Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 11.10.1963, Side 2

Ný vikutíðindi - 11.10.1963, Side 2
2 Nt VIKUTlÐINDI f NÝ VIKUTIÐINDI koma út á föst-udögum og kosta 5 kr. Ritstjóri og útgefanai: Geir Gunnarsson. Auglýsingasími: 17333. Ritstjóm og afgreiðsla: Laugavegi 27, sími 14856. Prentsraiðjan Ásrún h.f. 25 ára afmæli SIBS Nýlega minntist SÍBS aldarfjórðungs afmælis síns. Þetta félag hefur unnið merldlegt starf, sem vakið hefur athygli á íslenzkum berklavamarmálum með- al frændþjóða okkar og leyst vel að höndum verk- efni, sem var aðkallandi og Iífsnauðsynlegt fyrir fjölda manna, sem misst höfðu heilsuna. Það má segja, að starf SlBS hafi verið líknar- starf, sem mjög margir eiga að þakka líf sitt og heilsu — og meira en það. Berkalveikin var mikill vágestur á Islandi ekki alls fyrir löngu. Nú er hún það ekki lengur, enda var tekið miskmmarlaust fyrir kverkar hennar af Iærð- imi sem leikum. Eiga þar margir hlut að máli, þar á meðal forystumenn SlBS. En þótt berklasjúklingum fækkaði, hafa samtök berklasjúklinga ekki dregið saman segljn í ^tarfs^gii sinnL ^erksmiðjur SlBS„$ðIIT?qykj^hindi og í Múla- lundi í Reykjavík era starfræktar af fidlum kráfti, og eru starfsmenn þeirra, flestir, ekki samkeppnis- færir á almennum vinnumarkaði, sökum heilsu- brests. Ekki hefur þó starfsemi SlBS losnað við nokkra gegnrýni, eins og eðlilegt er um svo viðamikið fyrir- tæki. Sambandið fær mikið fé af happdrætti sínu, og þykir ýmsum iðnrekendum því óþarfi af þvi að það keppi við þá um framleiðslu með ódýru vínnu- afli. Þeim finnst happdrættisfé þeirra eigi að nægja til styrktar veilu fólki af völdum berklaveiki. — Fleiri ásakanir hefur maður heyrt á hendur hinna duglegu stjómenda SlBS. En við skulum láta þessar ásakanir eins og vind um eyrun þjóta, því þeir hafa unnið merkilegt stór- virki, sem er þjóðinni til sóina. Á þeim tímum, sem til SlBS var stofnað, var þetta eitthvert mesta þjóð- nytjastarf, sem unnið hefur verið. Stjómendurnir mega að vísu gæta liófs, en þeir eiga heiður skilið fyrir framtak sitt og það mannúðarstarf, sem SÍBS hefur leyst af hendi. Gullnámur Islands Heita vatnið og fossar okkar eru gullnámur, sem tiltölulega lítið hafa verið nýttar. Takmarkið hlýtur að vera að virkja fossana og gufuaflið til fulls og nýta heita vatnið einnig eins og efni standa til. Við eigum hér svo ævintýraleg auðæfi, að fæst okkar gera sér grein fyrir því. Ótakmarkaðir mögu- leikar blasa við. Orkan úr fossunum er því nær ónot- uð ennþá. Ylurinn og aflið frá hverunum og laugun- um býður okkur heim skemmtilegum og nytsam- Iegum viðfangsefnum, ef við erum menn til að not- færa okkur þessa nægtabrunna, sem eru við tún- garð okkar. Hörkumynd í Stjörnubié STJÖRNUBÍÓ sýnir fransk- ítalska kvikmynd frá Col- umbia-kvikmyndafélaginu með ensku tali, sem er lát- in gerast í lok senni heims- styrjaldarinnar. Heitir hún „Kroppinbakurinn frá Róm“ og er byggð á sönniun við- burðum. Það má sannarlega segja um þessa mynd að hún sé viðburðarík. „II Gobbo“ eða „Kroppinbakurinn" (Gerald Blaine) er í stríði bæði við nazistaherinn, meðan Róm var bernumin af Þjóðverj- um, og síðar við Banda- meríh" þ'égar her 'þeirra 'frels aði borgina. Hann og menn hans lenda meira að segja í styrjöld við lögreglu hinn- ar frelsuðu borgar. Og það eni hreint engin barnabrek. Hin fagra leikkona Anna Maria Ferrero fer með hlut- verk Ninettu, dóttur hins grimma lögreglustjóra fas- istastjórnarinnar, sem Gob- bo nauðgar en verður síðar afar ástfanginn af. Hún sýn ir honum þó alltaf fyrirlitn- ingu, jafnvel