Ný vikutíðindi - 04.08.1961, Qupperneq 2
2
Ní VIKUTÍÐINDI
J
%
NY VIKUTIÐINDI
keanur út fyrir Ihivierja ihölgi og 'kostar 4 fcrónur í
lausasölu. Ádkriftarverð er 150 krónur árgangurinn
og igreiðiist fyrirfraim. - Ritstj.: Baldur Hólmgeirsson.
— Prentun og afgreiðslu annast Stóriholtsprent h.f.,
Skiplhollti 1, Reylkjavífc, iSírni 19150 og 14856.
Þrælalög góð í dag
Þegar núgildandi vinnulöggjöf okkar var lögfest á Al-
þingi fyrir um 25 árum, íetluðu kommúnistar vitlausir að
verða. Þeir hrópuðu hver í kapp við annan, að með hinni
nýju vinnulöggjöf hefðu atvinnurekendur náð iokatak-
marki sínu með því að samþykkja lög, sem hókstaflega
festu alla launþega landsins upp á vegg. Það þarf svo
sem engan að undra, þótt þetta hljóð væri í kommúnist-
um þá, þeir Ihafa ævinlega verið á móti öllu því, sem
stuðlað gæti að bættri sambúð launþega og vinnuveit-
enda.
Vinnulöggjöfin er vissulega orðin úrelt og fyllsta á-
stæðr. til þess, að hún verði endurskoðuð. Þegar löggjöf-
in ei’ þannig, að fámennir Ihópar launþega geta stöðvað
stóra vinnuhópa atvinnuveganna til gífurlegs tjóns fyrir
þjóð irbúið, er kominn tími til að stinga við fótum.
Þcgar núgildandi vinmdöggjöf var lögfest, nefndu
kommúnistar hana „þrælalög“, en í dag er viðhorfið svo
sannarlega breytt hjá þeim. Nú á vinnulöggjöfin enga
dyggari forsvarsmenn, allt tal um endurbætur á henni
heitir í dag: ofbeldi gegn launþegum-
Sk rbygging til skammar
Nýlega var í dagbl. Vísi viðtal Við sænskan prýðis-
mann, Bengt Silverstrand að nafni. Maður þessi rekur
auglýsingaskrifstofu í Gautaborg og hefur m. a. reynzt
Loftleiðamönnum vel. Viðtalið í Vísi birtist vegna komu
Silverstrands hingað. Hafði hann mjög ákveðnar og at-
hyglisverðar skoðanir á ferðamálum okkar, og m. a. kom
hann með þá hugmynd, að (settir yrðu á svið á Þing-
völlum einskonar söguleikir úr íslendingasögunum. Hann
leggur til, að byggð verði ný Valhöll á Þingvöllum í sem
allra fornlegustum stíl. Hann segir: „Þið eigið Valhöll á
Þingvöllum, — hugsið yður bara hina stórkostlegu Val-
höll, þar sem Óðinn sæti, — en hvílík Valhöll er það,
sem þið eigið á Þingvelli, — skúrbygging, sem er ykkur
ti skammar.“
Við eigum Valhöll a Þingvöllum, og við eigum skóla-
hús við Geysi og við eigum kofa við Gullfoss. — Þegar
útlendingar koma hingað til lands er fyrst farið með
þá til ÞingvaUa. Þar eru stórir bárujámskumbaldar. Síð-
an liggur leiðin að Geysi og þar em kumbaldamir aðeins
minni, en ekki betri. Loks er farið með fólkið að GuU-
fossi. Þar á gljúfurbarminum er kofaræfill, rétt sæmilega
þrifalegur að innan, en fyrir utan em bárujámsgirt sal-
emi með rauðmalargólfi — og sér beint upp í hláan him-
íninn.
