Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 11.10.1963, Qupperneq 3

Ný vikutíðindi - 11.10.1963, Qupperneq 3
N"f VIKUTÍÐINDI 3 Urgur út af prestkosningum Prestskosningarnar, sem fram fóru ekki alls fyrir löngu í Grímsnesinu, þar sem kosið var um prest að Mosfelli, hafa vakið tals- vert umtai. Fullyrt er að sr. Ingólfur Guðmundsson, sem kosinn var með 137 atkvæðum, hafi sótt um brauðið eftir að um sóknarfresturinn var útrunn inn og að Biskupsskrifstof- ftn hafi samt tekið hann til greina. Sr. Óskar Finnboga- son, sem hlaut 36 atkvæði, sótti hinsvegar löglega um prestakallið. Þetta hefur valdið ó- ánægju og furðu margra og ekki laust við að Biskups- skrifstofan hafi fengið Iðnskólastjóri — (Framh. af bls. 1) tortryggja að Sandholt hafi nægilegan tíma til að sinna skólastjórastörfum sínum svo að fullnægjandi sé. Til dæmis virðist tæknifræðsl- an vera að renna upp í móti — frá Iðnskólahúsinu á Skólavörðuholtinu til skóla- stjóra Vélstjóraskólans, sem hefur tíma til að sinna sínu skólastjórastarfi. Var ekki meining Kjara- dóms með stórhækkuðum launum til opinberra starfs- manna, að þeir helguðu sinni stöðu alla sína starfs- krafta? Ef Kjaradómur hef- ur ekki séð um að menn 'í háum trúnaðarstöðum hafi mannsæmandi laun get- um við ekki séð annað en að þar hafi verið skotið nokkr- um heiðursskotum og mikill púðurreykur horfið út í vind inn, án þess að tilganginum hafi verið náð. Einhvem veginn finnst manni að það sé að minnsta kosti hægt að finna aðra hæfa menn en skólastjóra í svo fjölmennum skóla, til þess að vera í borgarstjórri, hafnamefnd og yfirstjóm skátahreyfingarinnar, auk þess sem hann er látinn teikna sjálfur viðbyggingu skólahússins! Hann ætti að hafa nóg með að sinna sinni skólastjórastöðu. Því allir Islendingar hljóta að vera innilega sammála um það, nú á þessum síðustu og verstu tímum, að iðnfræðsla og bætt menntun iðnaðar- manna er ein af beztu leið- unum til að leysa vanda þjóðfélagsins að því tak- marki áð bæta lífskjör fólks ins með aukinni tækni og skömm í hattinn fyrir, hvort sem þetta er satt eða ekki. En fyrst farið er að tala um presta og prestsetur, dettur okkur í hug, að í framtíðinni muni það leggj- ast niður að prestar búi á sveitajörðum, heldur setjist þeir að í nærliggjandi kaup- túnum. Til dæmis verði presturinn í Odda búsettur á Hellu, og presturinn í Sauðlauksdal á Patreksfirði. Fæstir prestar era mikl- ir búmenn, þegar þeir koma af skólabekknum, svo að hæpið er að þeir ráði við bú- rekstur á höfuðbólum, enda eiginkona þeirra kaupstaða- stúlka í flestum tilfellum. æfðum höndum til allra starfa. Það er þess vegna krafa allra iðnaðarmanna, iðn- nema og aðstandenda þeirra, að skólastjóri Iðnskólans helgi sig þvi virðulega starfi eingöngu. Ríkisbankar — (Framh af bls. 1) hafi lánað braskara nokkr- um hér í höfuðstaðnum hátt á þriðju milljón króna út á andlitið. Þetta hátterni er hægt að sannreyna með lít- illi fyrirhöfn, þar sem hér er um opinbert fyrirtæki að ræða og þagnarskylda gagn- vart bankaráði og Alþingi er ekki fyrir hendi. — Og úr því að smáútibú leyfir sér slíka lánastarfsemi, hvað gera þá móðurskipin við afl- ann úr vösum almennings í Reykjavík ? Þetta er spurning, sem þjóðin vill fá greið svör við, og ef nokkur á heimtingu á þeim upnlýsingum þá er það hún sjálf, enda eigandi þess- ara peningastofnana. Ekki væri heldur úr vegi að rann- saka gaumgæfilega aðra þjónustu, sem bankamir stunda t. d. innheimtu á er- lendum víxlum og ábyrgðum i sambandi við vöruinnflutn- ing. Það verður þó ekki gert af viti nema ,,expertar“ séu hafðir með í ráðum og fyrir- varalaust. Vonandi láta bankaráðin ekki á sér standa með greið svör við því, hvort þau skipti sér lítið sem ekkert af almennri útlánastarfsemi bankanna — og þá hvernig á því standi, að þau séu ekki höfð með í ráðum, þeg- ar um milljónir króna er að ræða. NORÐRI: Ráðvana ríkisstjórn - Alþingi verður að leysa verð- bólguvandamálið LÉLEG RÍKISSTJÓRN Ríkisstjórnin stendur