Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 17.01.1964, Blaðsíða 3

Ný vikutíðindi - 17.01.1964, Blaðsíða 3
Nt VIKUTlÐINDI 3 OR HEIMSPRESSUNNÍ: TrujiHo-bræ&frnir svalla i París me3 800 millj. stolna dollara NOkÐRI: i vasanum. Fáir slá nú eins um sig á næturskemmtistöðum Parísar og þeir bræðumir Itamfis og Rhadames TRU- flLI.O, synir einræðisherrans í Dóminikanslta lýðveld- *nu> sem myrtur var 30. maí 1961. Ramfis, sem nú er 34 ára, var foringi í flugher föður síns og varð frægur þegar hann heimsótti eitt simn Bandaríkin og gaf Zsa Gabor minkapels og lúxus- bíl, þótt hann ætti konu og sex böm heima. Ennfrem- ^ var hann stórgjöfull við Kim Novak í því ferða- lagi. — Rhamades er aðeins 21 árs, en gefur bróður smum ekltert eftir sem gleðimaður og „playboy". Ramfis var í París, þegar faðir hans var myrtur. Hann fékk þá hinn heimskunna diplómat og ,,playboy“, Porfiero Rubriosa, sem eitt sinn var kvæntur systur hans, til þess að fljúga með sér heim, ef ske kynni að þeim tækist að bjarga hinum geysilega auð, sem Trujillo gamli hafði safnað sér á 32 einræðisstjómar- arum sínum. Og þeim heppnaðist að komast úr landi aftur með fjármuni, sem taldir era nema hvorki meira né minna en 800 milljónum dollara, og sigldu með þá til Evrópu á listisnekkjunni „Angelita". Ramfis er nú skilinn við konu sína og býr með leik- konunni Lita Milan og á með henni barn. Yngri bróðir hans, Rhadames, býr með annarri stúlku og hefur ný- l©ga eignast með henni son. Trajillo-bræðumir stunda mikið næturlífið í París, °g eru ekki alltaf í fylgd með sömu stúlkunni. I lúx- usíbúð sinni halda þeir einnig dýrar veizlur, sem þykja srnnar býsna sögulegar. Þeir eiga stór hesthús fyrir veðreiðahesta í nágrenni borgarinnar, og þangað héldu veizlugestirnir eitt sinn, þegar halla tók nóttu. Ein stúlkan fór þá nakin á bak einum gæðingnum, sem tók sprettinn, svo stúlkan féll af baki. Hún bæði handleggsbrotnaði og fótbrotnaði og lá í sjö mánuði á spítala. 1 fyrra kom Roch, hinn nýi forseti Dóminikanska lýðveldisins í opinbera heimsókn til Frakklands. Hann fór þess á leit við ríkisstjórnina, að hún veitti aðstoð sína við að land hans endurheimti listaverk þau og önnur verðmæti, sem Trajillo-fjölskyldan hefði rang- lega slegið eigji sinni á. Standa nú yfir réttarhöld í því máli í París. Trujillo-bræðranum finnst sjálfsagt jörðin vera far- in að brenna undir fótum sínum í París, því sagt er að þeir ætli að fljúga til Spánar, þar sem þeir telji sig óhultari. Símvirkjanemar ^ Landssíminn getur tekið nokkra nemendur í sím- virkpun (símatækni). Umsækjendur skulu hafa lokið gagnfræðaprófi eða öðra hliðstæðu prófi og vera fullra 17 ára. Gera má ráð fyrir, að umsækjendur verði prófað- ir í dönsku, ensku og reikningi. Umsóknir, ásamt prófskírteini og upplýsingum um fyrri störf, sendist póst- og símamálastjóm- inni fyrir 26. janúar 1964. , Nánari upplýsingar fást í síma 11000. Póst- og símamálastjórnin, 14. jan. 1964 Vandræðaástand er afleiSin? ransrs skipulatrs í kosninga- og skattamálmn. AUMT ÁSTAND Sjaldan eða aldrei, síðan Island varð sjálfstætt ríki, hefur verzlunin átt í jafn miklum erfiðleikum og nú. Verð- bólgan rýrir rekstursféð óþyrmilega; bankamir era í jámklóm seðlabank- W‘ ans; hámarksálagning er á flestum