Framsókn - 22.06.1960, Qupperneq 8
8
FRÁMSÓKN, bæjarmálablað
Fréttir
Frá því var sagt í síðasta blaði
hversu forráðamenn Landssam-
bandsins hleyptu loftinu úr
þeim Baldri Guðmundssyni og
Bimi Guðmundssyni í sam-
bandi við umræðurnar um fisk
verðið, en Björgvin Jónsson al-
þingism. útmálaði háðung
þeirra í fundarlokin.
Það telst þess vegna til tíð-
inda, að Björn Guðmundsson
hefur sótt í sig veðrið á ný og
mætti á Sjómannadaginn með
talsverðum nasablástri, en fór
þar svo út af sinni flokkslegu
línu, að flokksblaðið Fylkir
mun ekki hafa fengizt til þess
að prenta ræðuna, svo Björn
varð að fá inni hjá andstöðu-
blaði til þess að birta boðskap-
inn.
Björn mun nú hyggja að
taka upp sóknina gegn Guð-
laugi Gíslasyni um bæjarvöld-
in og mun vera búinn að
tryggja sér fylgi meðal áhrifa-
manna innan fiskvinnslufyrir-
tækjanna til þess að ryðja sér
braut að bæjarjötunni.
Ársæll Sveinsson virðist nú
búinn að taka í sínar hendur
öll völd innan Bátaábyrgðafé-
lagsins og fer þar sínu fram í
félagi við hinn nýráðna lögfræð
ing Bátaábyrgðafélagsins, Pál
S. Pálsson, hrlm., en greiðslur
til Páls munu ekki skornar við
nögl eins og tjónbætur Bátaá-
byrgðafélagsins til félagsmanna
sinna, þeirra, sem ekki láta
gera við báta sína í skipasmíða
stöð formanns Bátaábyrgðafé-
lagsins, Ársæls Sveihssonar.
Bátaábyrgðafélagið er þegar
búið að inna af höndum fyrstu
greiðslu sína til Páls og nam
hún tugum þúsunda.
Mikil og almenn óánægja er
af hálfu útgerðarmanna og sjó-
manna yfir viðskiptum þeirra,
er humarveiðar stunda við fisk
vinnslustöðvarnar, bátar sem
veiða hlið við hlið, fá mjög
misjafna matsútkomu og matið
er hvort tveggja framkvæmt af
börnum og sjóndöpru gamal-
menni, og svo er löggiltur vigt
armaður látinn gefa út vigtar-
vottorð með lækkaðri vigt frá
því sem hann er áður biiinn að
vega upp úr bát. Flatfiskur er
svo allur flokkaður í annan
flokk og væri fróðlegt að vita,
hvort afurðir þær, sem úr fisk-
inum eru unnar, eru fluttar úr
landi sem annars flokks vara,
eða hvort afurðirnar batna það
í vinnsluaðferðinni, að þær
verða allar fyrsta flokks.
Síldarkaupendur innan Lands
sambandsins hafa enn á ný
hlunnfarið útgerðarmenn og
sjómenn með verðlagningu síld
ar til söltunar. Bræðslusxldar-
verð stórlækkar, en saltsíldar-
verðið hækkar lítillega, þannig
að heildarútkoman verður verð
lækkun þrátt fyrir alla gengis-
fellinguna.
Einar Gíslason frá Arnar-
hóli var aðalræðumaður 17.
júní hátíðahaldanna. Deildi
Einar fast á brennivínssöluna
á pósthúsinu og gagnrýndi við
skipti fiskvinnslustöðvanna við
útgei'ðarmenn og sjómenn.
Raddir lesenda: Að þessu
sinni verður ekki gerð fullnægj
andi grein fyrir tilefni þess, að
Ársæll Sveinsson hefur þau yf-
irtök á Guðlaugi Gíslasyni, að
Ársæll beygir Guðlaug ásamt
öðrum sjálfstæðismönnum und-
ir ok sitt.
Nýlega réðist ölóður maður
inn á heimili utanvert í bæn-
um, þar sem öldruð hjón búa
ásamt syni sinum. Braut hinn
ölóði rúður og réðst með bar-
smíðum á íbúa hússins, en áð-
ur var hann búinn að berja
húsbóndann. Ekki er til þess
vitað, að fólk það, sem fyrir
árásinni varð, hafi fengið rétt-
ing mála sinna, hinsvegar
mun hinn ölóði liafa kært yf-
ir móttökum þeim er hann
hlaut.
