Skátablaðið - 01.11.1994, Page 8
/ J
Sumardagurinn fyrsti
Fyrir sumardaginn fyrsta var safnað
saman gönguglöðum skátum og takturinn
æfður kvöld eftir kvöld. Þessir skátar
gengu svo fyrir skrúðgöngu frá Skáta-
húsinu að Hallgrímskirkju þar sem hin
árlega skátamessa var. Fyrir þessa göngu
höfðu skátafélögin einnig æft af fullum
krafti og haft að markmiði að vinna göngu-
bikarinn. Að þessu sinni féll hann í hendur
Skátafélagsins Skjöldunga.
haldandi hátíðarhöld 18. og 19. júní inni
í Laugardal. íþrótta- og tómstundaráð
leitaði tilSSR um að vera með hefðbundna
skátadagskrá þar. Eftir miklar umhugsanir
var ákveðið að setja upp tjaldbúð'sem
yrði í líkingu við skátamót. Skátafé-
lögunum var úthlutað svæði þar sem þau
settu upp sína tjaldbúð og unnu sín tjald-
búðarstörf. Reist var stór og mikil þrauta-
braut og glæsilegt hlið. Skátarnir voru að
vinna við tjaldbúðina og að hliðinu báða
Við fánaathöfn í Hljómskálagarðinum á 17. júní.
Eftir sumardaginn fyrsta hélt göngu-
hópurinn áfram æfingum vegna 17. júní.
Akveðið hafði verið að gangan yrði stærri
og fallegri en áður, í tilefni af lýðveldis-
afmælinu. Mámeð sanni segja að það hafi
tekist og var mál manna að skátarnir hefðu
verið hreyfingunni til sóma. I Hljóm-
skálagarðinum var dagskrá með hefð-
bundnu sniði og hafði hópur kraftmikilla
skáta unnið nóttina áður að uppsetningu
þrautabrautar sem vakti, eins og alltaf,
mikla lukku hjá yngstu kynslóðinni. Þá
má ekki gleyma því að Skátafélagið Eina
stóð fyrir kaffi- og kleinusölu sem mæltist
vel fyrir hjá foreldrunum.
Lýðveldisafmœlið
V egna lýðveldisafmælisins voru áfram-
dagana og gafst því gestum og gangandi
kostur á að sjá þá við störf, sem má
Hikebrauð hnoðað í Laugardal.
kannski segja að sé alltof sjaldan. Virtust
menn almennt vera hissa á hvað þetta
unga fólk væri fært um að gera og var
undirrituð j afn vel spurð að þ ví h vort þetta
væri sýning hjá þeim. Já, þau voru sjálfum
sér og hreyfingunni til mikils sóma þessa
daga.
Skátasambandið var einnig með sölu-
tj ald í Laugardalnum og tókst það ljómandi
vel. Hlaðið hafði verið skemmtilegt úti-
grill og voru grillaðar pylsur í hundraða-
tali. Skátamir notuðu grillið einnig til
þess að baka hikebrauð, en það var liður
í póstaleik. Skátar út St. Georgsgildinu
Straum hjálpuðu okkur við sölumennsk-
una og grillið og sendum við þeim bestu
þakkir fyrir. Þá viljum við einnig þakka
skátafélaginu Hraunbúum fyrir að lána
okkur tjald þessa daga.
Lýðveldismót
Ekki liðu margir dagar í rólegheitum
því ákveðið hafði verið að halda skátamót
í tilefni lýðveldisafmælisins. Mótið var
haldið dagana 22. - 26. júní og var þema
mótsins „Vertu með“. Á mótið mættu á
milli 600 og 700 galvaskir skátar alls
staðar af landinu. Umgjörð mótsins var
sótt í stjórnskipan gamla lýðveldisins og
voru t.d. öll torgin nefnd eftir goðorðum.
Heiti allra embættismanna voru einnig
sótt frá þessum tíma og má nefna að
mótsstjórinn var nefndur allsherjargoð.
Mótið var sett með miklum tilþrifum
inn í Borgarvík og kom allsherjargoðinn,
Matthías G. Pétursson, ásamt skáta-
höfðingja, Gunnari Eyjólfssyni, ríðandi á
staðinn. Settar höfðu verið upp 50 fána-
stangir og var það stórkostleg sjón að sjá
fánana 50 bera við himinn. Daginn eftir
hófst svo dagskráin og stóð hún óslitið
fram á sunnudag. Það sem má nefna merki-
legt er að þy rla landhelgisgæsl unnar heim-
sótti okkur á mótið og sýndi björgun.
Merkilegast af öllu voru þó skátamir sjálfir
sem unnu saman að því að gera þetta mót
að þeim skemmtilega viðburði sem það
varð.
Látum Ijós okkar skína
8