Ný vikutíðindi - 22.12.1964, Blaðsíða 5
NÝ VIKUTÍÐINDI
Ríkisvaldið er komið í þá
að stöðu, vegna eigin að-
gerða og í skjóli stjórnar-
stefnu þeirrar, sem fram-
fylgt er í landinu fyrir at-
beina ríkisstjómarinnar, að
hinir stórskulduðu umráða-
menn framleiðslutækjanna,
sem em með óábyrgum að-
gerðum búnir að draga til
sín verðgildi sparifjár al-
mennings í landinu með si-
endurteknum gengisfelling-
um, hafa komist í nokkurs-
konar húsbóndaaðstöðu gagn
vart ríkisstjóminni og beita
því óspart og með vaxandi
þunga.
Hinir snoppufríðu og mein
Ieysislegu skuldakóngar, sem
ríldsstjómin hefir plantað út
um landsbyggðina og bank-
amir eru látnir lána á
hverju sem veltur með rekst
ursafkomu, em smám sam-
an að slá hring um ríkis-
stjórnina og komast í þá að-
stöðu að taka fleiri þætti rík
isvaldsins í sínar hendur og
þá fyrst og fremst yfir bönk
unum og útflutningsverzlun-
inni.
r~ ' " >
- x -
i HLJÓMSVEIT
i
I Karls Lillien-
dalhs
ásamt söngkonunni
Bertha Biering
leika og skemmta
- x -
KLÚBBURINN MÆLIR
MEÐ SÉR SJÁLFUR
LÆKJARTEIG 2,
SÍMI 35 3 55.
v
Á komandi vetrarvertíð
hyggjast þessir sjálfkjörnu
handhafar fjármálavaldsins,
með sjálfa ríkisstjómina í
bóndabeygju, að setja alla út
gerð og fiskveiðar lands-
manna á von um stóran
vinning með einhliða veiðum
á síld og þorski og ýsu í
hringnót og fiskinætur.
Gjaldþrot . .
(Framhald af bls. 1)
sem fær verðlausa peninga i
hendur. — Þar að auki eru
þeir skattpíndir, því þeir
hafa ekki tök á að fela litlu
krónumar. Eignamennimir
telja fram eftir fasteigna-
mati, sem er aðeins 1/10 af
verðmæti eignanna.
Þetta er lítil mynd af því
ræningjabæli, sem íslenzkt
þjóðfélag er í dag, í höndtun
þeirra undirmálsmanna, sem
sitja í gráa steinhúsinu við
Austurvöll og gamla tukthús
inu við Lækjartorg.
AÐGANGUR —
(Framhald af bls. 1)
hleypa mn imglingum innan
sextán ára aldurs.
Það ekki ætlan okkar að
i taka hér upp hanzkann fyr-
ir vandræðaböm og skríl,
j en eins og við höfum áður
bent á, er það talsvert súrt
fyrir böm og unglinga, sem
kunna mannasiði og hafa
ekkert til saka irnnið, að
þurfa að gjalda skrílsins og
vera bókstaflega svift aug-
ljósum mannréttindum
vegna örfárra vandræðaung-
linga.
Slík umgengi við æsku-
fólk bæjarins er ekki til bóta
heldur þvert á móti fremur
til þess fallin að ala á kergju
í unglingum.
Annars teljum við, að veit
ingahúsaeigendum væri hollt
að líta aðeins yfir reglugerð
rnn gisti- og veitingastaði og
mun þá fljótt koma í ljós að
á mörgum þeirra er varla
nokkurri kröfu hins opin-
bera fullnægt.
Nægir hér að geta: borð-
búnaðar, salema, loftræst-
ingar, snyrtingar og hrein-
lætis að ekki sé nú talað um
tvær greinar, sem fjalla um
háttvísi og framkomu þjón-
ustuliðs í umgengni við
■ gesti.
Þau veitingahús sem full-
nægja kröfum hins opinbera
í fæstu, nema þá ef vera
skyldi í prísunum, ættu ekki
að gera of strangar kröfur
til gestanna.
NORÐRI:
Ríkisstjórnin „gefnr“ jólagjafir - Verða ráð-
herrarnir bekktustu jólasveinarnir í framtíð-
• •*) IÞ* • • íí >
mmí - „Viðreisnm 1
VITLAUSA LÖGGJÖFIN
Fáum kom á óvart hin síðasta á-
kvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka
söluskattinn um 2,5% í 8%. Hennar
ær og kýr hafa verið sífelldar álögur
síðan hún lækkaði gengið í upphafi
stjómartíðar sinnar.
