Framsókn - 22.06.1960, Blaðsíða 7

Framsókn - 22.06.1960, Blaðsíða 7
FRAMSÓKN, BÆJARMÁLABLAÐ 7 endurtekningu hliðstæðra að- gerða lijá ísfélaginu. Á árinu 1940 var hafin skattalierferð á liendur Helga Benediktssyni og hann látinn það ár greiða fjórða hluta allra útsvara í Vestmannaeyjum og á hann voru lagðir skattar til rík- isins á þremur árum, sem varð að lækka til leiðréttingar um hvorki meira né minna en hálfa milljón króna, og varð það eina starfið, sem hinn svokall- aði rannsóknardómari í skatta- málum vann. Þá var um áratugs skeið haldið uppi látlausum „svokölluðum réttarrannsókn- um“ gegn Helga Benediktssyni og talar það sínu máli um að- ferðir allar, að rannsóknardóm- arinn, sjálfur „stórdómarinn" var látinn víkja, en starfsmenn hans sektaðir og mólesteraðir. Sjálfum var Helga misþyrmt og hann limlestur fyrir augum barna sinna. Bókhaldi Helga var sundrað, týnt og eyðilagt, og bókhalds- gögnum haldið enn þann dag í dag. Þetta hefur að vonum ekki gengið með öllu sporlaust yfir fjölskyldu Helga Benediktsson- ar. Ein af afleiðingunum eru blindfæddir tvíburar, svo fleira verði ekki tiltínt að þessu sinni. Þess munu engin dæmi, að íhaldsstjórnar bæjaívaldameiri- hluti hafi hundelt nokkursstað- ar á landinu atvinnurekstur andstæðings í stjórnmálum eins og gert hefur verið í Vestmanna eyjum gagnvart Helga Bene- diktssyni. Lítið dæmi um aðfar- irnar er það, að það var látið afskiptalaust, er kúm í kúabúi Helga Benediktssonar var tví- vegis nauðhaldið á s. 1. hausti með þeim afleiðingum að sum ar kúnna létu kálfunum, og veit þó lögreglan hverjir þarna voru að verki. Nú þegar langvarandi veik- indi hafa sorfið að á heimili Helga Benediktssonar með þeim afleiðingum, að hann hef ur þurft að leysa upp heimili sitt og koma yngstu börnunum fyrir hjá frænd- og venslafólki, vegna þess, að kona hans fylgdi veikum syni til sjúkrahúsvist- ar í Reykjavík til áframhald- andi glímu um líf og heilsu er talinn heppilegur tími til þess að freista þess enn á ný að brjóta niður þrek Helga Bene- diktssonar og fjölskyldu hans. Því hefði seint verið trúað, að bæjarvöld í Vestmannaeyjum beittu meginorku sinni í þá farvegi að reyna að hindra og torvelda fiskverkun og útgerð frá Eyjum. Það ber ekki allt upp á sama dag. Jóhann Þ. Jósefsson, sem um langan aldur hefur verið bakherji Ársæla og Guðlauga til illverka, myndi ekki hafa gert því skóna, þegar hann var að skera niður úr snörunum, að þessi sami Guðlaugur ætti eftir að bola honum frá mann virðingar- og trúnaðarstöðum og Ársæll síðan að hyggjast taka sæti Jóhanns hjá S. í. F. Það er haft á orði, að ein- hver ljósfælni grípi Ársæl, er hann siglir frarn hjá Faxaskeri og haldi sig þá lítt ofan þilja, getur eru leiddar að orsökum þessarar hlédrægni á þessum stað, þar sem Ársæli er yfirleitt annað betur lagið en hlédrægn in og framhleypnin situr oftast í fyrirrúmi. Þegar svo er kornið, að skamm sýnir menn hyggjast beita þjóð- félags- og bæjarvaldinu til þess að brjóta á bak aftur réttmæta gagnrýni, þá er