Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 09.10.1964, Page 2

Ný vikutíðindi - 09.10.1964, Page 2
2 Ní VIKUTÍÐINDI NY VIKUTIÐINDI koma út á föstudögum og kosta 8 kr. Ritfftjóri og útgefandi: Geir Gunnarsson. Auglýsingasími: 17333. Ritstjóm og afgreiðsla: Laugavegi 27, sími 14856 og 17333 Prentsmiöjan Asrún h.r. Samvinnustefnan er allra flokka stefna Mesta glópska, sem Sjálfstæðismenn hefur hent, er að eftirláta Framsóknarmönnum samvinnustefnuna. Hún er hugsjón, sem hlýtur að þróast. Framsókn er hins vegar íslenzkt afbrigði, sem hvergi er til annars staðar, Samvinnufélögin henta bændum vel. Og samvinnu- stefnan gæti verið ríkjandi í sameignarfélögum, verzl- unarfélögum o. s. frv. En Sjálfstæðisflokkurinn rugl- ar Framsóknarflokknum og samvinnustefmmni sam- an. Hann gerir líka þá skyssu að kalla verzlunarfé- lög þau, sem hægri bændur stofna, kaupfélög! Það er nauðsyn til að gera greinarmun á Fram- sóknarflokknum með sín kaupfélög og samvinnustefn- unni, því hún er hvarvetna í örum vexti, en Fram- sóknarflokkxu’inn er hins vegar óþarfur. Jafnaðar- menn hafa t. d. víða framfylgt henni. Sannleikurinn er sá, að samvinnustefnan er allra flokka stefna og á ekkert skylt við Framsóknar- flokldnn, sem er henni raunar til óþurftar. En kannske óttast Sjálfstæðismenn að samvinnu- stefnan komizt í útgerðina og að þá yrði flokkur þeirra aðeins lítil konservatíf klíka, sem aldrei hefði nógu margar hendur á lofti til að ráða nokkru máli til lykta. Eldgos, úthafsbrim og jökulhlaup Það er hörmulegt að vita, hvernig komið er fyrir Alþingi Islendinga. Forystumenn flokkanna og klík- ur þeirra ráða öllu. Persónuleg skoðun einstakra þingmanna má sín einskis. Áður fyrr voru persónuleikar á þingi, sem þorðu að halda fram sannfæringu sinni. En nú er Alþingi orðið eins og brúðuleikhús með trúð að baki, sem tekur í spotta og stjómar þannig brúðunum. Það er ekki víst að þessi leikur geti haldið áfram til lengdar. Fólkið kann hornun illa, og samtaka- máttur þess er meiri en pólitísku forsprakkarnir skilja og vita. Hér verða eldgos og jökulhlaup fyrirvaralaust. Is- lendingar em eins og eldur og ís. Þjóðin er ung og hún dregur dám af úthafsbrimi, jöklum og eldgosiun landsins. Þing og stjóm ættu að átta sig á þvi. Bókaútsala ÞINGHOLTSSTRÆTI 23. Aætlunarferðir m.s. „Gullfoss Sumaraukaferðir í vetur og sumarferðir 1965 Nýlega komu út áætlanir um ferðir m.s. „GULLFOSS“ í vet- ur og á næsta ári. Samkvæmt áætlunum verða ferðir skipsins með líkum hætti í vetur og undanfarna tvo vet- ur. Fargjöld verða lækkuð veru 'lega mánuðina nóvember til marz, þ. e. a. s. í 3 ferðum fyr- ir áramót og 5 ferðum eftir ára mót. Á þessu tímahili er inni- falin í fargjaldi gisting um borð í skipinu og morgun- og hádegisverður meðan staðið er við í Kaupmannahöfn fyrir þá farþega, sem ferðast með skip- inu fram og til baka. Þá verða skipulagðar ferðir um Kaup- mannahöfn og Sjáland, meðan skipið stendur við í Kaupm.