Þessi síðasta jólagjöf hennar er í
fullu samræmi við hina á dögunum, er
hún sigaði skattalöggjöfinni á ýmis fyr
irtæki, sem auðvitað svíkja undan
skatti eins og öll önnur, því hvemig
ættu þau að komast af án svikanna,
búandi við snarvitlausa skattalöggjöf ?
Annars er það mátulegt á stjórn-
endur fyrirtækjanna, að fá á sig
skattalögregluna, því fram að þessu
hafa þeir sjálfir engan vilja sýnt til að
fá löggjöfinni breytt og þótt þægilegt
að stinga undan þessari billjón króna,
sem hverfur árlega. Þeir ganga þá lík-
lega í það á næstunni, að fá henni
breytt í skaplegt form, sem opnar
þeim þann möguleika að þurfa ekki að
svíkja undan skatti.
Þess væri óskandi að skattalögregl-
an yrði til þess að hræða menn til að
breyta þessari heimskulegu löggjöf,
sem engir aðrir fara eftir en fastlauna
menn og þó stinga þeir einning undan
talsverðri aukavinnu.
tyrjöld við sjálfa sig!
að enginn mundi verða hissa á þvi þótt
hann yrði einhvemtímann ráðherra!
Ekki hefur stjómin mikið álit hjá
þessrun manni og svo er áreiðanlega
um marga fleiri, og reiðastir út í
hana eru hennar eigin stuðningsmenn,
þ. e. a. s. þeir, sem vom það.
Það fer að verða vafasamt hvort hún
hefur fylgi að baki sér í hlutfalli við
þingmeirihlutann, því varla heyrist
nokkur maður mæla henni bót, nema
að hann hafi einhvem bitling á veg-
um hennar.
SKRlPALEIKUR
Hvernig á líka annað að vera, þegar
aðgerðir hennar em með þeim hætti,
að hún veit ekki einu sinni sjálf sitt
rjúkandi ráð og er í eilífu stríði við
sjálfa sig.
Flestum er minnistætt þegar ríkis-
stjórnin kom fram með sitt fræga
,,viðreisnarfrumvarp“ og lýsti þá yfir
fjálglega, að nú væri söluskattinum
sleppt, sem væri í senn ranglátur og
óvinsæll. En það leið ekki langur tími
þar til hún bar fram breytingartillög-
ur við þetta frumvarp sitt um 3%
söluskatt, sem stafaði af reiknings-
skekkju, og síðar hækkaði hún þennan
skatt í 5,5% og nú í 8%.
FYLGIÐ HRYNUR AF
STJÓRNINNI
Almennigur er annars reiður þessa
dagana, sem vonlegt er. Fálm rákis-
stjómarinnar kemur harðast niður á
honum þótt hann geti varla varizt
hlátri, þegar hún ber fram breyting-
artillögur við sín eigin frumvörp.
Það er sjálfsagt heimsmet í vitleysu,
kák þessarar „viðreisnarstjómar“.
Menn hafa það líka í flutningum sín á
milli að ráðherramir verði þekktustu
,,jólasveinarnir“ í framtíðinni. Sjaldan
eða aldrei hefur setið jafn vitlaus rík-
isstjórn. Hún hefur ekki einu sinni vit
á því að segja af sér.
Ljótustu skammaryrði, lét maður
nokkur sér um munn fara á dögunum,
er hann reifst við andstæðing sinn, og
sagði að hann væri svo mikill ,,idiot“
Ekki virðist stjóminni samt sjálf-
rátt, því síðan hefur hún borið fram
breytingartillögu um að lækka hækk-
unina um x/2 % og býður nú almenn-
ingur spenntur, yfir því, hvort hún
muni hálda áfram að berjast við sjálfa
sig og annaðhvort hækki eða lækki
skattinn á næstunni.
Þessi skrípaleikur er vafalaust eins-
dæmi í heiminum og getur varla átt
sér stað nema hjá „viðreisnarstjóm-
inni“.
Öll hennar ráð hafa verið ráðleysi
og allar tilraunir hennar til úrbóta
verið flausturslega unnar og aldrei
borið árangur til bóta, nema síður sé.
Það verður fróðlegt að heyra ára-
mótaræðu forsætisráðherrans og
hverju hann ætlar að kenna um. Vafa-
laust hvítþvær hann ríkisstjómina og
þá hlæja líka allir. Norðri.