Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 09.10.1964, Side 4

Ný vikutíðindi - 09.10.1964, Side 4
4 NÝ VIKUTlÐINDI Ibúð á nauðung- aruppboði (Frana!hald af bls. 1) Nú var tryggingaibréfinu þinglýst og farið á fund fjár- málamanns nokkurs hér í borginni og honum selt það. Keypti hann bréfið, án þess að hafa tal af íbúðareigenda, og mun hafa borgað það með 50 þús. kr.,. samkv. fram- burði seljandans, Áma. Síð- an var svallinu haldið áfram og var Ámi gjaldkerinn, en eitthvað mun samt Gunnar hafa fengið í sinn hlut. Ekki var farið á fund móð ur Gunnars og henni sögð tíðindin, því Gunnar taldi hana ekki vænlega til að samþykkja viðskiptin, með- an þeir væm undir áhrifum áfengis. Það er þó honum til málsbóta, að eignin var arf- ur eftir föður hans látinn og átti hann að fá sinn hlut í henni, þótt ekki væri form- lega frá skiptum gengið. Nú líður og bíður og skuldabréfið fellur í gjald- daga. Kannast þá móðir Gunnars að sjálfsögðu ekki neitt við neitt og kærir til sakadómara yfir því, að fals- að hefði verið skuldabréf með veði í íbúð hennar. Kem- ur þá hið sanna fram í mál- inu og er það síðan rekið sem skuldamál fyrir bæjar- þingi Reykjavíkur. Þar var Árna, Gunnari og Sigríði gert að greiða næstum alla skuldina in solidum 7.500 krónur í málskostnað og 6% í vexti frá 4. ágúst 1959 til greiðsludags. Ótalinn er þá kostnaður að- ilja við málsvöm og fógeta- gerðir. Nú mun eigandi skulda- bréfsins hafa komist að raun um að þeir Ámi og Gunnar vom ekki borgunarmenn fyr- ir bréfinu, og þar sem ekki var hægt að ganga að hinni veðsettu eign, því sannað var að undirskriftin var fölsuð, gekk hann að Sigríði. Og nú er svo komið að Sigríður er orðin gift kona, og hafa þau hjónin nýlega eignast kjallaraíbúð að nafn- inu til. Það er íbúðin, sem uppboð er nú auglýst á, til lúkningar tilgreindrí skuld. Þetta er sorgarsaga og leiðindamál. Ekki er útlit fyr ir annað en óvarkára stúlk- an, sem vissi ekki annað en hún væri að gera vini sínum greiða á sínum tíma, verði nú ásamt eiginmanni sínum að selja litlu íbúðina, sem þau með súrum svita em að reyna að eignast. En piltamir em sjálfsagt þær mannleysur, að þeir láta þetta viðgangast án þess að sýna lit á að hlaupa undir bagga með ungu hjónunum. Um kaupanda skuldabréfs ins skulum við hafa sem fæst orð. '■*>¥+++++++++* ++X-++++++++ Harkalegar inn- heimtuaðferðir (Framh. af bls. 8) gekk svo nærri útgerðinni með skuldainnheimtu að Eiríkur og fjölskylda hans höfðu bókstaflega ekkert til þess að lifa á. En í stað þess að kjökra yfir erfiðleik- um, eins og háttur er lin- gerðra manna, þá brúkaði Eiríkur munn við bankastjór ann ríka og skellti hurðum í bankanum. Á s.l. vetri var svo bátur Eiríks seldur nauðungarsölu. Talið var að heildarskuldir Eiríks næmu þá ca 350 þús- unum. Fiskveiðasjóður og bankinn keyptu bátinn fyrii' 120 þúsundir. Var svo bátur- inn látinn liggja í takmark- aðri hirðu, þar til hann var fluttur í sumar til Reykjavíkur og seldur þar, að því að talið er fyrir 640 þús. kr. Ekki var það þó tal- ið nægjanlegt heldur lét lögfræðingur ríka bankastjór ans nýlega selja húsið ofan af Eiríki, og mun það hafa selst á rúmar 80 þúsundir, og er Eiríkur þarmeð á göt- unni með 5 böm, ung. Eftir þessar fjármálaað- gerðir Fiskveiðasjóðs og bankans, hafa þessir aðilar fengið, að því er talið er, á áttunda hundrað þúsund fyr- ir eignir Eiríks, bát og hús, vegna skulda, sem taldar vom nema ca. 350 þúsund- um, en Eiríkur stendur eftir húslaus og bátlaus og skuld- ar ennþá bókhaldslega helm- ing af upphaflegu skuldun- um. Þó er þetta ekki einsdæmi. Fyrir rúmu ári var bátur Ása í Bæ, fatlaðs manns með mikla ómegð seldur með hliðstæðum hætti fyrir 500 þúsundir og síðan endurseld- ur af bankanum fyrir 1260 þúsundir. Þeir lögfræðingar munu vera til, en fáir þó, sem mæla svona aðförum bót og telja þetta rúmast innan ramma landslaga, en allur al- menningur í landinu fordæm- ir svona aðferðir í nafni stofnana eins og Fiskveiða- sjóðs og banka, sem eru rík- iseignir og þar með stofnan- ir alþjóðar. Fyrir bankastjóm IJtvegs- bankans þýðir ekki að skjóta sér á bak við Elías Halldórs- son, forstjóra Fiskveiðasjóðs ins, einfaldlega vegna þess að það er bankastjórn Út- vegsbankans, sem stjómar Fiskveiðas j óðnum. Almenningur í landinu ætl ast til þess, að Fiskveiða- sjóður og Útvegsbankinn sjái sóma sinn í því að bæta fyr- ir misgerðir og afglöp í við- skiftunum við Eirík frá Hruna og Ása í Bæ og aðra þá, sem líkt er á komið í viðskiptum við þessar stofn- anir. x + y ofjfjfjf*-****-***-*-****-**-*-**-)*- — Sprengihætta (Framh. af bis. 1) væri fyllilega ljóst, hve afl- mikil sú sprenging yrði, sem þarna væri hugsanleg, enda væri það ekki í verkahring almannavama að skipta sér af einstökum fyrirtækjum. Við spurðum hvort al- mannavömum væri kunnugt ^.f*-*-*-*-**++++++jfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjff*** jfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjfjf*-*-*-*-***-*-***-*- ****J * 4 * * * * * * 4 + 4 4 4 ■¥ -¥ * * ■¥ ■¥ ■¥ * -* ■¥ •¥ -¥ -¥ ■¥ * -¥ 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 Hinir margviSurkenndu BRIDGESTONE isnjóhjólbarðar komnir í öllum stærðum. Pantanir óskast sóttar sem fyrst, vegna gífurlegrar eftirspurnar. Gúmbardinn h.f. Brautarholti 8 — Sími 17984 Einliaumboð á íslandi: R0LF J0HANSEN & Co. - Sími 36840 Jf*-*.*.**************-******************************************************************************************************

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.