Skátablaðið


Skátablaðið - 01.11.1994, Síða 39

Skátablaðið - 01.11.1994, Síða 39
Eg er viss um að skátastarf er einkar heppilegur vettvangur til þess að veita unglingum tækifæri til að þróa með sér þá eiginleika sem þarf. Til þess að takast á við nauðsynleg þroskaverkefni í vinsam- legu og hæfilega fjölbreyttu umhverfi. Að kynnast sjálfum sér, að æfa leiðirtil að eiga samskipti við aðra, að huga að fram- tíðinni. Það er engin ástæða er til að leita annað um grundvöll hreyfingarinnar en í hugmyndir stofnandans Badens Powell, í þessa heillandi og dálítið rómantísku mynd af ungum hetjum úti í náttúrunni. Þessar hugmyndir eru í senn markmið hreyfingarinnar og besti vegvísirinn að leiðum að markinu. Á réttri leið Við þurfum engan kinnroða að bera fyrir nútímaskátastarf. Það er öðru vísi, en ekkert endilega lakara en áður. Gamla stemmingin kemur ekki aftur óbreytt. Vlargt hefur verið skynsamlega og vel gert í skátastarfi á síðasta áratug. Til dæmis tel ég skynsamlegt af skátahreyfingunni að auka áherslu á náttúru- og umhverfis- vernd og skynsamlegt er að freista þess að mynda svigrúm fyrir fjölbreyttari og nýrri verkefni en áður var, en á báðum sviðum er mikið verk óunnið. Hreyfingin á ekkert að hika við að leita ut fyrir sjálfa sig um hugmyndir og kunnáttu. Það má nefna hjólreiðamenn, kvæðamenn, fuglafræðinga og skíða- garpa. Unglingumlíkar vel blanda af leið- heiningu og sjálfstæði, og þeim þykir gaman að taka til hendinni þar sem rey nir a mátt þeirra og megin. Hugmyndin um að kunna skil á umhverfi sínu, komast af í náttúrunni, að láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna, að komast fyrir eigin rammleik leiðar sinnar, heillar ungt fólk ekkert síður nú en áður fyrr. Þetta þekkið þið sem starfandi skátaforingjar auðvitað ágætlega. Áhersla á nægjusemi og út- sjónarsemi, meinlausan ferðamáta og skilning á náttúrunni fellur vitaskuld mæta vel að grund vallaratriðum hreyfingarinnar og er um leið til þess fallin að unglingar í hreyfingunni tileinki sér sígild gildi sem aldrei úreldast. Við þurfum ekkert að óttast keppni við íþróttafélög um unglinga, ef okkur tekst að bjóða upp á spennandi verkefni af þessu tagi. Reyndar sýna at- huganir að fjöldi þeirra ungmenna sem eru í skátunum er s vipaður og j afn vel ívið meiri en fjöldi þeirra unglinga sem starfa í ungliðasamtökum stjórnmálasamtakaog trúfélaga. Mætti efna til skátamóts fyrir eldri skáta uppi á fjöllum þar sem menn yrðu að koma hjólandi? Mætti merkja sérstakar leiðir á hálendinu og hafa einhverja staðl- aða leið til tímamælingar og skátar gætu dundað sér við að setja met á þeim leiðum, hjólandi, hlaupandi, eða með Trabant eða hjólastól á sínum vegum, til dæmis í sam- starfi við íþróttafélög fatlaðra? Þetta mundi vekja athygli og gæfi upplýsingar sem tekið væri eftir. Mætti merkja sérstök torleiði, líkt og klettaprílarar merkj a leiðir, og meta árangur skáta eftir því hvernig þeim tekst að eiga við leiðirnar? Mætti kannski efla áhuga skáta á torfi og grjóti?. Eða vist í hellum? Hvernig komust menn fyrri alda yfir ár? Á staksteinum, vaði, steinbrú eða kláfi? Mér þykir stundum skátabrúin, þrjár samansúrraðar trönur milli tveggja turna dálítið framandi á Is- landi. Það blasir við að mennirnir sem reistu brúna eiga vörubíl. Og af hverju á maður sem á vörubfl ekki hamar og nagla? Væri hægt að ná einhverju samstarfi við þau samtök, félög og öfl sem nú vinna að uppgræðslu? Skátar tækju að sér tiltekin hálendisverkefni og kannski væri unnt að kría út einhverja fjármuni. Háheiðasumar- búðir með ræktunarstarfi og reiðhjóla- sandspyrnu og holtoghólaralli gæti verið freistandi. Ég held að íslensk náttúra og íslensk menning séu afar skemmtileg skilyrði fyrir skátahreyfingu að dafna í. Lokaorð Ég vil þakka fyrir þann heiður að fá að spjalla hér um hugmyndir mínar og minni á að verkefni skátahreyfingarinnar verða aldrei fullleyst, hvorki á þingum, ráðstefnum né í starfinu sjálfu. Það er eitt af lögmálum lífsins held ég, ef ég má vera dálítið hátíðlegur í lokin, að veröld mannsins er síbreytileg og þarfnast sífellt nýs skilnings og nýrra leiða. Ég þakka ykkur fyrir. Krnnino Framkvæmdastj óri Hraunbúa Mennturr. Fyrri störf: Umsögn: Nafn: Aldur: Fjölskylda: Bifreið: Skáti: Skátaferill: Baldvin Kristjánsson. 23 ára. Ógiftur. Cherokee árgerð 1979. Víkverji frá 1978. Flokksforingi, ds. sveitarforingi, sveitarforingi, aðst. félagsforingi, dróttskáti og sveitarforingi í Ástralíu, forsetamerki, Gilwell á Úlf- Ijótsvatni og í Ástralíu, er starfandi í hijálparsveit skáta Njarðvík og félagi í skátaflokknum Fláðfuglum. Framkvæmdastjóri Hraunbúa frá sept. 1994. Rekstrartæknifræðingur á ferðamálasviði. Húsamálun, sorptækni, ferðaþjónustustörf og „alt muligt". Baldvin hefur getið sér orð fyrir að vera „skátinn ístuttbuxunum" sem andstæða við pappírsskátann. Hann hefur margar hugmyndir og reynir að koma þeim í framkvæmd. Hann heldur fast við sínar skoðanir. Skátablaðið 39

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.