nauðsynjavöram og útflutningsverzlun- in fær ekki nægilega hátt verð fyrir afurðirnar vegna síhækkandi reksturs- kostnaðar. Ríkisstjómin er líka hætt að guma af „velferðarríkinu" og kaupmennirnir, sem áttu ekki orð til þess að lýsa vel- þóknun sinni 'á ,,viðreisnarstjórninni“, era orðnir afundnir og stúrir á svip- inn og botna ekkert í vitleysunni. Framundan era vafalaust enn meiri hækkanir á verðlagi, bæði á vöram.og þjónustu, svo allt útlit er fyrir að ekki sé von á neinni varanlegri lækningu á næstunni, Ríkisstjórnip hefur að vísu boðað einhverjar tillögur til úrbóta strax og þing kemur saman, en hætt er við, að þær nái skammt og séu helzt miðaðar við að létta undir með útflutn- ingsframleiðslunni einni saman og þá með nýjum álögum á abnenning. RANGT SKIPULAG Það er von að almenningur sé gap- andi af undran yfir stjórnleysinu. Verst er þó, að hvorki hann né stjórnar- völdin, gera sér grein fyrir af hverju þetta ástand hefur skapazt, sem er grandvallaratriði til þess að hægt sé að ráða bót á því. Óréttlát skattalöggjöf, afskipti rík- isvaldsins á öllum sviðum, kolvitlaus kjördæmaskipun og kosningafyrirkomu lag og margt fleira er orsökin fyrir ófremdarástandinu. Skal nú leitast við að færa rök fyrir þessu, sem raunar hefur verið gert æ ofan í æ í þessum dálkiun á undanförnum áram og þegar á fyrstu mánuðum ,,viðreisnarinnar“. Væri skattalöggjöfin réttlátari og sniðin þannig, að allir kepptust um að telja rétt fram og væri heimilað að eignast eitthvað, mundi almenningur telja hag sínum betur borgið með því að leggja fé sitt i arðbær fyrirtæki fremur en láta það liggja í bönkum á lágum vöxtum. Með því móti mundi fólk fá trú.á gjaldmiðlinum og stuðla að réttlátum kaupkröfum, þar sem of hátt kaup mundi skerða hagsmuni þess. Afskipti ríkisvaldsins mundi um leið stórminnka við það að almenningur setti fé sitt í arðbær framleiðslufyrir- tæki en ekki í ríkisbankana. RÍKISVALDIÐ OF STERKT Hin stórkostlegu innlög fólks í rík- isbankana gefur ríkisvaldinu mögu- leika og tækifæri til þess að veita fjár- magninu hvert sem því sýnist og þá ekki sízt í óarðbærar fjárfestingar í stóram stíl fyrir kosningar, eins og mörg dæmi eru um. Jafnvægi í byggð landsins er eitt af óheillasporanum, sem stigin hafa verið og era bein af- leiðing af vitlausri kjördæmaskipun og kosningafyrirkomulagi. Allt of margir staðir úti á lands- byggðinni eru látnir fá svimandi fjár- hæðir í vegi, hafnir, byggingar og allt, sem öllu þessu fylgir, í stað þess að mynda færri en stærri útgerðarpláss, sem liggja vel við fiskimiðum og land- búnaði svo og öllum aðdrætti. Atkvæðaveiðar stjórnmálaflokkanna era ástæðurnar fyrir þessari óheilla- þróun, og gífurlegum verðmætum er kastað á glæ, auk þess sem slík þensla kostar margfalt meira fjármagn. Með nýrri kosningaskipun mundi þetta breytast. Hreinn meirihluti á að ráða um kosningu þingmanna og uppbóta- kerfið á að leggja niður. Þannig losnar þjóðin við kommúnistaþingmennina og nokkra óþarfa krata og auðveldara verður að stjórna landinu. Þörfin er aldrei brýnni en einmitt nú að gjörbreyta kosningaskipun og kjör- dæmum svo og skattalöggjöfinni og þá um leið að herða eftirlit með framtöl- um, Það er eina lækningin. Nqrðrí, wmsBmm

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.