Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 29.03.1963, Blaðsíða 4

Ný vikutíðindi - 29.03.1963, Blaðsíða 4
1 NY VIKUTlÐINDI Jt~ * SJÓARASÆLA Kópavogsbíó. Enda þólt sæmilcgasta mynda úrval virðist vera hérna i borg inni um þessar mundir, brugð- um við okkur suóur i Kópa- vogsbiö um helgina til aS sjú rtujndina, sem þar er sýiul um þessar mundir — og sjá, viS skemmlum okkur bara sæmi- lega. Raunar er myndin efnislega hreinasta vitleysa, en þaS er mikiS um skemmtilega músik, létla sjómaiuiasöngva, litrikt um hverfi — og fallegar stúlkur. Auk þess koma þarna fyrir þó nokkur spaugileg tilvik, og allt þetla kemur manni í gott skap og maöur sér ekki eftir að hafa lagt bíófcrSina á sig. Raunar svipar þessari mynd ósköp til dans- og söngvamynd- . anna þýzku áður fyrri. Manni liggur oft viS að sakna banda- rísku myndanná í sama dúr. Þelta blessaSa fótk, sem þarna kcmur fram er svo ósköp eitt- hvað kauöskt, jafnvel klunna- legt i samanburði við hina gömlu gó'öu skemmtikrafta, scm nú eru löngu horfnir af tjald- inu, Betty Grable og Dan Dail- ey, svo að einhver séu nefnd. En þarna er svo sem eilthvað fyrir augað. Mara Lane hefur veriS fengin aS láni til aS punla upp á, og þeir Peter Neseler og Boby Gobert sjá um gríniS. I — b. HROÐALEG VITLEYSA Hafnarbíó liefur verið að sýna alveg liroðalega vitlausa og lélega rayrid, sem nefnist „Skuggi kattarins" og er um kött, sem verður fimm mann- eskjum að bana, auk þess sem eigandi kattarins er drepinn í byrjun sýningarinnar. Framteiðslu þessa lætur eitt- hvert kvikmyndafélag, sem nefnist AB H.P. FILM, frá sér fara, en hið þekkta ameríska kvikmyndafélag Universal-Inter- national annast dreifinguna. Ætti það að vera vandara að virðingu sinni en svo, að dreifa svona fáránlegheitum yfir heims t)yggðina. Myndin er auglýst sem „afar spennandi og dularfull", en sannleikurinn er sá, að hún nær hvergi spennu, og dular- full er hún hreint ekki. Hún er ekki einu sinni óhugnanleg. Stundum, eins og þegar þjónn- inn sekkur í dýkið, verkar hún nánast kómiskt á áhorfandann, svo fjarri raunveruleikanum er hún. Það er eins og ekki sé hægt annáð en sjá í gegnum allt svindlið og vera sér þess meðvitandi að þetta sé allt plat. Ástæðulaust er að orðlengja meira um þessa endileysu — það var hætt að sýna myndina þegar blaðið fór í pressu. En það væri hins vegar á- stæða til að vekja máls á því, að blöðin fengju að sjá myndir kvikmyndahúsanna á prufusýn- ingu, svo að þau gætu bent bíó- gestum fyrirfram á hverskonar. myndir sem þcir eiga von á að sjá. Þær eru hvort sem er allt-; frKi j)pa,/ í listmálunum! áiverkin seidust á örstundu Ifiipr lísf?niíEiiri vekur hrifningu með sýningu Um síðustu helgi opnaði ungur listmálari, Kári Eiríks son, málverkasýningu í Lista mannaskálanum. Brá svo við, eftir tómlæti það, sem al- menningur hefur sýnt sýn- ingum myndlistarmanna yf- irleitt í vetur, að mikið f jöl- menni kom í skálann, og seldust myndir hins unga listamanns svo til upp á ör- stundu! Myndlistarmenn þeir, sem te'kið hafa sér fyr’r hendur að hnoða saman og klessa upp allskyns afkáraskap í storkunarskyni við samfélag- ið, hafa borið sig illa yfir tómlæti almennings gagnvart „pródúkti“ þeirra. Tclja þeir þetta vott um hreina kreppu í listmálum þjóðarinnar, og verði að koma til liðs við þá með fjárhagslegum og mór- ölskum styrk hins op:nbera. Hrifning almennings af sýningu unga listmálarans, sem nú sýnir í Listamanna- skálanum, er glöggt vitni þess, að því fer víðs fjarri, að um nokkra kreppu sé að ræða í listmálunum — svo fremi