Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 11.10.1963, Page 6

Ný vikutíðindi - 11.10.1963, Page 6
6 Nt VIKUTÍÐINDI Kiúbburinn I kvöld og næstu kvöld skemmta: Herbie Stubbs kvikmyndastjarnan úr „CARMEN JONES“ Tríó Mugnúsur Péfurssonur ásamt kínversku söngkonunni ^ruge Chong Framvegis verða efri salir Klúbbsins einn- ig opnir mánudaga og þriðjudaga. KLÚBBURINN MÆLIR MEÐ SÉR SJÁLFUR Lækjarteig 2, sími 35 3 55. Röðu11 Diddu Sveins & Eyþórs Combo leika og syngja fyrir dansinum. Röðu11 SÍMI 15327 MERGJUÐ OG FJÖRLEGA SKRIFUÐ SAGA EFTIR MESTSELDA RITHÖF- UNDINN 1 DAG — CARTER BROWN ELSKENDURNIP OG LÍKIN Setustofan var mannauð, svo að ég gekk að svefn- herbergisdyrum Dons og bankaði. Það svaraði enginn, svo að ég opnaði og gáði inn, en þar var enginn held- ur. Húsið virtist í eyði þegar ég kom niður og leit bjart- sýn inn í borðstofuna. Enginn var sjáanlegur — það var ekki einu sinni dúkur á borðinu. Eg gekk inn í setustofuna og þar var maður — Greg Payton. „Góðan dag,“ sagði ég brosandi, af því ég gladdist yfir að sjá einhvern, jafnvel þótt það væri bara hann. „Halió, Mavis,“ sagði hann, en brosið hvarf af vör- um hans og hann starði á mig. Hann leit út eins og einhver af lærisveinaxm Kinseys, sem skyndilega upp- götvar nýjan rannsóknargrundvöll. „Hvar eru allir?“ spurði ég. „Wanda er að hvíla sig,“ sagði hann. „Hún hefur ekki ennþá náð sér eftir atburði næturinnar. Don og Carl fóru báðir út, held ég. Sennilega eru þeir á labbi um garðinn, því þeir mega ekki fara út af landar- eigninni.“- „Saman?“ spurði ég hissa. Hann hristi höfuðið. „Eg sá Don fara fyrir svöna klukkutíma, og Carl fór fyrir tíu mínútum eða svo. Eg hef ekkert orðið var við Fabian í dag.“ „Er lögreglan ennþá á verði?" spurði ég. „Já, þeir eru hér ennþá,“ sagði Greg. „Það er einn þeirra í fremri forstofunni, og svo er fullt af þeim við hliðin, sem hleypa engum blaðamönnum inn. Svo virðist sem Ebhart-nafnið hafi töluvert að segja á þessum slóðum ennþá." Síminn hringdi með skerandi hávaða, og Greg svar- aði. Hann sagði nokkur orð og leit svo til mín. „Það er til þín, Mavis," sagði hann. Eg fór og tók við tækinu af honum. „Halló?" sagði ég. „Er það frú Ebhart?" spurði karlmannsrödd. „Áreiðanlega," sagði ég, því hver sem þetta var, ætlaði ég ekki að láta leika á mig og játa enn einu sinni að ég væri Mavis Seidlitz. „Þetta ér Donavan yfirlögregluþjónn," sagði hann. „Eg er á verði við hliðin. Hér er maður sem segist vera persónulegur vinur yðar. Heitir Rio. Á ég að hleypa honum inn?“ „Áreiðanlega," sagði ég. „Og þakka yður fyrir að hringja." Eg sleit sambandið og sá að Greg horfði forvitnis- lega á mig. „Þetta er vinur minn,“ sagði ég, Hann einblíndi svipbrigðalaus á mig. „Nú,“ sagði ég óþolin- móð. „Þú veizt hvað vinur er, eða hvað? Jafnvel þótt þú eigir enga, þá hlýturðu að hafa heyrt sjúkling- ana þína tala um þá, þegar þeir liggja á sjúkrabekkj- unum þínum og þú rekur úr þeim garnirnar." „Eg veit hvað vinur er,“ sagði Greg svolítið afund- inn. „Það hefðirðu getað sagt strax,“ sagði ég. „Þá hefð- um við losnað við allt þras. En nú verðurðu að hafa mig afsakaða, Greg, því ég verð að taka á móti John- ny núna.