Ný vikutíðindi - 22.12.1964, Page 3
NÝ VIKUTlÐINDI
3
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
Austurver h.f.
Gleðileg jól
Prentsmiðjan H 0 L A R
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
Kr. Þorvaldsson og Co. Heildv.,
Grettisgötu 6.
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
H. A. Tuliníus, heildverzlim,
Austurstræti 14
<S-----------------------:------s>
GLAUMBÆR
Hljómsveit FINNS EYDALS ásamt HELENU.
Borðpantanir í síma 11777.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19,00.
GLAUMBÆR
SÍMI 11777 og 19330
KOMPAN
Sóðaskór - Vanþróaðir - Kaup tannlækna -
Sjukrasamlag - Milljónum eytt - Betri gæzlu
- Hrosshúðir - Blöðum seinkar.
HÚSMÆÐUR kvarta sáran yfir hin-
um nýju Iðunnar-skóm. Ekki svo mjög
vegna þess að þeir standist ekki sam-
anburð við innflutta skó, hvað gæði
snertir, heldur vegna óþrifnaðar af
þeim á gólfum.
Tilfellið er víst að sólar og hælar á
þessu skótaui sverta gólf, svo að þeir,
sem í skónum eru, kváðu vart í húsum
hæfir.
Ef það er rétt, og að öðru leyti séu
þessir nýju skór ágætir, þá ættu fram-
leiðendur að kippa þessu í lag hið bráð-
asta.
* ______
í BANDARlKJUNUM vestur hefur
Rauði Krossinn forgöngu meðal skóla-
hama um gjafasendingar til VANÞRÓ-
AÐRA ÞJÓÐA.
Eins og að líkum lætur erum við Is-
lendingar ekki látnir sitia á hakanum
í þessari söfnun handa hungruðum og
klæðlausum skrælingjum.
I skólum landsins er fyrir jólin
hverju barni afhentur gjafapakki, sem
hefur inni að halda sokka, sápu og
fleira.
Síst er ástæða til að amast við góð-
vilja amerískra skólabama, en þetta
minnir oss enn einu sinni á þá stað-
reynd, að betl og sníkjur og annar
aumingjaskapur íslenzkra stjómar-
valda hefur fvrir löngu orðið til þess
að siðaðar þjóðir telja okkur til van-
þróaðra skrælingja.
* ______
SAGT ER er erfitt sé að græða pen-
inga á fclandi á heiðarlegan hátt.
Menn með „aðstöðu“ em að vísu
hér á hverju strái, en yfirvöldin álíta
víst enn, að iðúa fjársvikara, þjófa
og mútuþega brjóti í bága við lands-
lög (almenningsálitíð er fyrir löngu
orðið annað).
Þó er það haft fyrir satt, að ein
stétt manna græði stórfé á tiltölulega
heiðarlegan hátt, svona miðað við ann-
að hér á landi.
Vér höfum til gamans reiknað það
út að tannlæknir, sem er með þrjá aðra
tannlækna í vinnu hefur í nettótekj-
ur um 3,5 milliónir á ári.
það, að þeir eigi að vera í sjúkrasam-
lagi og að fólk eigi að geta farið til
tannlæknis án þess að fara hreinlega
á hausinn.
Flestar Evrópuþjóðir hafa þennan
hátt á, og það er ástæðulaust að láta
íslenzka tannlækna komast upp með
að plokka fólk svona gegndarlaust.
*_______
SAGT ER að sala á vefnaðarvöm sé
nú mikhim mun minni en nokkru sinni
fyrr. Ekki er að efa að orsakanna er
að leita til utanferða fólks í verzlun-
arskyni.
Blaðið hefur fregnað, að Seðlabank-
inn innleysi mánaðarlega tugi milljóna
af íslenzkum bankaseðlum, en eins og
kunnugt er, er nú hægt að skipta ís-
lenzkum seðlum í bönkum erlendis.
Það er ekki nema eðlilegt að verzl-
unarmönnum hér þyki þetta dálítið
súrt í brotið, en við hvem er að sakast,
nema ef vera skyldu tollyfirvöldin.
*_______
BÖRN og unglingar sækja mjög á bað-
staði höfuðborgarinnar og er það vel.
En eitt er það, sem oss finnst ástæða
til að benda á.
Er gæzla við laugamar nógu góð?
Slysin gera ekki boð á undan sér, og
í svartasta skammdeginu er ekld vafi
á, að ástæða er til að herða gæzluna til
muna.
*_______
ÞAD er undarlegt að ekki skuli með
nokkru móti vera hægt að fá keyptar
hrosshúðir hér á landi.
Svo mikið virðist liggja við að flytja
vörar óunnar héðan að ekki hvarflar
að neinum að það sé ómaksins vert að
súta nokkur skinn til sölu hér á heima-
markaði.
* ______
SVO mikil er traffíkin núna fyrir jól-
in með millilandaflugvélum, að venju-
legur póstur hefur orðið að sitja á
hakanum.
Liggur þetta í því að fólk kaupir
þau reiðinnar ósköp af vörum beinlín-
is til að smygla þeim að allir era með
talsverða yfirvigt?
****************************************:
Kaupsýslutíðindi
Sími 17333.
ÞEGAR svona tölur era hafðar í huga
verður það skiljanlegt, hvers vegna
það er eins og tannlæknar sjá and-
skotann uppmáfaðan, ef minnst er á
Það er dálítið súrt að fá ekki erlendu
blöðin á réttum tíma af því að allar
vélar era fullar af smyglvarningi.
B Ö R K U R
«.***********************************************' U