nú andspænis alvarlegasta vandamálinu, sem komið hefur upp síðan hún tók við völdum. Dýrtíðar- og kaupgjaldsmálin verða Ioks krufin til mergjar á komandi vik- um og eru það verkalýðssamtökin, sem hafa forustuna, enda búin að segja lausum öllum samningum um miðjan þennan mánuð. Skilyrðislaus verkfalls- yfirlýsing verður boðuð, verði ekki gengið til móts við kröfur verkamanna tafarlaust. Þetta er þá árangur af nær f jögurra ára setu ,,Viðreisnarstjórnarinnar“, sem hefur haldið um stjórnvölinn í mesta góðæri, sem um getur í íslands- sögunni. Þrátt fyrir það hafa láglauna- og millistéttirnar orðið að vinna nær tvöfaldan vinnutíma áður en ríkis- stjórnin tók við völdum. Án þess á- lags hefðu þær í rauninni alls ekki lifað mannsæmandi lífi. Ekki skal þó endilega fullyrt að sinni, hvort mögulegt sé að hækka kaup vemlega, en niðurfærsluleiðin er alltaf opin, og reyndar sætir það stór- furðu að ríkisstjómin skuli ekki vera búin að koma auga á hana fyrir löngu. ef hún trúir ráðgjöfum sínum hvað það snertir að kauphækkanir séu alls ekki mögulegar. LÁG LAUN í upphafi boðaði ríkisstjómin af- skiptaleysi í kaupdeilum. Eigi að síð- ur hefur hún orðið að setja bráða- birgðalög um gerðadóm í kaup- og verðlagsmálum og einu sinni skellt á gengislækkun, eftir að handgengnustu menn hennar höfðu setið á næturfund- um vikum saman, og loks samið um óveralega kauphækkun til handa verka mönnum. Þessi vinnubrögð lýsa bezt erfiðleikum stjórnarinnar og blátt á- fram klaufaskap. Um allan hinn siðmenntaða heim er svo komið, að laun era almennt greidd að miklu leyti í hundraðshlútfalli við framleiðsluverðmæti, og séu þau lögð til grandvallar era íslendingar langt undir þeirri hlutfallstölu, a. m. k. hvað snertir alla vinnu í landi. Þetta ástand þarf því að endurskoða og finna hald- góða niðurstöðu, sem hægt er að byggja á, enda er hvergi í heiminum auðveldara að afla upplýsinga um þessi mál en einmitt á Islandi. Allt þetta vita forustumenn verka- lýðshreyfingarinnar, og með það fyrir augum verða þeir harðir í horn að taka í komandi kaupdeilum. Ríkis- stjómin, aftur á móti, stendur ráðvana sem fyrr og hefst ekki að. Það er þeim mun ógæfulegra, þar sem annar flokk- urinn, sem stendur að stjórninni, gefur sig út fyrir að vera verkalýðsflokkur og veit vel hve bágborin launakjörin eru, a. m. k. mátti lesa það í leiðurum blaða hans fyrir síðustu kosningar. Þetta ástand tefur hran kommún- ismans á íslandi. HVAÐ GERIR ALÞING? Stjórnarblöðin keppast nú um að út- mála hve dýrtiðin sé orðin geigvænleg og kenna um víxlhækkunum kauplags og verðlags. Mönnum verður á að varpa fram þeirri spumingu, hvemig á þessum víxlhækkunum standi og hvers vegna vinnuveitendur hafa sam- þykkt þær með samningum við vinnu- stéttimar og hvers vegna ríkisstjómin hefur leyft verðhækkanir, þar sem flestar vörutegundir eru háðar verð- gæzlu? Þessu er auðsvarað. Ríkisstjómin og vinnuveitendur gátu ekki staðið í því að halda kaupgjaldinu niðri eftir rosa- legustu gengislækkanir, sem gerðar hafa verið, sem skáru raunverulega kaup niður um meira en 80% þrátt fyrir skattaívilnanir og fjölskyldubæt- ur. Vinnustéttirnar hafa náð aftur um 35% af þessari lækkun og fara nú enn fram á meira. Óðaverðbólgan magnast þannig mán- uð eftir mánuð og fyrr en varir er allt komið í strand. Óhemju fiskafli hefur fram að þessu bjargað útgerðinni og fiskiðjuveranum og skapað þjóðinni gjaldeyri sem um munar. Ráðaleysi ríkisstjórnarinnar er samt á góðri leið með að setja allt úr skorðum. Alþing kemur nú saman og verður fróðlegt að fylgjast með hver verða viðbrögð stjómarflokkanna við þessu alvarlega vandamáli, verðbólgunni. Það er um að ræða heill allrar þjóðarinnar, og þessi mál verða að ræðast frá öll- um hliðum og nauðsynlegt að þingið sjálft finni úrlausnina. Þingmennirnir verða að finna til ábyrgðartilfinningar þegar þetta mál verður afgreitt, hvar í flokki sem þeir standa. Norðri. \

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.