Ný vikutíðindi - 11.05.1962, Qupperneq 2
2
NY VIKUTÍÐINDI
NY VIKUTIÐINDI
koma iit fyrir hverja helgi og kosta 4 kr. í lausas.
Framkvæmdastjóri: Geir Guimarsson, sími 19150.
Ritstjóri Baldur Hólmgeirsson, viðtaist. kl. 10—12.
Augl.stjóri: Bragi Sigurðsson, símar 14856 og 18833.
Ritstjómarskrifst.: Höfðatúni 2, sími 14856 og 19150.
Prentun og útgáfa: Stórholtsprent h.f., Höfðatúni 2,
sími 19150. — ÁSkriftargjald er 150 kr. árgangurinn
og gr. fyrirfram.
Þreklausir unglingar
Þá er nú kominn í Ijós árangur íþróttanna og leik-
fimikennslunnar hér á landi, að dómi eins harðsvírað-
asta íþróttakennara landsins, Benedikts Jakobssonar.
Um tvítugt höfum við ekki þrek á við sextugan Svía,
fullyrðir hann.
Þrekmælingar hans í skólum Reykjavíkur á ung-
lingnm benda annars, í alvöru að tala, á furðulegt
þrekleysi þeirra, miðað við jafnaldra í nágrannalönd-
um okkar. Kannske höfum við það of gott. Ef til
vill leggjum við of mikla áherzlu á bóklærdæminn, bíla
og stofuhita, en of Iitla áherzlu á útivinnu bama og
unglinga.
Var einhver að tala rnn einhverskonar vinnuskyldu
til sjós eða sveita fyrir unglinga? Væri hún ekki alveg
eins skynsamleg og hin langa skólaskylda, þrátt fyrir
allar leikfimisæfingamar í skólunum?
Föðurlandssvikarar
Nú er svo komið, að það borgar sig betur að selja
Norðmönnum Faxaflóasíldina óirnna, heldur en að
flytja hana til vinnslu til Siglufjarðar. — Útgerð borg-
ar sig ekki, landbúnaður borgar sig ekki. Það borgar
sig ekki einu sinni að hirða hvali, sem rekur hér á
land.
Endar þetta ekki svipað og í Nýfundnalandi? Að
því stefna áreiðanlega kommúnistar og einnig „nyt-
sömu sakleysingjamir“, sem enginn má fyrirgefa, þótt
þeir viti sjálfsagt ekki hvað þeir em að gera ef þeir
fylgja að málum verstu föðurlandssvikuram og kvísl-
ingum, sem Island hefur álið.
Við fáum loks götur
Loksins kom áætlun fram um að leggja götur, sem
því nafni má nefna. Er talið að fullnaðarfrágangur
þeirra allra muni kosta um 680 millj. kr., og á verk-
inu að Ijúka á næstu tíu árum. Minna mátti ekki gagn
gera. Vonandi tekst þessi áætlun betur en með Miklu-
brautina!
Auðvitað eiga bíleigendur að borga mest af þess-
um kostnaði, t. d. með nýjum benzínskatti, því það
er mikið hagsmunamál fyrir þá að vegirnir séu góð-
ir, bæði í borgum og sveitum. Ending bilanna er mjög
mikið undir því komin. Raunar er það þjóðhagslegt
mál einnig, að þessi dýru tæki hristist ekki sundur
á vondum vegum löngu fyrr en eðlilegt er. — g
A A
TOIMABIO
fekið til starfa
Viðtal við bíóst|órann
Um páskana tók til starfa
hið nýja kvikmyndahús Tón-
listarfélagsins, sem hlotið
hefur nafnið TÓNABÍÓ. Fé-
lagið rak áður Trípólíbíó, og
er ólíltu saman að jafna um
húsakostinn, þar sem flutt
var úr óhrjálegum bragga í
slíkt glæsihús, sem þarna er.
Það hefur vakið eftirtekt
manna, hve húsið er mynd-
arlega úr garði gert, for-
stofugólf og salargólf
teppalögð og veggir skreytt-
ir, allt til þæginda- og ynd-
isauka.
— Það hefiiir ölktm líkað
vel við húsið, sagði Guðmund
ur Jónasson, framkvæmda-
stjóri Tónahíós, þegar blað-
ið (hitti ihann að máli fyrir
nokkrum dögum. Okkur he-f-
ur tekizt -að byggja húsið
upp á ódýran en -mjög smekk
legan hátt. Eg held, -að það
-sé nokkuð hittin lýsing, sem
ég Iheyrði af vörujn stráks,
sem sagði við fél-aga sinn:
„Miildll djö ... voðalegur
stæll er hér á öllu.