eitthvað athyglisvert komi fram. Málverk Kára eru jfyrst og fremst hrífandi fög- ur, þó óhlutlæg séu, mistur- myndir hans sannar og glögg ar, og bergmyndir hans eitt það stórbrotnasta, sem sézt hcfur á málverki. Það eru slíkir listamenn, sem þjóðin er stolt af að eiga. Hinir ættu að gefa sig að einhverju öðru, og dútla við afkáraskap sinn útaf fyr- Ir sig — í frístundum. iii|!i||iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|iiiiiiiiiiii:iiiiiiiiiiiiiiiiIIIIIIIIIIIIIIIII !iiiit<|!ii:ii'jii ii «1:11 ritii'iiiliiliiininiiiiiiiiiliiiiiitiiiiiiiililiiiiiiiiiiiiiiililiiiiilliliili af auglýstar með hástigs- lýs- ingarorðum, hvernig sem þær| eru, svo að margir láta blekkj- ast til að sjá myndir, sem þeir dauðsjá eftir að kaupa sig inn á — eins og t. d. þessa. Blaðamannafélagið myndi láta eitthvað goít af sér leiða, ef það tæki þetta mál að sér. Bióin hér geta ekki skorast undan því, ef þess er krafist, að vara sú, sem þau hafa á boðstólum, sé met- in af fleirum en Aðalbjörgu Sigurðardóttur. Og þegar um hrein vörusvik er að ræða, á almenningur heimtingu á að fá að vita það í tíma. — g. LAUS STAÐÁ Staða framkvæmdastjóra flugöryggisþjónustunnar er laus til umsóknar. Umsóknir, ásamt upplýsing- um um menntun og fyrri störf, sendist mér fyrir 15. apríl næstkomandi. Reykjavík, 20. inarz 1963. Fhigniálastjórinn Agnar Kofoed-Hansen. — EIMSKIP (Pramh. af bla. 1) því, að í Reykjavík eins og í öllum stórum fiskihöfnum erlendis, verði tekið upp fisk- mat og fiskmarkaður. Þá geta eigendur hraðfrystihús- anna komið og boðið þar í aflann. Þá kemur sjálfkrafa jafnaðarverð á fiskinn, án aðgerða hins opinbera. Þá þyrfti ekki að vera um nein- ar uppbótagreiðslur að ræða. Þá myndaðist rétt verð á fiskinum eftir gæðum og fleiru. Þetta er stórmál. Þetta er mál, sem varðar hag heildar- innar. Uppbótargreiðsla verð ur aldrei til frambúðar held- ur frjálst framtak. Samnings verð hlýtur að verða úr sög- unni fyrr eða seinna. Þariia, á fiskmarkaðinn, geta þeir komið, Einar ríki, Ligvar Vilhjálmsson og hvað þeir nú heita, og boðið í afl- ann eins og þeim sýnist, þá fer framboð og eftirspurn að ríkja. Er það ekki einmitt það, sem borgarstjómarmeiri hlutinn í Reykjavík berst fyr ir? Og ekki geta togararnir selt öðru vísi í öðrum lönd- um. Hins vegar er tilvalinn staður fyrir farmskip á Laug arnesi, sem næst tollvöru- skemmunni. Sérfræðingar telja að þar megi strax koma UPP byggingum, sem haf- skip geta lagzt upp að. Þess ber einnig að gæta, að aðflutningsieið um Vest- urbæinn og út í Örfirisey er þröng og erfið, einkum ef fyrirhugað er að þar verði bæði athafnastöð fyrir stærsta skipafélag okkar og fiskiflotann. Mýrargatan og Tryggvagatan geta ekki ann- að þeim flutningum sem þá myndu skapazt um þessar götirn. . .Við viljum því eindregið benda á þá lausn í þessum málum, að áherzla verði Iögð !á að gera örfirisey að at- hafnasvæði fyrir fiskiflotann, jafnframt þvi sem þar yrði fiskmarkaður, en að farm- skipum okkar verði á hinn bóginn ætlaður staður \ið Laugarnesið. NÝKOMNIR Rúmensku karlmanna- skórnir Odýru og vinsælú Svartir og brúnir sama lága verðið Skóverzlun Péturs Andréssonar Laugavegi 17 - Framnesv. 2 HINIR HEIMSFRÆGU Delta Rythm Boys H A L D A HLJÓMLEIKA í Háskólabíó 1., 2., 3. og 4. apríl kl. 11.15. Kynnir verður hinn vinsæli útvarpsþulur JÖN MIJLI — Sala aðgöngumiða hefst í dag í Bókaverzlun Lárusar Blöndal v/Skólavörðu- stíg og Vesturveri og í Háskólabíó. AÐEINS 4 HLJÓMLEIKAR Knattspyrnudeild VÍKINGS i

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.