Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 09.10.1964, Side 3

Ný vikutíðindi - 09.10.1964, Side 3
NY VIKUTlÐINDI S Skrýtlur Einmana piparsveinn kom inn í litla og snyrtilega gjafa vörubúð, lagði 1000 krónur á borðið og sagði við af- greiðslustúlkuna: „Eg á afmæli á morgun. Eg hef yndi af að láta koma mér á óvart. Finnið þér ein- hverja gjöf til að senda mér.“ • • Tveir menn sátu í veit- ingastofu og röbbuðu sam- an. „Viltu reykja?“ spurði ann ar þeirra. „Nei, takk, ég reyki ekki,“ svaraði hinn. „Nú, hefurðu aldrei reykt?“ „Jú, ég hef reynt það einu sinni, en mér þóttí það vont.“ „En það má þó bjóða þér vínglas, ha?“ „Nei, ég drekk ekki.“ „Hefurðu kannske drukldð?“ „Jú, ég hef reynt það einu sinni, en mér þóttí það vont.“ „Jæja, jæja, eigum við þá að taka einn billjard-snóker í staðinn?“ „Nei, ég spila ekki billj- ard. En sonur minn vill sjálf sagt spila við þig. Hann sit- ur þama við næsta borð.“ „Nú, það er þá áreiðan- lega eina barnið, sem þú átt. Þú hefur líklega reynt það einu sinni — og þótt það vont.“ * * „Ef þér borgið ekki reikn- inginn, verð ég að hringja á Iögregluna“, sagði þjónn- inn gramur við peningalausa gestinn, sem borðað hafði góða máltíð og drukkið þar að auki dr júgt með matnnm. „Hvað á það að þýða?“ spurði gesturinn. „Þér haldið þó víst ekki að lögreglan aldrei borgi?“ ^J*-*.*.)*-*.*.)*.***)*.)*.)*.)*.)*-)*.)*.)*.)*.*.*.)*.*.)*-)*-)*-)*-)*-)*.)*-)*-)*-)*-)*-)*-)*-)*-)*-*)*-)*-)*-)*-)*-)*-)*-)*- Laghentir menn Nokkrir laghentir menn á aldrinum 18—25 ára óskast til vinnu nú þegar. Nánari upplýsingar gefur Ágúst Guðlaugsson yfirdeildarstjóri, sími 11000. BÆJARSÍMI REYKJAVÍKUR. Námsstyrkir og námslán Umsóknir um styrki eða lán af fé þvi, sem Mennta- málaráð kemur til með að úthluta næsta vetur til ís- lenzkra námsmanna erlendis, eiga að vera komnar til skrifstofu Menntamálaráðs að Hverfisgötu 21 eða í pósthólf 1398, Reykjavík, fyrir 1. desember næst- komandi. Til leiðbeiningar umsækjendum vill Menntamálaráð taka þetta fram: 1. Námsstyrkir og námslán verða eingöngu veitt ís- lenzkum ríkisborgurum til náms erlendis. 2. Styrkir eða lán verða ekki veitt til þess náms, sem auðveldlega má stunda hér á landi. S. Umsóknir frá þeim, sem lokið hafa kandídatsprófi, verða ekki teknar til greina. 4. Framhaldsstyrkir eða lán verða ekki veitt, nema umsókn fylgi vottorð frá menntastofnun þeirri, sem umsækjendur stunda nám við. Vottorðin eiga að vera frá því í október eða nóvember. 5. Umsóknir skulu vera á sérstökum eyðublöðum, sem fást í skrifstofu Menntamálaráðs og hjá sendiráð- um Islands erlendis. Prófskírteíni og önnur fylgi- skjöl með umsóknum þurfa að vera staðfest eftirrit, þar eð þau verða geymd í skjalasafni Menntamála- ráðs, en ekki endursend. Menntamálaráð íslands. K0MPAN Varasöm húsgögn — Pólitíið á tali. — Ovirðu- leg skólasetning — Handritin heim? — Slæm hárgreiðsla — Veðurspáin ekki tilbúin — Við- bjóðslegt heikon. EINS og niinnst var á í síðasta blaði stendur nú fyrir dyrum opnun á sölu- búð með íslenzkan vaming í New York. Framtakssamir og stórhuga bisness- menn hafa komið þessari verzlun á laggimar, og er ekki nema gott eitt um það að segja. Það er aðeins eitt, sem margir ótt- ast, og það er að þær vörutegundir, sem þar verða á boðstólum, verði ekki allar jafn frambærilegar. Vitað er að íslenzkur ullarvamingur — peysur, teppi