,
en að endurskoðunarskrifstof-
an hafi gert reikningana rétt
upp samkvæmt þeim gögnum,
sem lienni voru kunn á hverj-
um tíma. Engin gögn eru held
ur í þeim skjölum, sem mér
voru afhent til athugunar, sem
nægja til þess að breyta upp-
gj ör u m endurskoðunarskrifstof-
iinnár, en auk þess vantar tölu
vert af fylgiskjölum með bók-
haldinu, bæði einstök fylgiskjöl,
sem tekin hafa verið til at-
hugunar og ekki látin aftur á
sinn stað, og heildarmöppur,
sem glatazt hafa, enda virðist
ekki hafa verið svo góð geymsla
á fylgiskjölunum, að búast
héfði mátt við öðru.
Athugasemdir við
við efnahagsreikning:
Á efnahagsreikningi eru eign
ir og skuldir færðar eins og þær
koma út samkvæmt bókhaldi fé-
lagsins, þégar búið er að taka
inn í það allt, sem fram kom
við skuldaskil þess, en ekki eins
og eignir og skuldir raunveru-
lega eru, og þarf því að athuga,
hvað bak við tölurnar er .
Eignaliðir:
1. Inneign á hlpr. í Landsbk.
kr. 76,95, er raunveruleg.
2. Peningar í sjóði, kr. 367.
191,38, eru ekki til, að sögn
Gunnars Hall.
3. Útistandandi skuldir við-
skiptamanna, kr. 8.505.455,42,
eru svo til eingöngu víxlar, er
félagið hefur greitt og ekki
tekizt að finna í bókhaldi fé-
lagsins, og andvirði þeirra við
sölu hafi komið inn til þess.
Hafa þá verið samþykktir
víxlar eða fært sem verðmæti
frá viðskiptamönnum, kr. 5.
060.509,43, sem ekki hafa
fundizt greiddir víxlar fyrir, svo
öruggt sé. Ekki er ólíklegt, að
þessi upphæð sé innifalin í
þeim víxlum, sem greiddir
voru af félaginu með öðrum
upphæðum eða öðrum dagsetn
ingum, vegna þess, að fram-
lengingar hafa ekki verið færð
ar í bókhaldinu. Sé þetta tekið
svo, er óupplýst, hvaða verð-
mæti félagið hefur fengið fyrir
greidda víxla að upphæð kr.
3.139.662,75.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ólafi Þorgrímssyni er enn ó-
greiddur víxildómur, kr. 40,
000,00, að viðbættum kostn-
aði, til Guðmundar Kristjáns-
sonar, sbr. Hæstaréttardóm 21.
nóvember 1955 og er sá víxill
ekki færður í bókhaldinu og
ekki vitað, hvaða verðmæti
Ragnar Blöndal h. f. hefur
fengið fyrir þann víxil og má
því bæta lionum við óskýrðár
greiðslur til viðskiptamanna.
Gunnar Hall telur, að verið
geti, að eitthvað af skuldum,
sem taldar eru hjá eftirtöldum
aðilum, séu fyrir vörur, sem
hafi ekki verið færðar vöru-
reikningi til skuldar:
Ámundi Sigurðsson, Heild-
verzlun Áma Jónssonar h. f.,
Berg, heildverzlun, Björn Mek-
kinósson, Einar Storr, Kristj-
ánsson h. f., Northen Trading,
Sigurgeir Vilhjálmsson, Verzl-
unarfélagið Borg, Kristján Þor-
valdsson £c Co.
Með tilliti til útkomu vöm-
reiknings, getur hér ekki verið
um stórar upphæðir að ræða.
Þá telur Gunnar Hall, að
skuldir, sem taldar eru hjá eft
irtöldum aðilum, séu greiðslur
á peningalánum eða lánuðum
víxlum, sem hann kveðst hafa
tekið fyrir félagið, en ekki fært
í bókhaldinu:
Agnar Lúðvíksson, Álfafell,
Ásbjörn Ólafsson, Bláfell,
Brandur Brynjólfsson, Edda
(Árni Bjarnason) Akureyri,
Einar Magnússon, Fasteigna-
og verðbréfasalan, Guðmundur
Guðmundsson, Guðmundur
H. Þórðarson, Gunnar Hall,
Hjálmtýr Pétursson, Helgi
Benediktsson, Högni Jónsson,
Jóhannes Gunnarsson, verzlun,
Jóhann Karlsson &: Co., Jóhann
Petersen, Jón Heiðberð, Kristj
án Eiríksson, Lilla, Lúðvík
Eggertsson, Magnús Árnason,
Magnús Valdimarsson, Matthí-
assen, Jón, Nafnlausir víxlar,
Pál S. Pálsson, Páll Jóh. Þor-
leifsson, Portland, Ragnar
Björnsson, Ragnar Ingólfsson,
Sigurður Halldórsson, Sigurður
Skjaldberg, Sigurgeir Sigurjóns-
son, Snorri Jónsson, Sólblik,
Svalan, Vilhjálmur Jónsson.
Þó að þetta kunni að vera
rétt, skýrir það ekki það, sem
vantar, því að hefðu lánin ver
ið færð, hefði vöntunin í sjóði
orðið sem því svarar hærri.
Hins vegar er ljóst af upp-
lýsingum, sem komu fram við
yfirheyrslur, að allveruleg upp
hæð af vöxtum og kostnaði við
lántöku, er ófærð, sjá svar við
2. spurningu.
Þessi tvö atriði: Ófærðir
vörureikningar og sérstaklega
ófærðir vextir og kostnaður af
ófærðum peningalánum, gefa
nokkrar skýringar á því, sem