þegar hann er þjóðhetja eftir brottför naz- istahersins. Það er ekki fvrr en í lok myndarinnar, þegar Gobbo er orð-inn bófaforingi og allt er komið í öngbveiti fyrir honum, að hún levfir ást sinni til hans að briótas+ fram. Það er ágæt dægrastytt- inar að siá bessa mvnd. en ekki er hún failear. — g. kvendi NðJA BÍÓ hefur nú sýnt um skeið þýzka mjög drama tíska kvikmynd. sem nefn- ist „Lulu“ og fer kvnbomb- an og leikkonan Nadia Till- er með aðalhlutvei-kið. en hún hefur áður getið sér mikið orð í samskonar hlut- verkum. Myndin fjallar um götu- stelpu, sem ríkur maður tek ur upp a arma sma og genr að fegurðardís. Stúlkan, esm nefnist Lulu, er vergjörn meira en góðu hófi gegnir, enda umsetin af karimönn- um (og jafnvel kvenfólki líka). Hún fær auðugt gjaf- orð, án þess að segja alveg skilið við velgerðarmann sinn, en dauðinn kemur til skjalanna, svo að hún verð- ur brátt ekkja. Hún giftist á ný, og aft- ur gerir dauðinn hjónaband hennar endasleppt. Líkams- fegurð hennar heillar alla karlmenn, en léttúð hennar og siðleysi felur í sér brodd dauðans, og ólánið fetar í fótspor hennar. Jafnvel velgerðarmaður hennar og sonur hans festast í þessu ólánsneti. Sjálf kemst hún að lokum á vonarvöl og allir sem henni unna deyja eða lenda í örbirgð. Endalok myndar- innar eru harmþrungin, og Þjóðverjunum hefur tekizt að gera kvikmyndina list- ræna á köflum og áhrifa- mikla. Það liggur samt við að manni finnist of langt geng- ið í siðleysi stúlkunnar og hörmungum þeim, sem hún veldur — bæði sjálfum sér og öðrum. En þetta er átak- anleg mynd og minnisstæð, minnir jafnvel á elstu útgáf- una af „Bláa englinum" (með Marlene Dietrich). Ómerkileg mynd GAMLA BÍÖ byrjaði að sýna kvikmyndina ,Þau lifðu það af‘ eftir helgina, og hættir því áreiðanlega fyrir næstu helgi. Það er skömm að því fyrir hið stóra amer- íska filmfélag Metro-Gold- win-Mayer að bendla nafn sitt við svona ómerkilega mynd, Svo að segja engu hefur verið kostað til við töku myndarinnar. Að vísu eru þrír leikarar í henni, en varla örlar fyrir leik hjá þeim, auk þess sem kven- persónan er bæði kauðsk og ófríð. Blökkumaðurinn Harry Belafonte, sem er frægur fyrir söngrödd sína, er látinn ,,leika“ aðalhlut- verkið, en það er varla að hann heyrist syngja lag- stúf. Og Mel Ferrer, þriðja persónan í myndinni, er harla lítilfjörlegur. í sínu hlutverki, enda gefur það lít ið tækifæri til að sýna leik- hæfileika. Þetta er mynd sem vekur geispa og leiða hjá áhorf- endum.' Hún er viðburða- snauð, bjánaleg og langdreg- in. Það er ekki horfandi á hana, nema hvað það bregð- ur fyrir skemmtilegum mynd um frá stórhýsum New York-borgar. Bókamenn Nú eru síðustu forvöð að eignast ýmsar góðar bækur á hagstæðu verði. Upplag eftirtalinna verka er ýmist á þrotum eða mjög lítið til af þeim í gömlu og ódýni bandi. Þau ritanna, sem bundin verða síðar, hljóta þá óhjákvæmilega að hækka mjög í verði. Saga Islendinga IV-IX, öll bindin, sem út eru komin. I skinnbandi 932,00, í shirtingsbandi 638,00, óbundin 460,00. Sturlungasaga I-II (myndskreytta útgáfan). I skinn- bandi 400,00, í skinnlíki 300,00, óbundin 180,00. Andvökur Stephans G. Stephanssonar I-VI (heildar- úgáfa). I skinnbandi 665,00, i shirtingsbandi 517,00, óbundin 387,00. Heimskringla I-III, í skinnlíki. 200,00. Kviður Hómers I-II. I skinnlíki 200,00, Leikritasafn Menningarsjóðs I-XX. I skinnlíki 825,00, óbundið 600,00. Ritsafn Theódóru Thoroddsen, í skinnbandi 280,00, i skinnlíki 225,00, óbundið 180,00. '

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.