“ „Johnny?" „Vini mínum. V-I-N-I. Við skulum fyrir alla muni ekki byrja á þessu aftur." Eg gekk fram í forstofu. IJtidyrnar stóðu opnar og einkennisbúinn lögregluþjónn stóð fyrir utan þær. Hann setti sig í stellingar þegar hann sá mig koma. „Eg er kona Dons Ebharts," sasrði ée\ þegar ég kom fram í dyrnar. „Þér eruð nú margt meira en það. frú,“ sagði hann loðmæltur. „Eg á von á vini mínum." hélt é<r áfram og þótt- ist ekki taka eftir augnaráði hans. Hann heitir Rio.“ „Þeir hringdu til mín frá hliðunum og sögðu að hann væri að koma.“ sasrð’ löp-reelumaðnrinn. ,,Nokk- uð sem ég get gert?“ „Ekki baun,“ sagði ég, , ekki nema bá að hætta að horfa svona á mig.“ „Til þess þyrfti ég að vera dauður, frú “ sagði hann, ,,og væiá jafnvel ekki viss um að bað dygði." Nú nálgaðist bíll Johnnys, og év hlióp fram hjá lögreglumanninum á móti honum. Hann stanzaði við hlið mér, og ég opnaði bílhurðina, svo að Johnny kæmi út. Hann var áhygg.iufullur á svininn og virt- ist alls ekkert glaður yfir að sjá mig. ..H',ra” getum við talað sama.n?“ tuldraði hann. „Ein- hver- staðar þar sem við getum verið í næði?“ „Við getum komið upp í herbergið mitt,“ sagði ég. „Það truflar okkur enginn bar. Don er úti núna.“ „Fínt!“ sagði Johnny. . Hvernig heldurðu að það líti út í augum hinna í fiölskyldunni9 Maðurinn þinn er úti, og annar strákur kemur í heimsókn, og þú ferð með hann beint unp í herbergið þitt!“ „Þú hefur endstvggilegan hugsunarhátt," sagði ég ávítandi. ..Eins og þessi Freud.“ „Freud? Er hann einn í f.iölskyldunni?" spurði Johnny forvitnislega. Stundum er hann svo heimskur að ég furða mig á því að hann skuli muna eftir að raka sig á morgnana. „Eg er að tala um þennan Freud,“ sagði ég þolin- móð. ..Þennan sálfræðing, sem byrjaði á öllum dóna- skapnum." „Nú, jæja,“ sagði Johnny og stundi. „Hvar getum við rabbað sarnan?" „Hvers vegna göngum við ekki um héma?“ spurði ég. „Eg hef ekki fyrr komið undir bert loft frá því ég kom hingað." „Allt í lagi,“ sagði hann og tók undir olnbogann á mér. „Við skulum ganga um landareignina." Þetta urðu öllu fremur hlaup en ganga lengi vel. Eg er ekki einn af þeim, sem er mótfallin gönguæfing- um, því þær eru hollar fyrir vaxtarlagið, en öllu má ofgera. Loksins hægði Johnny svolítið á sér. „Láttu mig heyra alla söguna," sagði hann. „Hvaða sögu?“ „Blöðin em með roknafyrirsagnir á forsíðu af morð- inu!“ hreytti hann út úr sér. ,.Hvað gerðist eiginlega í gærkvöldi?" „Hvað kemur þér það við,“ sagði ég þurrpurkulega, en áttaði mig svo á því að hann ætti ennþá við morð- ið. „Edwina, ráðskonan, var myrt,“ sagði ég. „Það stendur í blöðunum," sagði hann. „Þú ættir helzt að byrja frá byrjun og sleppa engu úr.“ „Stúlkur hafa leyfi til að hafa sín leyndarmál," sagði ég. „Allt í lagi,“ sagði hann hastur. „Þú getur sleppt úr smáatriðum, sem varðar einkalíf þitt. Segðu mér bara allt hitt.“ Svo að ég sagði frá öllu öðru, meðan við gengum rólega rnn graslendið. Þegar ég hafði lokið sögunni, vomm við komin fram á bjargbrúnina, og allt þetta bláa úthaf blasti við undir fótum okkar.

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.