Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 11.10.1963, Page 7

Ný vikutíðindi - 11.10.1963, Page 7
Ní VIKUTlÐINDI 7 Johnny einblíndi á mig með opinn munn, og ég vissi að hann var svo vanur að hafa mig fyrir aug- unum að hann tók ekki eftir því þótt pilsið mitt fyki upp fyrir mjaðmir í rokhviðunum. „Hvað er að?“ spurði ég. „Við skulum setjast/1 tautaði hann, svo að við sett- umst í grasið og ég reyndi að tosa pilsið niður í nokk- ur skipti, en vindurinn var alltof ofsafenginn, og ég lét mig það þá engu skipta. Johnny lét andlitið hvíla á höndum sér og starði út á sjóinn. „Brúðukallinn Limbó,“ sagði hann í ann- arlegum róm. ,,Sálsýkislæknirinn og rauðhærða eigin- konan hans. Lögmaður, sem er kunnugur svarta galdr- inum . . kerti, grímur og nakið lík í hlekkjum niðri ! kjallara." Hann leit æstur á svip til mín. „Eg myndi ekki trúa þessu eitt andartak, nema af einni ástæðu.“ „Hverri?“ spurði ég. „Þeirri, að þú segir mér söguna,“ sagði hann. „Þú hefðir aldrei getað uppdiktað hana; til þess vantar þig hugmyndaflug, Mavis. Hugmyndir þínar ná ekki hærra en á hæð við hæstu karlmenn, sem hafa rödd eins og Gregory Peck. En hvað um það. Hvað heldur Frome fulltrúi um þetta?“ „Eg veit það ekki,“ sagði ég „Hann sagði mér það ekki“ „Skiljanlega,“ sagði Johnny. „Þú varst ekki annað en einn kynlegur kvistur í viðbót — í hans augum.“ „Ef þú ert að draga mig hingað út til þess eins að glápa á fótleggina á mér og móðga mig, Johnny Rio,“ sagði ég, „þá er ég ... “ „Eg er ekki að móðga þig,“ sagði Johnny sefandi. „Eg er heldur ekki að glápa á fótleggina á þér — það get ég næstum alltaf gert og þarf ekki að koma hing- að til að skapa mér* tilefni til þess.“ Hann leit aftur á leggina á mér, þegar vindhviða feykti pilsinu upp, og það birti svolítið yfir svipnum. „Þá man ég það,“ sagði hann, „að það er orðið langt síðan ég hef séð svartar blúndur.“ Eg tosaði pilsið niður í flýti og hélt um það. „Þú hefur ekki svarað mér,“ sagði ég. „Eg vil fá að vita . .. “ „Allt í lagi,“ sagði hann. „Við skulum byrja á byrj- uninni ... Það stóð til að Don erfði stóra fjárhæð, hafði misst tvær eiginkonur og þurfti að eiga þriðju eiginkonuna á lífi og hafa hana hér á staðnum í tvo daga ennþá, ef hann átti að fá arfinn — ekki rétt?“ „Þú ferð of fljótt yfir sögu,“ sagði ég. „En ég held þetta sé rétt.“ (Framh. í næsta blaði) 1 SKEMMTIÐ YKKUR I HJARTA BORGARINNAR, HLJÓMSVEIT HAUKS MORTHENS BORÐPANTANIR í SÍMA 11777 GLAUMBÆR Haustsýning (Framh. aí bls. 8) Þau Eva Cederström frá Finnlandi og Boye Givskov frá Danmörku sýna málverk þarna. Finnst mér litir Givs- kovs ekki nógu fallegir, en myndir Cederströms hafa talsverðan sjarma. — Fyrir- hugað er að hafa gagn- kvæm listaverkaskipti milli sýningaraðila á Norðurlandi og rjúfa þannig einangrun íslenzkrar myndlistar út á við og auðga íslenzkt menn- ingarlíf inn á við, eins og segir í sýningarskránni. Þegar ég var þarna á ferð höfðu fjögur málverk selzt og þótti víst gott, því ekki var áhuginn eða aðsókniii neitt gífurlegur hjá Reyk- víkingum. Við viljum þó hvetja fólk til að sjá sýn- inguna, því þarna eru at- hyglisverðar myndir innan