Miðaldia maður í Eyjum
hugðist á s. 1. vori kaupa hlut
í útgerð, sem var til sölu. Sjálf
stæðismönnum í Eyjum fannst
það svo fráleitt, að nokkur ný-
liði hyggði á slíka hluti, að
þeir úrskurðuðu manninn vit-
lausan og sendu hann á Klepp.
Páll S. Pálsson, hrlm., Reykja
vík telur sig vera ráðinn sem
lögfræðing Vestmannaeyjabæjar
ókunnugt er um árslaun.
Mikið hefur verið um það,
að fólk hafi verið meitt og lim-
lest af ölvuðum mönnum und-
anfarið, virðist orðið lífshættu-
legt að sækja opinberar skemmt
anir. Er þetta ein af afleiðing-
um áfengissölu póststjórnarinn-
ar í Eyjum.
Engar bætur hefur Ástgeir
Ólafsson fengið fyrir það, að
lögreglan handleggsbraut hann
á sínum tíma, lá jafnvel við
boið, að mál yrði höfðað gegn
Ása fyrir það að láta handleggs
brjóta sig.
Skipaviðgei'ðir flytjast í vax-
andi mæli frá Skipasmíðastöð
Ársæls Sveinssonar yfir til Drátt
arbi'autar Vestmannaeyja, Gunn
ars M. Jónssonar skipasmíða-
meistara og sona hans. Mun
fullur helmingur báta fluttur
þangað með viðskipti sín og
fleiri, sem óska þar eftir við-
skiptum, heldur en hægt er að
anna.
Sigurður Stefánsson, löggilt-
ur endurskoðandi í Reykjavík,
var á ferð í Eyjum um fyrri
helgi til þess að endurskoða og
gera upp reikninga ísfélags
Vestmannaeyja.
Bátaábýrgðafélajg Vestmanna
eyja hefur nýlega ráðið Pál S.
Pálsson, hrlm., Reykjavík, sem
fastan lögfræðing félagsins og
er nú af hans hálfu hafin á-
frýjun á skuldadómum á Báta-
ábyrgðafélagið til Hæstaréttar.
Gefst Ársæli nú gott tæki-
færi til þess „að reka við eins
og reiðingshestur" eins og Páll
orðaði lýsingu sína á Ársæli.
Stjórnendur Bátaábyrgðafé-
lags Vestmannaeyja eru þrír,
þeir' Ársæll Sveinsson, Karl
Guðmundsson og Jónas Jóns-
son, en lögfræðingar félagsins
eru orðnir fastxáðnir minnsta
kosti fjórir, Friðþjófur Johnsen
héraðsdómslögmaður, Sveinbj.
Jónsson, Gunnar Möller og
Páll S. Pálsson, hæstaréttarlög-
menn.
Landssamband lúðrasveita
efnir til landsmóts í Vestmanna
eyjum um næstu helgi, koma
lúðrasveitirnar til Eyja næsta
laugardag og stendur mótið tvo
daga, laugai'dag og sunnudag.
Þátttakendur í mótinu munu
vera um 150. Mót þetta er
merkur menningarviðburður
fyrir Vestmannaeyjar.
JUNE MUNKTEL
hefur um hálfrar aldar skeið haldið velli sem ein af traustustu og
gangvissustu vélum fiskiflotans.
Aukinn fjöldi af JUNE MUNKEL-dieselvélum eru settar í
fiskibáta og fiskiskip hvarvetna í heiminum.
I eftirtalin íslenzk skip hafa nýlega verið settar JUNE MUNK-
TEL-dieselvélar:
HILDINGUR - HANNES LÓÐS - SINDRI - SÆBORG -
ÆGIR - STAPAFELL - GULLÞÓRIR - HELGI HELGASON.
AB Jönköbings Molorfabrik
JÖNKÖBING.
88SSS88SS8SSSS8SS3SS8SSSSSSSSiSS8iSSiSSSSSSSSSSSSgSS£88S8S8SSSSS2S8SSSSSSS88SSSSSSSS88S8S88*2SSS88SSS888S8ía
Mjólk.
seld í lausu máli.
HÓTELBÚÐIN