venjulega skammt til ófarnaðar sjálfra jjeirra, sem slíkum brögðum beita, það er nú einu sinni svo og hver tíð hefur sín takmörk. Gagnmerkasti dómsmálaráð- herra, senr með völd hefur far ið hérlendis, lét eitt sinn orð falla á þá leið, að tukthúslaust íhald væri álíka illa sett og kirkja án helvítis, en svo kann þó að fara, að handhöfum tukt húslyklanna og umbjóðendum helvítis kunni að verða vandfar ið með umboð sitt um það lýk- ur. En til eru þeir, sem hefðu kosið Jóhanni Þ. Jósefssyni annað veganesti en það, er hann hefur sjálfur valið sér áð- ur en hann leggur á brattann. SSSgSSSSSSSS28S828SSSS8SSSSSSS2SS8SSSS2SSg2S2SSS2?,2 Herbergi óskast strax. — Upplýsingar í síma 206. ■SSSSSSSSSSS82SSSS8SSS8SSS8SSSSSSSSSSSSS3SSSSS8SSSS öf »0 FRAMSÓKNÍ BÆJARMÁLABLAÐ | Ritstjóri og ábyrgðarmað- | ur af hálfu ritnefndar p FRAMSÓKNARMANNA: | I HELGI BENEDIKTSSON | I PRENTSMIBJAN EYRÚN H.F. SSS2828SS3S28S888SSSSSS88S83S2SSSSS2SSSSSSSS82SSSSSS Bifreiðin V-181 er til sölu nu þegar. Nánari upplýsingar í sínia 662. MÁR GUÐMUNDSSON. TILKYNNING TIL VIÐSKIPTAVINA VORRA. Frá og með 1. júlí n. k. verður öll þjónusta Flugfélags ís- lands h. f., svo sem farseðlar og fragtflutningar, aðeins látin í té gegn staðgreiðslu. FLUGFELAG ÍSLANDS H. F. SSS2S2SS8S82S8S2S2S2SSS2328SS2S2S2S2S2S2S2S2S232S2S2S28SSSSSS2SS32S2SSS8S2SSS2SSSSS2S2S2SSSSSSSS3SSSSS83S2» TROLL OG DRAGNÆTUR. Frá Iver Christensens Vaadbinderi, Skagen, get ég boðið: Humartroll ..................................danskar kr. 1.020,00 Nylon koladragnætur .............................. — — 1.817,00 Bómullar koladragnætur ................ — — 920,00 Manillatvinna koladragnætur ...................... — — 870,00 Fiski dragnætur .................................. — — 948,00 PÁLL ÞORBJÖRNSSON Flugáætlun til og (rá Veslmannaeyjum REYKJAVÍK: Mánudaga 1 ferð kl. 8 síðdegis. Þriðjudaga 2 ferðir, kl. 9,30 f. h. og kl. 8 síðdegis. Miðvikudaga 2 ferðir, kl. 10,30 f. h. og kl. 8 síðdegis. Fimmtudaga 2 ferðir, kl. 9,30 f. h. og kl. 8 síðdegis. Föstudaga 2 ferðir, kl. 9,30 f. h. og kl. 8 síðdegis. Laugardaga 2 ferðir, kl. 10,30 f. h. og kl. 8 síðdegis. Sunnudaga 1 ferð, kl. 5 síðdegis. HELLA: Miðvikudaga 1 ferð, kl. 9,30 f. h. SKÓGASANDUR: Laugardaga 1 ferð, kl. 9,30 f. h. Afgreiðslan er opin daglega frá kl. 9 til 12 f. h. og kl. 4 til 9 síðdegis, nema laugardaga kl. 9 til 12 i. h. og kl. 7 til 9 síðdegis, og sunnudaga kl. 4 til G síðdegis. FLUGFÉLAG ÍSLANDS H.F. Afgreiðslan í Vestmannaeyjum. S2SSS2S232323SSSS2S2S2S2SSS2SSS2S2SSS2S2S2S2S2SSSS32S232SS32S2S2SSS2SS3SS23SS2S2SSS2S2S2SSS2S232S232SS32S3 Allskonar veitingar Seljum allskonar veitingar. Fast fæði og einstakar máltíðir. Önnumst veizlur og samkvasmi. Leigjum herbergi og sali til fundahalda. Hótel Símar: 421 og 422. - SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSgsaSSSSSgSSSgsasgggaeggasaagsg^o^g,

x

Framsókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsókn
https://timarit.is/publication/880

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.