um. — g. L ár é 11 : 1. tilvalinn, 5. líkama, 10. gleðjum, 11. vein, 12. vinna, 14. mælitæki, 15. kvæðis, 17. fomfáleg, 19. fæði, 20. anz, 23. innar, 24. vangi, 26. ill- kvittin, 27. síðnótt, 28. sál- ir, 30. flokkur, 31. fullorðn- ustu, 32. álfa, 34. knatt- spymufél., 35. óðu, 36. sam- gróningurinn, 38. strák (gælunafn), 40. vælið, ■ 42",”' sællega, 44. fara, 46. fönn, 48. kjáni, 49. kæra, 51. söfn- un, 52. þel, 53. leiðsla, 55. blása, 56. óvera, 58. ó- hreinka, 59. þrýstir, 61. hinn, 63. merki, 64. Iíkams- hlutar, 65. framkvæmdi. L ó ð r é 11 : 1. húsgagnið, 2. matur, 3. tré, 4. forsetning, 6. samst., 7. dýr (ú—u), 8. hjón, 9. prentvillusmiður, 10. elds- neytið, 11. mestir, 13. streymt, 14. vaktin, 15. pör- ótt, 16. fiskimið, 18. treg, 21 tölröð, 22. útt., 25. kropp- aði, 27. Iieilbrigður, 29. tusk- una, 31. asar, 33. skel, 34. orlof, 37 storknaði, 39 skart- klæðast, 41. sé'st aðeins, 43. bátur, 44. úrgangur, 45. túna, 47. óklippt, 49. tíma- bil, 5Ö. fyrstir, 53. klafar, 54. boðar, 57. rösk, 60. suð, 62. guð, 63. drykkur. LAUSN- á síðustu krossgátu LÁRÉTT: 1. skálm, 5. kæran, 10. bauta, 11. rauna, 13. ár, 14. lakk, 16. máuk, 17. Im, 19. fas, 21. hve, 22. aska, 23. fress, 26. hver, 27. sko, 28. hattana, 30. aga, 31. panna, 32. ranar, 33. IG. 34. ra, 36. legió, 38. baðar, 41. aka, 43. angraði, 45. mkk, 47. rest, 48. nesti, 49. rukk, 50. fit, 53. frá, 54. U, 55. hást, 57. aska, 60. it, 61. aurga, 63. kalið, 65, ísnætti, 66. forin. LÓÐRÉTT: 1. SA, 2. kul, 3. átak, 4. lak, 6. æra, 7. raun, 8. auk 9. NN, 10. brask, 12. alveg, 13. áfast, 15. korta, 16. masar, 18. merar, 20. skop, 21. hvar, 23. fanginn, 24. et, 25. snaraði, 28. hníga, 29. anaði, 35. karfi, 36. last, 37. ógert, 38. batna, 39. rauf, 40. síkát, 42. keila, 44. rs, 46. skrið, 51. lágt, 52. skar, 55. hræ. 54. sat, 58. sko, 59. ali, 62. um, 64. in. Tízkubókin Bókaútgáfan Valur hefur gefið út leiðbeiningabók fyr ir konur, eldri og yngri, sem nefnist Tízkubókin, og er hin þarfasta handbók nú- tíma konu. Mxm henni verða dreift í bókabúðir nú inn helgina. Við höfum. kynnt okkur bókina nokkuð og viljum mæla með henni sem lang- þráðri hollráðabók fyrir kon ur og stúlkur, sem langar til að vera heimsdömur, en hafa ekki haft ástæðu eða leið- beiningar 1 til að haga sér sem slikar. — En eins og allir vita er það ekki síður áríðandi fyrir konuna að kunna að koma fram, snyrta sig og klæða á þann hátt, að hún verði ekki sér og herra sínum til skammar, heldur en að hún geti talað sómasamlegt mál og viti hvenær hún á að tala og hvenær hún á að hlusta. Eftir að þessi bók er kom- in á markaðinn hefur engin kona lengur neina afsökun fyrir því, ef hún hegðar sér eins og ómenntuð afdala- drós á opinberum stöðum eða gengur um götur borg- arinnar eins og þær séu kargaþýfi. Frágangur bókarinnar er hinn smekklegasti, og þýð- andinn hefur leyst svo erf- itt verkefni sem þýðing þess ara bókmennta er, mjög vel af hendi. „ÞÖLL- auglýsir HEITAR PYLSUR, TÓBAK, ÖL, SÆLGÆTI, ÍS, ÁVEXTIR I ÚRVALI o. m. fl. bÖLI^ Welfusundi 3 (gegnt Hótel ísland bifreiðastæðinu).

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.