Svíinn sagði í lok viðtalsins: „ ... ef það væri laust
eitt embætti í stjómlnni hjá ykkur, þ. e. propaganda- eða
útbreiðsluráðuneyti, jþá skyldi ég gjarnan taka því em-
bætti, því ég held, að þar gæti ég unnið hinni elskulegu
þjóð mikið gagn með því að taka ferðamálin föstum tök-
um.“
Gallinn er bara sá, að hjá okkur er ekki til neitt slíkt
ráðuneyti. Þess í stað höfum við iUa upplýsta fúskara
að störfum I ríkisstyrktri ferðaskrifstofu, sem hefur ein-
okun á innflutningi erlendra ferðamanna.
Á skemmtistöðunum Á skemmtistöðunum
Á vetri komanda mun vera
í ráði að setja upp söngleikinn
MY FAIR LADY, sem farið hef-
ur sigurför um heiminn, enda
afburða skemmtilegur, hvað efni
og tómlist snertir. Hefur heyrzt,
að þýðingin hafi verið falin
Ragnari Jóhannessyni og Agli
Bjarnasyni, en naumast enn ráð
ið, hverjir verði í aðalh'lutverk-
unum.
1 þessu sambandi er ekki úr
vegi að benda Þjóðleikhúsinu á
þá staðreynd, að hversu vel,
sein tækist um val erlendrar
söngkonu í lilutverk Elsu Doo-
little, væri það tvímælalaust
æskilegra og vinsælla að heyra
lilutverkið flutt á íslenzku. Því
er líka til að dreifa. Það efast
naumast nokkur um, að hin vin-
sælá og ágæta söngkona Elly
Vilhjálms myndi ekki gera hlut
verkinu viðhlítandi skil, og
fengju þá tvímælalausir hæfileik
ar hennar að njóta sín á verð-
ugan liátt.
Þetta ætti Þjóðleikhúsið að
taka til alvariegrar athugunar.
Eins og rekstur þess gekk á
síðasta starfsári, veitti því
sannarlega ekki af kassa-stykki,
og það er MY FAIR LADY
vissulega, — ef vel tekst til um
val í aðailhlutvenkin.
EYÞÓR ÞORLÁKSSON,
gítarleikarinn góðkunni, var
■með eigin liljómsveit í Barce-
lona síðastliðinn vetur, og í
sumar leikur hann í kvintett í
nýjum klúbb á Mallorca. Unn-
usta hans syngur með hljóm-
sveitinni.
AAGE LORANGE
mun verða með hljómsveit í
Tjarnarcafé í vetur, en ekki lief
ur enn lieyrzt, hverjir spili með
lionum.
SJALFSTÆÐISHOSIÐ
mun fá nýja hljómsveit í haust,
eftir sumarhvíldina, og hefur
flogið fyrir, að liún verði skip-
uð þessum mönnum: Viðar Al-
freðsson, trompet, Reynir Sig-
urðsson, víbrafónn, Jón Möller,
píanó, Sigurbjörn Ingþórsson,
basisi, og Sverrir Garðarsson,
trommur.
SKlÐASKÁLINN
I IiVERADÖLUM
hefur verið eftirsóttur skemmti-
staður í sumar, enda gott að
koma þangað. Þar hefur verið
dansað flest kvöld vikunnar, og
leikur þriggja nxanna hljómsveit
fyrir dansinum: Bragi Hliðberg,
harmónika, Trausti Thorberg,
gítar, og Sverrir Garðarsson,
trommur.
REYNIR JÓNASSON
inun hyggja á orgelnám erlend-
VINSÆL
FEGUKÐAB-
KEPPNI
ISTOKK-
KLUBBNUM
Undanfarin sunnudagskvöld
hefur unga fólkið hér í höf-
uðborginni flykkzt í Stork-
klúbbinn, og hafa f-lest kvöldin
færri komizt að en vildu. Þar
hefur nefnilega verið liáð hin
skemmtilegasta fegurðarkeppni,
og fer senn að líða að úrslit-
um hennar. Á sunnudagskvöld-
ið var var valin sjötta stúlkan
í undankeppnina sem sagt
„Fegursta stúlka kvöldsins.“
Ekki er enn ráðið, hvenær val-
ið verður á milli þessara sex,
en sökum verzlunarmannaliá-
tíðarinnar verður það ekki hægt
um næstu helgi.