- höfn, fyrir þá farþega sem þess óska. Fyrirkomulag þetta hef- ur verið reynt tvo undanfarna vetur við vaxandi vinsældir, og er nú þegar nær útselt í 1. ferð- ina frá Reykjavík 30/10. I öðr- um vetrarferðum eru farmiðar ennþá til. Til nýbreytni í vetrarferðum má telja, að í desember verður farin ein aukaferð til Kaup- mannahafnar og Leith, jólaferð, sem ekki hefur verið farin áð- ur. Verður brottför frá Reykja- vik í þeirri ferð hinn 11. des- ember og komið aftur til Rvík- ur á 2. jóladag. Er allmikið bú- ið að selja af farrhiðum í þessa ferð. Næsta sumar verður ferðum m.s. „GULLFOSS“ hagað á )(-)f)f 4-)f)4.)f)<-)*-X-)f)f)f)*-)*-)f)f)(.)f)f)«- List- kynning Mokkafaffé býður nú upp á sýningu á 24 svartlistarmynd- um, sem unnar eru úr skinni, eftir Eggert E. Laxdal, son Eggerts M. Laxdals, listmálara. Frá barnæsku hefir Eggert yngri fengizt við myndlist og hefir af og til tekið þátt í mál- verkasýningum. Mest hefir hann málað vatnslitamyndir og feng- izt við teikningar. Á síðari ár- um hefir hann einnig málað olíumyndir og notað við mynd- ir sínar alls konar önnur efni, m. a. klúta og skinn. Þá hefir hann fengizt við ritstörf og tónsmíðar. Hann vinnur nú af kappi að koma upp sjálfstæðri sýningu á myndum, sem byggðar eru upp af alls konar klútum. Það mun vera nýjung í myndlist hér á landi. Svartlistarmyndir þær, sem nú eru til sýnis í Mokkakaffé, eru á mjög hóflegu verði. sama hátt og undanfarin sum- ur og verða alls 11 ferðir, sem byrja með brottför frá Kaup- mannahöfn hinn 8. maí og frá Reykjavík hinn 15. maí. Verða ferðirnar hálfsmánaðarlega, sinn hvorn laugardaginn frá Reykjavík og Kaupmannahöfn, með~Viðkomu í Leith á báðum leiðum. Er byrjað að taka á móti farpöntunum í þessar ferð ir. Vegna mikillar eftirspurnar eftir farmiðum með „GULL- FOSS“ yfir sumarmánuðina, hef ur orðið að synja mörgum um farmiða með skipinu, eftir að öllum farþegarúmum hefur ver- ið lofað löngu fyrirfram. Síðan hafa hins vegar viljað verða all mikil brögð að því, að pantaðra aðgöngumiða hafi ekki verið vitjað eða farpantanir afturkall- aðar með það skömmum fyrir- vara að ekki hefur reynzt unnt að láta farmiðana eftir öðrum, sem synjað hefur verið um far- þegarúm og skráðir eru á bið- lista. Sá háttur hefur því verið tekinn upp, að þeir sem óska eftir að fá farmiða tekna frá löngu fyrirfram, greiða kr. 500.00 upp í andvirði farmiða og leysa hann út að fullu eigi síðar en 30 dögum fyrir brott- för. Er þess vænzt að þetta fyr- irkomulag tryggi það, að eng- um verði synjað um farþega- rúm, sem síðan yrði svo ónot- að. Breytingar hafa ekki orðið á verði farmiða. (Frá Eiskipafél. ísl.) GLAUMBÆR Hljómsveit FINNS EYDAL ásamt IIELENU. Borðpantanir í síma 11777. Kvöldverður framreiddur frá kl. 19,00. GLAUMBÆR SIMI 11777 STQRA TIL NÝRRA VIKUTÍÐINDA, Laugavegi 27, Reykjavik. Undirritaður óskar að fá heimsent burðargjalds- frítt, eitt eintak af Stóru draumaráðningabóldnni fyrir 100 krónur, sem fylgja þessari pöntun. Nafn Heimili

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.