— Og er byggingin full-
gerð ?
—■ Já, að undanteknu stiiga
húsi fyrir efri Ihæðina, ©n þar
verður Tónlistarskólinn til
húsa. Það verður byggt á
næstunni.
— Og aðstaða til sýninga?
— Hún er mjög góð. Við
fconaum með gömlu vélarnar,
vandlega uppgerðar, með okk
ur, og án verulegra breyt-
inga getum við komið fyrir
seguitóni eða Todd-AO, og
það er gert ráð fyrir allt að
6-rása ihljómkerfi, en það er
það fulkomnasta, sem völ er
á í dag. Nú, um hljómburð-
inn í salnum geturð-u sjálf-
ur dæmt.
Og hann er auðvitað prýði
legur, og þarf ek-ki fleiri orð
-um.
VÆNTANLEGAR
KVIKMYNDIR
— Þið hafið alltaf verið
-með úrvalsmyndir, Guðmund
-ur. Hvað vi'ltu segja okkur
um væntanlegar myndir, sem
þið eruð búnir að tryggja
ykkur ?
— Þar eru um auðugan
garð að gresja, og margar
myndir á döfinni. Næsta
myndin okkar verður vænt-
anlega hörkuspennandi mynd
um eltingaleikinn • við Eioh-
mann, seinustu valdadaga
hans og réttarhöldin yfir
honum, og er sögulega þræð-
inum fylgt að rnestu. Svo
höfum við fengið Dagsláttu
drottins, og er ég að hugsa
um að láta setja íslenzkan
texta í hana. Af öðrum
bandarískum myndum má
nefna hina umtöluðu ama-
tör-mynd Aðgangur bannað-
ur, sem ihvarvetna Ihefur vak
ið atihygli. Svo er það The
Sweet Smell of Success með
Tony Curtis og Burt Lan-
oaster, fjallar um slúður-
dáLkaritstjóra. Sirkusmynd
með frægustu sirkusstjöm-
um Bandaríkjanna og Kath-
ryn Grant, Vincent Price og
Peter Lorre í aðalhlutverk-
unum. Skæruliðar næturnn-
ar fjallar um frelsisbaráttu
Ira á stríðsárunum. Robert
Mitohum fer með aðalhlut-
verkið. Svo kemur myndin
eftir ihinni vinsælu , fram-
haldssögu Með lausa sltrúfUi
og Frank Sinatra í aðalhlut-
verkinu. Loks má nefna Too
Hot to Handle, með Jayno
Mansfield, sem þótti ærið fa
klædd, isvo að ég Ihef heyrt,
að það hafi þurft að teiikna
pallíetturnar inn á fiton-una
til 'þess hún slyppi í gegnum
eftirlitið.
— Og hvað er væntanlegt
af frönskum myndum?
— Þar ei-gum við von a
tveim myndum með Brigitte
Bardot, sem mikla athygl1
h-afa vakið. Önnur þei-rra
heitir Viltu dansa við mig?
en franska heitið á hinni er
La Femme et la Pantin. JaC'
ques Charrier leifcur aðal'hlut
verkið í mynd, sem heitir
Óþekkt nótt. Og nöfnin á
þrem öðrum, sem við erum
að fá, eru Skjóttu píanist-
ann!, Ástaleikur og Sumar-
hiti. Og um efni tveggja síð-
arnefndu geturðu farið nohfc
uð nærri.
— Nökkrar fleiri Evrópu-
myndir ?
— Já, það má nefna tv®r
fransk-ítalskar stórmyndir,
Hróa Hött Italíu, sem gerist
á uppgangstímum Borgia-
ættarinnar, Belinda Lee f®r
þar með eitt aðalhlutverkið,
og Söngur dráttarmannanna,
sem gerist auðvitað á keis-
aratímunum í Rússlandi. Að-
alhlutverkin eru í höndum
bandarísku leikaranna John
Derek og Dawn Addams.
— En Norðurlandamynd'
ir?
(Framh. á bls. 5)
Tónabíó hefur
fengið til sýn-
inga þýzka
stórmynd,
Ungar ástir,
er f jallar um
vandamál
unglinga á vor
um tímum. Að
alhlutverkin
leika Heidi
Bruhl og Pet-
er Kraus.
á skemmbisbööununn