Fyrstu fimm stúlkurnar, sem
valdar voru í keppnina, heita:
Erla Viktorsdóttir, Reykjavík,
Katarína Úlfsdóttir, Isafirði,
Ingiríður Oddsdóttir, Reykjavík,
Guðrún Jóhannesdóttir, Rvík og
Kolbrún Baldvinsdóttir, Akur-
eyri. Myndir þeirra allra hafa
birzt í Heimilispóstinum, en að
þessu sinni flytja Ný vikutíð-
indi mynd þeirrar sjöttu, en
hún heitir: THEÓDÓRA ÞÓRÐ-
ARDÓTTIR, og er Reykvíking-
ur, fædd 22. febrúar 1945, dótt-
ir Agnesar Guðmundsdóttur og
Þórðar Sigurgeirssonar, kaup-
Theódóra Þórðardóttir
— fegursta stúlka kvöldsins.
manns, Nesvegi 12. Hún á einn
bróður, og helztu áhugamál
hennar eru skemintanir og
ferðalög. Starf liennar um þess-
ar mundir er að selja happ-
drættismiða fyrir Styrktarfélag
vangefinna, og gefur að líta
hana í bílnum utan við Búnað-
arbankann, og það er ekki
minnsti vafi á þvi, að salan
stóreykst á næstunni, þegar
þetta er uppvíst .. .
Ný fegurðarkeppni?
Fréizt liefur, að í ráði sé að
velja í haust „Ungfrú Norður-
íönd“, og mun verða efnt til
fegurðarkeppni hérlendis til að
velja þátttakanda Islands. Það
er að venju Einar Jónsson, sein
fyrir. keppninni liér heima
is í vetur, en ekki er enn vit-
að, hver muni taka sæti hans í
hljómsveit Svnvars Gests, sem
leikur í Lido í vetur.
ERLING ÁGÚSTSSON
hefur sungið á Röðli í stað
Hauks Morthens, sem enn er
erlendis, og hefur ekkert aif
honum frétzt ennþá. Hefur jafn-
vel flogið fyrir, að hann sé á
tveggja mánaða samningi við
skemmitistað í Noregi.
GRASEKKJUMENN
hafa mjög sett svip sinn á
skemmitistaðina undanfarið, en
það er mjög í tizku í höfuð-
borginni að senda konurnar og
börnin í sumarbústaði all-langt
frá bænum og liafa þau þar
lengri eða skemmri tíma.
stendur, en hann liefur annazt
fegurðarkeppnir hér um árabil.
Mikillar óánægju gætti hjá al-
menningi í sambandi við val
„Ungfrú Island 1961“ í vor, en
þá ráðstafaði Einar uppástungu-
og birtingarrétti um þátttakend-
ur til vikublaðsins VIKUNNAR,
og þótti öðrum blöðum að von-
um sinn hlutur hastarlega fyrir
borð borinn. Það liefur heyrzt,
að Vísir og Fálkinn muni ætla
að taka þátt í kapphlaupinu um
birtingarréttinn, og boðið Ein-
ari all-vel, en þess ber að
vænta, að liann sjái að séf í
tíma og verði við vilja almenn-
ings í þessum efnum.
Fegurðardrottningar undan-
farinna ára hafa getið sér þann
orðstír erlendis, að landinu er
mikill sómi að, og ekki ástæða
til að ætla annað en svo muni
verða í framtiðinni. En til þess
að fegurðarkeppni hérlendis
geti verið réttmæt, verða allir
aðilar, blöðin ekki siður en aðr-
ir, að hafa jafnan rétt til uppá-
stungna um þátttakendur. Þetta
er sanngirniskrafa, sem ekki
verður hundsuð til lengdar.
/• t>
A skemmtistöðunum A skemmtistöðunum