og fleira — em fyrsta flokks vara, en vafasamt er að svo sé um allt, sem þama verður á boðstól- um — og er ekki að leyna því, að það era húsgögnin, sem valda mönnum mestum áhyggjum. Það er nefnilega vitað mál, að megn- ið af hinum nýtízkulegri, íslenzku hús- gögnum 1 er aðeins léleg stæling af dönskum eða skandinaviskum húsgögn- um, og ýmsir óttast að hin nýja verzl- un getí lent í klandri, ef það sannast vestur í Ameríku, að húsgögnin séu aðeins Iéleg eftírlíldng af því, sem aðr- ir hafa rétt á. Vonandi er ástæðulaust að hafa á- hyggjur út af þessu, en vert er að benda viðkomandi aðilum á þennan háska. *_______ UM DAGINN bráðlá oss á að ná sam- bandi við lögregluvarðstofuna, en þá brá svo við, að síminn var alltaf á tali. Hverjum, sem þetta nú kann að vera að kenna, er augljóst, að þessu verður að kippa í lag hið bráðasta. * Og í þessu sambandi er rétt að geta þess, að oft virðist furðu erfitt að ná í sjúkrabílinn, þótt lífið liggi við. * ______ ÞAÐ var hálf hlálegt við setningu Menntaskólans í Reykjavík, að tals- verður hlutí nemendanna komst ekld einu sinni inn í húsið, þegar skólinn var settur. Það kann að vera, að rektor skólans sé bæði vinsæll og vel látínn, en vér getum ekki neitað því, að oss finnst að setningarathöfnin hefði mátt vera ögn hátíðlegri, þ. e. a. s. ef ætlast er til þess, að nemendur beri einhvem virð ingarvott fyrir þessari stofnun. *_______ OG ÞÁ er handritamálið enn á dag- skrá, og var í því sambandi bæði fróð- legt og skemmtílegt að lesa viðtal Morgunblaðsins við Johannes Bröndum Nielsen, en hann var nú ekki að skafa utan af hlutunum. Hann gaf það fyllilega í skyn, að handritín ættu fremur heima inn um siðmenntað fólk en á íslandi. Hvað sem þessu líður er eitt víst, að Islendihgar hafa sýnt gullaldarbók- menntum símnn svo grátlega litla rækt, að það er margra mál að við höfum engan rétt á liinum gömlu bók- um Áma Magnússonar. Halldór Laxness bentí á það í ræðu, við setningu Listahátíðarinnar, að ekki er til nein viðhlítandi útgáfa af Sæm- undar-Eddu á íslandi, heldur verður að draga fram þýzka eða tékkneska út- gáfu af þessari ágætu bók, ef menn ætla að glugga í þessi fræði af ein- hverju vití. *_______ OSS er tjáð, að ekld sé nein von til þess að fá sæmilega hárgreiðslu fyrir konur hér í bæ. Það virðist svo sem allar hárgreiðslu stofur séu með sama markimi brennd- ar, og að vonlaust sé að fá hár lagt eftír ósk. Vér berum nú satt að segja ekki mik- ið skyn á þessa hlutí, en þó getum vér ekki varizt þeirri hugsun, að það virð- ist oftar allt fara í handaskolum, ef karlmenn hafa ekld hönd í bagga með' hlutunum! * ______ HVERNIG í ósköpunum getur staðið á því, að setning eins og þessi kemur í útvarpinu: „Veðurspáin er ekki tílbú- in“? Alls staðar í veröldinni, nema þá ef til vill á Islandi, þættí slíkur trassa- háttur svo fyrir neðan allar hellur, að veðurstofustjórinn yrði að segja af sér, þó það kæmi aðeins einu sinni fyrir, *_______ ÞAÐ era lítíl takmörk fyrir því, hvað íslenzkir neytendur geta látíð bjóða sér, en þó höldum vér að öllum hljótí að blöskra íslenzka beikonið. Ef mað- ur hefði þennan óþverra ekld fyrir augunum, þyrfti æðislegt hugmynda- flug tíl að láta sér detta í hug, að nokkur verzlun gætí verið þekkt fyrir að hafa slíkan vaming á boðstólum. B Ö R K U R

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.